Vikan


Vikan - 03.02.1944, Síða 15

Vikan - 03.02.1944, Síða 15
VIKAN, nr. 5, 1944 15 PÓSTURINN. Framhald af bls. 2. með dökkbrúnt hár, gráeygð og frek- ar ljósa húð, en rjóð í kinnum. Ég þakka þér svo fyrir gömlu árin og óska þér góðra ára. Hafdís. Svar: Rauðir litir munu fara þér ágætlega og brúnir. Annars munu flestir litir fara þér vel, nema grátt. Rvík, 28/1 '44. Heiðraða Vika! Ég sá í ,,Póstinum“ um daginn að þið voruð að auglýsa eftir vísuparti, og sendi ég ykkur hér með alla vtsuna eins og ég hefi lært hana, en hún er svona: Þegar bálsins logar iækka, þegar leggst að niðdimmt kveld, og i næðing næturkulsins getur neistinn tendrað eld. V i ð 1 a g : Gæt þin bam, fær þig fjær, fyr en þig varir eldingin slær. Enginn getur sefað slíkar sorgir manns. svona er elzta dóttir tatarans. Þetta. mun vera þýðing á norsku vísunni: ,,Se min Xld i Mörket brænder . ..“, sem er í nótnahefti, er oefnist „Taterviser,“ og margir eiga, og fékkst í Hljóðfærahúsinu hér fyrir stríð. S. Akureyri 16/1 1944. Kæra Vika! Ég sé þú veizt svo margt, og svar- ar öllu svo greinilega. Nú langar mig að biðja þið að grenslast eftir fyrir mig hvað þessar harmonikur kosta: Hohner 4 kóra 120 bassa, Pietro 3 kóra 120 bassa og Estrelle 2 kóra 120 bassa. Verzlunin Rin Njálsgötu 23 auglýsti þær um daginn. Með þökk fyrir svarið. Þinn Maggi. Við sendum verzluninni fyrirspurn- ina og hún svaraði á þessa leið: Hohner 4 kóra 120 bassa kr. 2.600. Pietro 3 kóra 120 bassa kr. 2.300. Estrella 2 kóra 36 bassa kr. 950. Hohner 12 bassa kr. 600. 16/1 ’44. Kæra Vika! Viltu gjöra svo vel og segja okkur eftir hvem þessi vísa er: Hvað gefur oss beztu brosin og tárin og blómin fegurst í hjartans reit? Hvað skín á bak við skuggana og tárin á skilnaðarstund ? Það er ástin heit. Þú lifandi máttur frá ljóssins veldi, þú Ijósið, sem breytir nótt í dag. Þú ert lífsins ómljóð frá árdegi að kveldi útfararsöngur og vöggulag. Með fyrirfram þökk um lausn á þrætu okkar. Stína og Sveina. Svar: Getur einhver lesandi blaðs- ins sent okkur svar við þessu? Svar til „Einnar 17 ára“: Ætli við sleppum því ekki héðan af að gera það, sem þér talið um! Fyrirliggjandi í miklu úrvali fác&laol fííöb JímaAít T&tQjönfy Sent gegn póstkröfu. Bókaverzlun Böðvars Sigurðssonar Hafnarfirði. Sími 9315. Vélsmiðjan KLETTURh/f Vesturgötu 22—24. Hafnarfirði. — Sími 9139. Framkvæmum allskonar: Járnsmíði og Vélaviðgerdir logsuða — Rafsuða Smíðum botnvörpuhlera og allt tilheyrandi botnvörpu. HREINLÆTIS- VÖRUR Þvottasnúrur — Þvottaklemmur — Gólfklútar — Rykklútar — Bíiaþveglar — Brauðhnífar — Kaffipokar og hingir — Burstavörur — Vatnsglös — Krydd- glös — Fataburstar — Hárburstar — Tannburstar — Hárgreiður — Rak- Jf kústar — Oatine hreinlætisvörur. Verzl un J A&jÓjcLóa SioMsm Sími 4205 »»»»>»»»»»»»»»»»:♦»»»»»»»»»>>

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.