Vikan - 09.03.1944, Síða 8
8
VTKAN, nr. 10, 1944
Rasmína: Guð minn góöur! Hvað er að sjá andlit-
iS á mér? Ég er orðin rauðflekkótt í framan!
Sóttkví og sæludagar!
Rasmina: Margrét! Hringið í lækninn! Sjáið
andlitið á mér!
Margrét: Ég get hringt í lækninn — en það mætti
borga mér mikið fyrir að horfa lengi á yður!
segið frúnni, að ég komi strax! Sælar!
Kalli keila: Þú segir, að konan þin hleypi þér
•kki út? Þú ættir að eiga konu eins og mín er —
hún rekur mig á dyr!
Gissur: Ég býst ekki við að geta komið til ykkar
1 kvöld — ég á að.fara í leikhúsið með Rasmínu.
Rasmína: Hvað? Er ég búin að fá mislinga? Er
það mjög alvarlegt, læknir? Ég ætlaði í leikhúsið
í kvöld!
Læknirinn: Mjög alvarlegt er það ekki — en þér
megið ekkert fara út — mislingar eru smitandi, eins
og þér vitið!
Læknirinn: Þér megið ekki fara út úr húsinu —
það er í sóttkví — mér þykir þetta leitt —.
Eldhússtúlkan: Og ég sem var búin að lofa &ð
hitta unnusta minn — hann er á skipi, sem fer í
kvöld!
Gissur: Það er hart að verða að fara í leikhúsið,
þegar mann langar til að leika sér með félögum
■ínum!
Læknirinn: En hvað ég var heppinn að hitta yður,
Gissur! Þér megið ekki fara inn í húsið yðar —
það er í sóttkví!
Gissur: Segið mér þetta aftur — en hvað það
hljómar fallega!
Læknirinn: Þetta er auðvitað mjög bagalegt
fyrir yður! En þér megið til með að flytja á
hótel, þangað til ég létti sóttkvínni. Þér hringiO
í konuna yðar frá hótelinu.
Gissur: Þér eruð dásamlegur, læknir! Ég þyrftí
að semja við yðúr um að verða heimilislæknir
minn!
Rasmína: Já, Gissur minn, finnst þér þetta ekki Gissur: Já, elsku Rasmína mín! Þetta
hræðilegt ? Það hlýtur að verða óskaplega ejnmana- verða mestu leiðindadagar! Ég hlakkaði
legt fjrrir þig að vera á hótelinu — en, sem betur svo til að fara í leikhúsið!
fer, stendur sóttkvíin ekki nema nokkra daga!
Eldhússtúlkan: Ég er ekkert á móti því að fá
mislinga — en að vera lokuð inni á fridegi, það er
ósvífni!
Þjónninn: Hringduð þér, herra?
Gissur: Já, — meiri ís, fleiri glös, vindla og sígarettur!
Þetta skulu verða sæludagar!
Konni kroppur: Hér er svei mér verandi!
Bjami blái: Þú hefir aldrei séð teppi á gólfi fyrr, ha?