Vikan


Vikan - 09.03.1944, Blaðsíða 6

Vikan - 09.03.1944, Blaðsíða 6
6 VTKAN, nr. 10, 1944 XX. KAFLI. Eftir nótt kemur dagur. Ljósið frá lampanum, sem hjúkrunakonan hafði kveikt á, varpaði daufri birtu á andlit Sergiu. Mary beygði sig yfir hana, og henni fannst hjarta sitt ætla að hætta að slá, þegar hún horfði á hið marmarahvíta andlit, þvi að Sergia leit nú á þessari stundu út eins og hún væri dáin, en hinn reglulegi andardráttur róaði Mary, og eftir að hafa litið nokkra stund á þetta fallega, þjáða andlit, dró hún sig í hlé, um leið og hún hugsaði um, hvemig hún ætti að gera Sergiu heilbrigða aftur. Mary var viss um, að þó hún fengi ekki nema dálitla von um að Julian kæmi aftur, þá myndi hún hressast. En ef hann kæmi svo ekki? Þá væri það miskunnarlaust að segja nokkuð. Hún ákvað svo loks, að hún skyldi ekki segja neitt fyrr en hún hafði talað við Allan. Við hugsunina um þann mann, sem hún elskaði, brá fyrir ljómandi brosi á andliti Mary og um nokkra stund gleymdi hún öllu öðru. En þegar hún, rétt á eftir, var kölluð niður i dagstofuna til hans, hugsaði hún þó fyrst og fremst um Sergiu. „Heldurðu ekki, Allan,“ spurði hún, ,,að ég megi gefa Sergiu dálitla von, þegar hún vaknar? Ég trúi því statt og stöðugt, að Julian komi, þegar hann fréttir þetta, heldur þú það ekki?“ „Jú; auðvitað kemur hann,“ sagði Allan sann- færður. „Julian hefir mjög sterka skyldutilfinn- ingu.“ Allan var nú ekki alveg viss um, að Julian kæmi, hann þekkti hið ósveigjanlega stórlæti vinar sins, en hann gat ekki fengið af sér að segja það við unnustu sína; hann vonaði lika að hægt væri að tala um fyrir Juliani. Og hann sýndi svo Mary skeyti, sem hann hafði skrifað og ætlaði að senda Juliani. Það var langt og ítarlegt, og Mary var sérstaklega ánægð yfir tveim síð- ustu línunum, sem hljóðuðu þannig: „Sergia er veik og við Mary önnumst alveg •am hana. Við giftumst þess vegna eins fljótt og unnt er til þess að geta tekið hana að okkur. Ég held það væri bezt fyrir okkur öll, ef þú kæmir heim.“ „Hann hlýtur að vera óvenjulega heimskur, ef harnn skilur þetta ekki rétt,“ sagði Sir Allan, og Mary leit upp til hans með tárvot augu. „En hvað þú ert góður! Ó, mikið ertu góður!“ sagði hún. „Mér hafði ekki dottið í hug, að við gsetum sent skeyti, og ég mundi vera hrædd um Sergiu, ef það liði alltof langur tími þangað til við heyrðum frá Juliani." „Þú verður að geyma tár þín, þangað til á morgun,“ sagði Allan og kyssti hana, „og ég er svo eigingjam, að það mundi vera mér huggun að vita, að kærastan mín gréti mín vegna. Hefir þú ekki hugsað neitt um móður þína?“ hélt hann áfram, þegar Mary leit spyrjandi á hann. „Finnst þér ekki, að ég verði að segja henni frá því, að ég hafi rænt frá henni þvi dýrmætasta, sem hún á? Og má ég þá líka spyrja hana að því, hvort hún hafi á móti því, að við giftum okkur eftir hálfan mánuð?“ „Ef — ef þú heldur að það sé bezt vegna Sergiu," stamaði Mary og leit undan — „þá —.“ „Það er áreiðanlega bezt fyrir Sergiu," sagði hann ákveðinn, „og líka fyrir annan,“ hvíslaði hann og kyssti hana. „Við skulum gifta okkur í kyrrþey í litlu kirkjunni hérna, svo skulum við fara í burtu í vikutíma eða eða tvær. Þegar við svo komum aftur, tökum við Sergiu með okkur til Parísar og þaðan til Nizza eða annars staðar, þar sem er sól og birta — hún má sjálf ráða því, hvert hún vill fara, því okkur er alveg sama hvert við förum, bara að við séum saman, elskan mín, er það ekki?“ „Mikið ertu góður, Allan,“ sagði Mary aftur. „Mér þætti gaman að vita, hvort þú segir það eftir nokkur ár,“ sagði hann glettnislega. „Ég vona, að ég lifi þá og geti sagt það. Ó, Allan —“ sagði Mary allt í einu. — „Ég er svo hamingjusöm, að ég vildi óska, að ég gæti lifað að eilífu!