Vikan


Vikan - 10.09.1942, Page 7

Vikan - 10.09.1942, Page 7
VIKAN, nr. 32, 1942 7 Oskadraumur íslenzkar leiklistar Sjá mynd á forsíðu. jóðleikhúsið, þessi glæsilega bygging, hefir nú staðið hálfgert í meira en 10 ár, og er nú notuð til allt öðruvísi og óglæsilegri starfsemi, en þá menn og þær konur dreymdi um, sem fyrir 12 árum sáu langþráða von sína um „Þjóðleikhús ís- lands“ rísa upp móti sólu á þúsund ára hátíð Alþingis og taka á sig svip tilkomu- mikillar hallar í frumlegum og þjóðlegum stíl. Saga þessa þjóðhátíðardraums hefir því miður — hingað til — orðið dapurleg. Þessi þráða bygging hefir lent í niðurlæg- ingu, svo mikilli, að vinir þessa hugsjóna- máls finna til sársauka, þegar þeir ganga fram hjá byggingunni nú. Því enn lifir þráin og vonin í brjóstum þessa fólks, brjóstum þeirra, sem berjast fyrir full- komnum þroskaskilyrðum leiklistar þessa lands og þeirra annarra listategunda, sem henni eru nátengdar, svo sem hljómlist og rithst. En, góðir íslendingar, nú er ekki hægt að bíða með þetta lengur. Það er ekki hægt að þola lengur þessa meðferð á hinni fögru byggingu. Það verður að fullgera Þjóð- leikhúsið! Leikstarfsemi borgarinnar býr nú við erfiðari starfsskilyrði en nokkru sinni áður í hinum ófullnægjandi húsakynnum Iðnó, en hefir þó hagnast vel peningalega undanfarin tvö ár. Ef þjóðleikhúsið hefði verið fullgert og starfrækt hefði það með tekjum sínum getað skapað þessari starf- semi traustan fjárhagslegan grundvöll. Ef ríkisstjórnin gengi nú ríkt eftir því, að byggingin yrði losuð og sýndi fram á hina brýnu nauðsyn þess, er því vart trú- andi, að ekki yrði hægt að finna eða byggja eitthvert skýli, sem gæti tekið við því sorglega hlutverki, sem Þjóðleikhúsið leysir nú af hendi. Það er alkunnugt, að eins og leikhús- nefndin er nú skipuð, hefir hún þáaðstöðuí opinberum málum, að henni væri fyllilega treystandi til að leysa f jötra Þjóðleikhúss- ins, ef hún beitti áhrifum sínum til fulls. Það er heldur ekki að efa, að hún vilji gera það. Og ennfremur: Væri nú til of mikils mælst, að Alþingi léti ríkissjóð, sem ein- mitt nú hefir óvenjulega mikil fjárráð, skila aftur eða endurgreiða fé það, sem segja má, að hann hafitekiðtraustatakifrá ,Þjóðleikhúsinu nú í 10 ár, og er þar átt j'^ftvið skemmtanaskattinn, sem mundi — 'ásamt tekjum Þjóðleikhússsjóðs næstu tvö , ár — nægja til þess að fullgera þetta frum- legasta stórhýsi landsins? Væri það virki- lega til of mikils mælst? Svo spyrja þeir, sem unna þessu máli. Þeir eru að vísu allmargir, sem hafa lát- ið í ljósi óánægju sína yfir staðnum, sem Þjóðleikhúsinu var valinn. En þegar búið verður að rýma til í kringum bygginguna, eins og ætlast er til að gert verði, munu menn að minnsta kosti komast að raun um, að mótbáran gegn staðarvalinu er ekki svo veigamikil, að vanrækja beri bygginguna staðarins vegna. Myndin á forsíðu blaðsins sýnir að nokkru þessa hreinsun kringum Þjóðleik- húsið og gefur mönnum nokkra hugmynd um, hvílíka borgarprýði hér er um að ræða. Enn mætti benda á, að í húsnæðisvand- ræðunum núna, væri ekki lítill fengur í öllum þeim mörgu herbergjum og vistar- verum sem eru í bakhluta byggingarinnar — og sem mundu létta á hinni gífurlegu húsnæðiseklu, ef fullgerðar yrðu og teknar í notkun. Og þessar vistarverur eru þó þegar komnar undir þak. Vill nú ekki þing og stjórn láta þetta við- kvæma metnaðar- og menningarmál fyrir alvöru til sín taka og reisa Þjóðleikhús Is- lands úr niðurlægingu þess — svo það standi fullgert sem allra fyrst. F-J- x Geðbilaði lœknirinn. SUMAR nokkurt voru hjón á ferða- lagi um svæði í Nýja Englandi, þar sem þau voru ókunnug. Voru þau á leið í miðdegisverðarboð, en voru orðin nokkuð sein fyrir, vegna þess að þau höfðu villzt tvisvar, svo að maðurinn ók mjög hratt. Þrátt fyrir