Vikan


Vikan - 03.02.1944, Blaðsíða 13

Vikan - 03.02.1944, Blaðsíða 13
VIKAN, nr. 5, 1944 13 TATJA1UA. Framhald af bls. 4. hátíðahöldum. Meðfram veginum að höll- inni stóðu bændurnir og fögnuðu þeim, kirkjuklukkurnar hringdu, og gamli furst- inn stóð sjálfur á hallartröppunum og tók á móti þeim með opnum örmum. Hann þrýsti þeim báðum að brjósti sér og leiddi þau því næst inn í borðsalinn, þar sem hátíðarmáltíð var reiðubúin. Þau settust við borðið og fengu hinar dýrlegustu kræsingar. I kringum salinn stóðu kósakk- ar með blys í höndum, eins og Nicholas mundi eftir, að hafði verið einu sinni í æsku hans, þegar keisarinn hafði verið á veiðum og gist hjá föður hans. Nicholas var hrærður yfir móttöku föður síns og þessari dýrlegu máltíð þeim til heiðurs. Hann gleymdi öllum ógnunum og móðgunum gamla mannsins, hann gleymdi ömurlegu dögunum í Moskva, þegar hann og Tatjana höfðu bæði soltið og verið kalt. Nú var því öllu lokið, og hann horfði hrifinn á hið fallega og hraustlega andlit konu sinnar, um leið og gamli furstinn sneri sér að henni og spurði: „Eruð þér nú hamingjusamar, furstafrú?“ Nicholas drakk með föður sínum, og gamli maðurinn fylti glas hans jafnóðum og það var tæmt. Nicholas var bæði svang- ur og þyrstur eftir ferðalagið, og nú borð- aði hann eins og hann gat. Stuttu síðar fann hann til einkennilegs sljóleika í höfðinu, hánn varð máttlaus og ruglaður; hann reyndi að berjast við þessa undarlegu þreytu, en varð að síðustu að láta undan; hann hneig fram á borðið og sofnaði fast. Alt í einu var hann vakinn af skerandi angistarópum. Hann leit í kringum sig. Hann var einn í salnum, en að utan barst örvæntingarfull kvenmannsrödd, sem hrópaði hátt á hjálp. „Nicholas! Nicholas! Komdu! — Þeir drepa mig!“ Hann skjögraði að glugganum og varð allt í einu algáður af þeirri sjón, sem hann sá: Tatjana, nakin niður að mitti, var bundin við staur í miðjum hallargarðinum, og hópur drukkinna kósakka hýddu konu hans með hnútasvipum sínum. Gamli furstinn stóð hjá og horfði á og djöfullegt bros lék um hið grimmdarfulla andlit hans, um leið og hann hrópaði: „Eruð þér nú hamingjusamar, fursta- frú? Eruð þér hamingjusamar ?“ Nicholas greip hlaðna byssu, sem hékk á veggnum og miðaði á föður sinn. Það heyrðist hvellur, og gamli furstinn féll niður dauður. Tatjana lá í marga mánuði milli heims og helju, en að lokum sigraðist hún á dauðanum, og hún náði sér aftur. Roumanieff fursti seldi eignir sínar og fór með konu sinni af landi burt. Þau bjuggu í nokkur ár í París, þar sem hún dó fullkomlega hamingjusöm. Roumanieff fursti hefir aldrei síðan stigið á rússneska grund. Skrítlumyndir. ~7 t Hann: ,,Við verðum að spara meira og' hugsa um framtíðina. Hvað verður af þér, ef ég dey?" Hún: Ég verð hér. Spurningin er -— hvað verður um þig?“ Hún: „Stundum óska égþess, að ég sé karlmaður." Hann: „Hvenær?" Hún: „Þegar ég geng fram hjá hattabúð og hugsa um það, að væri ég karlmaður, gæti ég gert konuna mína hamingju- sama með því að gefa henni nýjan hatt." „Þú segir, að ég sé fyrsta fyrirmyndin, sem þú hefir kysst?" „Já.“ „Hvað hefir þú notað marg- ar fyrirmyndir hingað til?“ „Fjórar: Epli, tvær appel- sínur og blómsturvasa." Maðurinn með flughjálminn er hinn vel- þekkti kvikmyndaleikari Clark Gable. Hann er liðsforingi í ameríska hemum. ^'111111111IIIII IjMllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltllllllllllllllll III1111111111111II >>, I DÆGRASTYTTING I Sigurfræði, sem lesast skulu á móti reiði. Sigurfræði vil ég syngja og tala; þau skulu mér til sigurs og frelsis vera: Signi ég mig af bræði, signi ég mig og mín klæði, signi ég mig fram að gá, signi ég mig upp að stá. Sigur sé mér í höndum, sigur sé mér í fótum, sigur sé mér í öllum liðamótum. Bak mitt af járni, fætur mínir af stáli, höfuð mitt af hörðum hellusteini, hendur mínar harðar í greipum. Enginn maður verði mér svo sterkur, megn eða reiður, að mér megi skaða gjöra eða mein. (Úr þjóðsögum J. Ámasonar). Orðaþraut. ARGA ASKA I Ð A R LINA ÆRIR ORG A SK AR OLL A Fyrir framan hvert þessara orða skal setja einn staf þannig, að séu þeir stafir lesnir ofan frá og niður eftir myndast nýtt. orð, og er það ltarl- mannsnafn. Svar á bls. 14. Öfugmælavísur. í eldi sviðna engin hár, ísinn logar vatna, eitur er gott í öll þau sár, sem eiga fljótt að batna. Blindir dæma bezt um lit, bárur í vindi þegja, í kálfunum er kóngavit, kýmar frá mörgu segja. Heyvinnan. Einu sinni var bóndi á bæ, hann var auðugur að fé og starfsmaður mikill. Hann átti dóttur eina bama, hún var gjafvaxta orðin, er þessi saga gjörðist. Efnileg var hún og vel að sér og starfskona svo mikil, að menn undruðust, hvaS miklu hún gat afkastað. Það vissu menn, að hún hafði eitt sinn heitið því, að eiga engan mann nema þann, sem hún hefði ekki við að raka eftir i túni. Etnu sinni kemur förukarl til bónda í byrjun túnsláttar og falar kaupavinnu. Bónda lízt ekki vel á manninn, en lætur þó til leiðast að taka hann einn eða tvo daga fyrst og reyna hahn. Fara menn nú að hátta um kvöldið, þvi liðið var á dag, þegar maðurinn kom, og er förumaðurinn látinn sofa hjá lúkugati. Sofa menn nú af um nóttina, og um morguninn fára allir á fætur til sláttar. Nú líður fram að dagmálum, og vaknar ekki förumaður. Búrdyr voru undir loft- inu nálægt rúmi því, sem hann svaf í. Þegar búið er að mjalta, skellir húsfreyja búrhurðinni svo fast, að förumaður rumskar. Fer hann fram af þessu að klæða sig, en er þó mjög lengi að þvi, og um hádegi kemur hann út og signir sig, dregur orf með læri all-óliðugt og spyr bónda, hvar hann eigi að bera niður. Honum er visað í völl í túninu, sem Vítisvöllur var kallaður; er nú ekki laust við, að sláttumenn hendi spaug að kaupamanni. Fer hann nú að slá. Menn taka eftir því, að fljótt stækkar bletturinn, svo alla undrar, því að jörð þótti ætíð óþjál i Vítisvelli. Um mið-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.