Vikan


Vikan - 03.02.1944, Síða 7

Vikan - 03.02.1944, Síða 7
VIKAN, nr. 5, 1944 7 Hafnarfiörður. Framhald af bls. 3. Víg-sla sundlaugarinnar í Hafnarfirði. Sundlaugin er hið veglegasta mannvirki og bæn- um og þeim mönnum, sem starfað hafa að því að koma henni upp, til mikils sóma. Hún er búin að vera nokkur ár í byggingu, sem vonlegt er, en 29. ágúst síðastliðið sumar var hún vígð. Stærð laugarþróarinnar er: 25 m. á lengd og 8,4 m. á breidd. — (Myndina tók Guðbjartur Ásgeirsson). eignum konungs eða kirkjunnar. 1603 komst Hafnarfjörður í hend- ur dönskum einokunarkaupmönnum. Á árunum 1752—1757 lagði Danakonungur jörðina Hvaleyri til „Nýju innréttinganna,“ og var þar þá höfn fyrir fiskiduggur. í Hafn- arfirði voru fyrstu þorskanetin lögð á íslenzkum fiskimiðum árið 1753. I lok einokunartímabilsins var Hafnarfjörður mesta fiskihöfn landsins. En Hafnarfjörður var ekki í hópi þeirra verzlunarstaða, sem veitt var kaupstaðarréttindi 17. nóvember 1786. ,,Að undanförnu hafði í raun og veru staðið þögul barátta um það, hvort Hafnarfjörð- ur eða Reykjavík ætti að verða mesti verzlunar- og fiskibær lands- ins.“ En Reykjavík varð hlutskarpari, ekki þó vegna hafnarinnar, heldur af ýmsum öðrum ástæðum, sem hér verða ekki greindar. Eftir mikla niðurlægingu í verzlunarmálum Hafnarfjarðar hóf Bjarni Sívertsen starfsemi sína þar um 1793. Var hann dugnaðar- * , . . ,> Sjúkrahús og kirkja kaþólska trúboðsins. Sjúkrahúsið var vígt 5. maður hmn mesti og brautryðjandi, og kom m. a. upp skipasmiða- september 1926 og bætti úr mjög brýnni þörf. Þórður læknir Edilons- stöð í Hafnarfirði. Hann andaðist í Kaupmannahöfn 1833. ^son hafði oft hreyft því, hve mikii væri nauðsyn á, að hærinn eign- Verður nú þessi saga ekki rakin lengur, því að svo margir mundu^ ^húsíin^var^um'tímT notaðim Jem^sjúkmhús. Kjallan 1[.iaipræð,sherS- koma til hennar, að ekki yrði rúm fyrir þá í þessari stuttu grein. En margt dugnaðar- og ágætismanna hafa skipað virðulegan sess í verzlunar- og framfaramálum Hafn- arfjarðar. Hafnarfjörður fékk kaupstaðarréttindi árið 1908. Hið mikla hús Flensborgarskólans, sem gnæfir yfir bænum, var byggt 1937 og stóra og vandaða sundlaug lét bærinn gera síðastliðið sumar. Hellisgerðis, hins fagra trjá- og blómagarðs í Hafnarfirði, hefir áður verið getið í forystugrein hér í blaðinu (nr. 28, 15. júlí 1943). Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er nú skipuð þessum mönnum: Ásgeir G. Stefánsson, Bjarni Snæbjörns- son, Björn Jóhannesson, Emil Jónsson, Guðmundur Gissurarson, Kjartan Ólafsson, Loftur Bjarnason, Stefán Jónsson og Þorleifur Jónsson. Þingmaður kaupstaðarins er Emil Jónsson vitamálastjóri. Berg- ur Jónsson er bæjarfógeti og Kristján Arinbjarnar héraðslæknir. Ásgeir G. Stefánsson er framkvæmda- stjóri bæjarútgerðarinnar. Simdlaug' Halnarfjarðar. Iþróttaáhugi er mikill í Hafnarfirði og er langt síðan ýms fé- lög tóku að ræða þörfina á því að koma upp sundlaug fyrir bæinn og samþykkja að styðja að sundlaugarbyggingu. Nefnd fjalla'öi lengi um málið og loks var samþykkt að hyggja sjósundlaug á Krosseyrarmölum. (Myndina tók Guðbjartur Ásgeirsson). Friðjón Skarphéðinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarð- ar, er fæddur 15. apríl 1909 að Oddsstöðum í Dala- sýslu, sonur Skarphéðins bónda Jónssonar og Kristín- ar Pálmadóttur konu hans. Friðjón varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1930 og tók lög- fræðipróf í Háskóla íslands í ársbyrjun 1935. Var fulltrúi hjá bæjarfógetanum í Hafnarfirði til loka þess árs. Var kosinn bæjarstjóri Hafnarfjarðar 1938 og hefir verið það síðan. Friðjón er kvæntur Maríu Egilson, dóttur Þórarins Egilson, útgerðarmanns í Hafnarfirði. Vélsmiðja Hafnarfjarðar h.f. Strandgötu 50. — Sími 9145. — Hafnarfirði. Rennismíði Plötusmíði Eldsmíði Logsuða Rafsuða Málmsteypa Framkvæmir hverskonar járnsmíði, véla- og skipaviðgerðir, ennfremur hita- og kælilagnir. Áherzla lögð á vandaða vinnu.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.