“ „Þú tilheyrir þá ekki þeim iítillátu? Mig grun- aði ekki, að þú værir svona fjörug." Mary sagði honum nú, að hún yrði að fara aftur til Sergiu og Sir Allan sleppti henni loks. Hann fylgdi henni með augunum, þegar hún hljóp upp tröppumar, svo sneri hann sér við og fór, um leið og hann spurði sjálfan sig, hvort hann ætti skilið alla þá hamingju, sem honum hafði hlotnast. „Sergia, ertu vöknuð ?“ „Já, Mary.“ Ködd Sergiu var mjög dauf, og Mary kraup niður við rúmið, svo að Sergia þyrfti ekki að leggja eins mikið á sig við að tala. „Rödd þín er svo þreytuleg, Sergia," sagði hún. „Og Cameron læknir hélt samt að þú mundir hafa gott af því, að sofa.“ „Já, ég heyrði að hann var hér,“ sagði Sergia kæruleysislega; „en hann getur jafnlítið hjálpað mér og manninum, sem hann var að tala um, þegar hann hélt að ég svæfi — maðurinn, sem hafði misst — allt — allt, sem hann átti!“ „Heyrðirðu hvað hann sagði?“ hvíslaði Mary. „Já, ég heyrði það, og ég hugsaði, að engin orð væm sannari en þau — ég hefi eins og þessi maður misst allt — allt! Ó, Mary, ef þú vissir, ef þig grunaði, hvers líf ég hefi eyðilagt, þá mundir þú hata mig.“ Mary kyssti hið föla, fagra andlit og þrýsti hana fastar að sér. „Nei, Sergia mín,“ sagði hún blíðlega „ekkert í heiminum gæti fengið mig til að hata þig — þér á ég að þakka alla mína hamingju." Sergia leit undrandi á Mary. „Hvaða hamingju hefi ég fært þér eða nokkmm öðrum?“ spurði hún biturlega. „Nei, allt, sem ég kem nálægt, visnar, og ef þú værir vitur, þá mundir þú hata mig og flýja." „Sergia,“ svaraði Mary, „þú mátt ekki tala svona. Þú ert falleg og stórlát, og þú átt eftir að færa mörgum gleði eins og mér. Hugsaðu þér, Sergia, Allan elskar mig, ég á að verða eigin- kona hans, og hann hefir sent Juliani skeyti og beðið hann um að koma strax heim. Ég veit, að þegar hann heyrir —.“ Mary sagði ekki meira, því að nú hneig Sergia aftur í örmum hennar, náföl. Mary horfði á hana utan við sig af hræðslu og sneri sér svo að Cameron lækni, sem í því, kom inn í stofuna. „Það er liðið yfir hana,“ sagði hann, um leið og hann beygði sig yfir Sergiu. „Hvað hafið þér sagt við hana?“ „Ég sagði henni að — nokkur, sem henni þykir mjög vænt um, kemur bráðum heim til Englands aftur. A1 — Sir Allan sagði, að ég mætti gjaman segja henni frá því;-við héldum að það myndi gleðja hana.“ „Nú, já, góðar fréttir gera sjaldan nokkurn skaða,“ sagði Cameron og kinkaði kolli „og svo er það bezt að þér endurtakið fréttina fyrir hana; en svo megið þið helzt ekki tala meira í kvöld.“ „Mary, Mary, elsku vinkona mín! Er ég í raun og veru vakandi? Er ég enn þálifandi? Er-erþað satt, sem þú sagðir mér eða er þetta allt saman draumur?" Sergia var nú aftur komin til sjálfs sín og Mary greip um litlu, hvítu hendumar hennar og beygði sig yfir hana. „Það er satt — það er áreiðanlega satt, Sergia mín,“ með fullvissu í röddinni. Allan elskar mig og hann vill, að við giftumst eftir hálfan mánuð. Hann vill ekki einu sinni bíða eftir því, að Julian komi, og það er þín vegna, Sergia. Við höfum nefnilega ákveðið, að taka þig að okkur og gæta þin vel á allan hátt, ef þú vilt leyfa okkur það." „Heldur þú — heldur þú — að hann muni koma — koma hingað aftur?“ spurði Sergia lágum rómi, en það var eftirvæntingar- og harmhreimur í röddinni. Erla og unnust- inn. Láki: Jæja, hvemig líkaði þér fjallgangan, Oddur? Oddur: Ó, hvað ég hlakka til að koma til Erlu Oddur: Það er hræðilegt að klifra um fjöllin með þessa byrði. Ég og sitja í góða hægindastólnum hennar! held ég sé hryggbrotinn! Maðurinn: Sjáðu Marta! Hvað gengur að manninum? Konan: Ætli hann hafi ekki tapað einhverju! Oddur.- Æ! Æ! Bakið á mér! Telpan: Ég vil fara á hestbak! Erla: Hún er búin að bíða eftir þér í allan dag. Hún var farin að gráta, af því hún hélt þú kæmir ekki! Hún segir, að þú sért bezti hesturinn hennar!

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.