það, tekur hann eftir stóru, illa hirtu húsi, sem á var skilti, er tilkynnti, að þar byggi læknir. Er hann var búinn að aka hálfrar mílu leið fram hjá, bilar stýrið og bíllinn fer út af veginum og rekst á tré. ökumaður- inn, sem er ómeiddur, tekur konu sína út úr bílnum og sér þá, að hún er meðvit- undarlaus og illa særð. Þetta er mjög af- skekktur vegur; maðurinn hefir ekki séð neinn annan bíl og fá hús. Allt í einu man hann eftir húsi læknisins í hálfrar mílu fjarlægð. Hann tekur konuna í fangið og gengur og hleypur til skiptis til hinnar hrörlegu byggingar og hringir á bjölluna. Hár, grannvaxinn, gráhærður maður opn- ar dyrnar og segist vera læknirinn. Það er enginn annar í húsinu. 1 sameiningu bera þeir konuna inn í rykuga, illa hirta lækningastofu og leggja hana á skurðborðið. Hún er enn ekki kom- in til meðvitundar. Læknirinn rannsakar hana með mikilli nákvæmni og segir svo, að hauskúpan sé brotin og að eina vonin til þess að bjarga lífi konunnar — og sú von væri lítil — væri að gera strax upp- skurð. Er maðurinn lítur á allar flöskurn- ar og áhöldin, sem augsýnilega hafa ekki verið notuð í langan tíma, þá hikar hann, en á ekki um annað að velja. „Þér verðið að aðstoða mig,“ segir lækn- irinn, „þar sem hér er enginn annar.“ Maðurinn hlýðir skjálfandi og órólegur, °g þegar búið er að svæfa konuna, er auð- séð, að hann muni gefast upp, svo að lækn- irinn, með hnífinn í hendinni, segir við hann: „Ég held, að það væri betra að þér biðuð fyrir utan. Eg get nú annazt þetta einn.“ Maðurinn gengur fram og aftur í for- stofunni og gægist við og við inn í hið upplýsta herbergi. Þá heyrir hann allt í einu fótatak og inn koma þrír menn, fara þeir mjög varlega. Tveir þeirra eru vopn- aðir, en sá þriðji heldur á reipi. Þeir ganga hægt í áttina til dyranna. „Bíðið! 1 guð- anna bænum bíðið!“ segir maðurinn ákaf- ur. Það er búið að opna hauskúpu konu hans, sérhver töf, sem nú yrði, hlyti að valda dauða hennar. Einn mannanna spyr í hálfum hljóðum: „Hvað haldið þér, að við séum?“ „Þjófar!“ „Nei,“ svarar hinn. „Við erum starfs- menn við geðveikrahæli hér í nágrenninu. Maðurinn, sem er að gera. uppskurðinn á konu yðar, er hættulegur vitfirringur, sem slapp í burtu fyrir tveim tímum.“ Hvíslandi koma þessir þrír menn sér saman um að bíða, þar til uppskurðinum sé lokið. Vitfirringurinn hefir verið skurð- læknir, segja þeir, og það mjög frægur, en hafði verið einkennilegur dálítinn tíma og allt í einu orðið alveg vitskertur nýlega. Fyrir nokkrum árum kom hann frá einni hinna stóru borga, keypti og lét innrétta þetta hús, og starfaði hér, þar til nauð- synlegt þótti að láta hann á geðveikrahæli. „Af vana hefir hann leitað hingað,“ sagði einn mannanna, „og af vana getur honum heppnazt þessi uppskurður. Að minnsta kosti eigum við einskis annars úrskostar, en að bíða. Ef við ónáðum hann núna, hlýtur kona yðar að deyja. Þeir horfa inn um gluggana og sjá læknirinn ljúka við uppskurðinn, síðan ráðast þeir að vitfirr- ingnum, sem brýzt um á hæl og hnakka og æpir, en þeir setja hann í bönd og fara með hann í burtu. Þeir lofa að senda læknir og hjúkrunarkonu, til þess að ann- ast konuna, og efna það. Konan nær sér nægilega til þess að verða flutt til New York, þar sem hún var látin á sjúkrahús undir umsjá dugandi læknis. Er læknir- inn hafði rannsakað hina brotnu hauskúpu, sagði hann: „Kona yðar mun verða albata, en ég skil ekkert í þessu. Aðeins einn upp- skurður, sem ég kannast við, hefir getað bjargað lífi hennar, og aðeins einn skurð- læknir hefir gert þann uppskurð þannig, að hann lánaðist. En það kastar engu ljósi á málið, vegna þess að sá skurðlæknir varð vitskertur fyrir mörgum árum, og er nú á geðveikrahæli einhvers staðar í Nýja Englandi."

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.