Vikan - 10.09.1942, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 32, 1942
ð
IAðskönnun í Englandi. Mynd þessi er tekin í Englandi og sýnir
Louis Mountbatten lávarð við herkönnun á liði, sem senda á til
árásar á lönd óvinanna.
Mac Arthur hershöfðingi. Myndin sýnir Douglas Mac Arthur, hers-
höfðingja ásamt Patrick Hurley herforingja. Er Mac Arthur að
heilsa íagnandi mannsöfnuði í Melbourne í Ástralíu.
Starfandi stúlka. Stúlka þessi heitir Margie Van-
derteens og lítur frekar út fyrir að vera leikkona
en starfsstúlka í flugvélaverksmiðju. Á mynd-
inni sést hún snæða morgunverð sinn i verk-
smiðjunni.
Barn fætt með V á enninu. Stúlkubarn þetta fæddist i New Jersey
í Ameríku með V-merki á enninu. Eins og kunnugt er, hafa Banda-
menn tekið sér V-ið sem sigurmerki, táknar það ,,Victory“ sem
þýðir sigur.
Loftvamaskóli í eyðimörldnni. Myndir þessar eru teknar á eyðimörk í Kali-
fomíu, þar sem verið er að kenna hermönnum að verjast árásum úr lofti.
Sjást þeir hér með allskonar tæki, miðunartæki, hlustunartæki, leitarljós
og loftvarnabyssur.
Á leið til London. Mynd þessi sýnir Ying Tsung Chow (til vinstri)
og John P. Y. Hwang fulltrúa. kínversku stríðsstjórnarinnar í
. London, ásamt syni hins síðamefnda. Var myndin tekin í New York,
er þeir vom á leið til Englands frá Kína. Hwang hefir tekið þátt
í stríðinu við Japani frá byrjun og skotið niður níu japanskar
flugvélar.