Vikan - 09.03.1944, Side 2
2
VIKAN, nr. 10, 1944
Pósturinn
Kœra Vika mín!
Þú sem getur svo margt, vilt þú
ekki vera svo góð og komast að því
hjá Útvarpsráði af hverju við fáum
aldrei að heyra í okkar beztu söngv-
urum eins og Stefanó Islandi og Ein-
ari Kristjánssyni. Eins hvort TJt-
varpið getur ekki hætt þeim leiða
sið að vera að tilkynna hverjir og
hverjar séu sextíu- sjötíu- og áttatíu-
ára o. s. frv. Þessi ósiður tíðkast ekki
í öðrum löndum, nema þegar þjóð-
höfðingjar eiga í hlut. Vona eftir
svari Vika mín, vertu blessuð.
Þin Vordís.
Svar: Bréfið birtum við í þeirri
von, að það berist fyrir augn réttra
hlutaðeiganda.
Svar til „Þreyttrar":
Það getur mjög vel stafað af þvi,
sem þér skrifið um í bréfinu. En við
viljum ráðleggja yður að leita læknis
fyrr en síðar.
Reykjavík, 2. marz 1944.
Kæra „Vika“.
Ég hefi komist að raun um að þú
leysir ágætlegá úr vandamálum
margra. Ég hefi undanfarið veitt því
athygli, að „eina 17 ára“ dauðlangar
til þess að kynnast einum strák, sem
hún er hrifin af. Oftast hefi ég verið
sammála þér, en þarna vorum við
ekki sammála. Ef ég má skipta mér
af þessu, þá finnst mér að hún ætti
að reyna að komast að hvað hann
heitir og hvar hann eigi heima. Þegar
hún væri búin að komast að því, eða
jafnvel fyrr, þá finnst mér að hún
ætti að hætta á að heilsa honum og
vita, hvemig færi. Þetta eru mín ráð.
Með beztu þökk fyrir birtinguna.
„Ráðagóður".
P.s. Ég sendi þér ábyggilega fleiri
bréf seinna um eitthvað málefni.
Kærar kveðjur.
Sveit Skíðafélags
Siglufjarðar er
vann „Slalombikar
Litla skíðafélags-
ins" 1934: Guð-
mundur Guðm-
undsson, Jón Þor-
steinsson, Ásgrim-
ur Stefánsson og
Haraldur Pálsson.
Svar: „28. júní 1914 var Franz
Ferdinand, bróðursonur Franz Jóseps
Austurríkiskeisara, myrtur í Sera-
jevo í Bosniu ásamt konu sinni. Hann
var ríkiserfingi Austurríkis og Ung-
verjalands. ... Austurríkismenn og
Ungverjar gerðu viðtækar kröfur til
Serba," sem gengu að sumum kröf-
um þeirra, „en ekki hinum víðtæk-
ustu, því að þeir treystu stuðningi
Rússa. Austurrikismenn og Ungverj-
ar sögðu þá Serbum stríð á hendur
(28. júlí). Drógust Rússar siðan inn
í stríðið með Serbum, en Þjóðverjar
með Austurríkismönnum og Ungverj-
um. Þá hófst og styrjöld milli Þjóð-
verja og Frakka. Fóru Þjóðverjar
með her manns inn í Belgíu til að
koma að Frökkum þar, sem varnir
þeirra voru veikastar. Bretar höfðu
í fyrstu reynt að miðla málum, og
meðal almennings þar voru margir
andvígir því að taka þátt í styrjöld-
inni, en er innsárin i Belgiu hófst,
sögðu Bretar Þjóðverjum stríð á
hendur (4. ágúst). . .. Tyrkland gekk
í lið með Þjóðverjum 1914 og Búlga-
ría 1915.“ Italir gengu í lið með Bret-
um og Frökkum 1915, og á sömu
leið fór um Rúmeníu, Svartfjalla-
land, Albaníu, Grikkland og Portúgal.
Japanir sögðu Þjóðverjum stríð á
hendur 1914 og Bandaríkin 1917.
Kína, Síam og Libería gengu einnig
í lið með bandamönnum.
Blóma-
og matjurtafræið er komið.
í Litla blómabúðin
; Bankastræti 14. — Sími 4957.
niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiii
Höfum til:
HICKORY-sltí ði,
HICKORY-skíði með stálköntum,
SKlÐABÖND (gormabönd),
SKlÐASTAFI.
Trésmidjan FjöSnir
iiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimmiimimimmmiiiiiiiiiiiiiimimmmmmimi)»:
Kæra Vika!
Þakka þér kærlega fyrir allar
skemmtilegu stundimar, sem þú veit-
ir mér og nú síðast fyrir myndirnar
og greinina um Vestur-lslendinga. Ég
er afskaplega hrifinn af kvæðinu
Sandy Bar eftir hann Guttorm. Hann
er mikið skáld. En á einum stað í
kvæðinu var Sandy Bar með litlu
„b“-i. Er það ekki vitlaust? Það
finnst mér! Geturðu bent mér á ein-
hverjar bækur um Vestur-lslend-
inga? B. K.
Svar: Litla „b“-ið var prentvilla.
Hvað bækumar snertir er um marg-
ar að ræða, en benda má á Tímarit
Þjóðræknisfélagsins, Vestur um haf,
Minningarrit um 50 ára landnám Is-
lendinga í Norður-Dakota, og Sögu
Islendinga i Norður-Dakota, eftir T.
Jackson.
Fróða Vika!
Viltu segja mér eitthvað um upp-
hafa heimsstyrjaldarinnar 1914—
1918?
Kæra Vika!
Hvað getur þú sagt okkur um leik-
konuna Annabella, sem lék í kvik-
myndinni Suex?
Tvær forvitnar.
Svar: Annabella er fædd í París á
Frakklandi 14. júní 1912. Hún er
brúneygð og ljóshærð. Henni þykir
gaman að garðyrkju og hundum.
Hún er gift Tyrone Power, sem nú
er í flota Bandaríkjanna.
tírval.
Tímaritið Urval er nýkomið út,
mjög vandað að efni og frágangi eins
og áður. Þetta er 1. hefti þriðja ár-
gangs. 1 heftinu kennir margra og
ólíkra grasa: „Er jass tónlist?“,
„Þegar bami Lindbergs var rænt“,
„Áburður úr sorpi", „Parisardaman",
„Napoleon Bónaparte", „Upphitun
með geislum", svo að nokkrar grein-
ar séu nefndar. Ritstjórinn, Gísli
Ólafsson, segir m. a. í „Til lesend-
anna —“: „„Bókin" í þessu hefti er
með nokkuð öðmm hætti en verið
hefir fram að þessu. Hún er ævisaga
merks vísindamanns, tekin upp úr
ritverki miklu, sem heitir „Living
Biographies" og flytur ævisögur
flestra stórmenna heimsins á sviði
heimspeki, vísinda, trúarbragða,
stjórnmála og hvers konar lista.
Ætlunin er, að fyrst um sinn verði
,,bókin“ aftast i hverju hefti slík
ævisaga, að minnsta kosti öðru
hvoru, og er ekki að efa, að slíkt
verður vinsælt, því að ævisögur mikil-
menna er skemmtilegur og hollur
lestur.“ Bókin í þessu hefti er um
Einstein og fylgir stór og góð mynd
af honum.
Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5004, pósthólf 36j.