Vikan


Vikan - 12.04.1945, Side 2

Vikan - 12.04.1945, Side 2
2 VTKAN, nr. 15, 1945 Pósturinn I Kæra „Vika“! Við sitjum hér þrjár ungar stúlk- ur á Fáskrúðsfirði, sem langar mjög mikið til að vita örlítið um framtíð okkar, en hér er því miður engin spákona, sem hægt er að flýja til. Eln við höfum heyrt getið um spákonu, við vitum ekki hvað hún heitir, en hún er frá Siglufirði, og er víst sér- stök í sinni röð, segir sagan, hún hefir ferðast um mikinn hluta lands- ins til að spá fyrir fólk, en hefir ekki komið hingað til Fáskrúðsfjarðar, en við erum þó vissar um að ef hún kæmi hingað mundi aðsóknin ekki verða minni hér en annars staðar. Við vitum, „Vika“ litla, að þú hefir ráð undir rifi hverju og veizt kann- ske eitthvað um þessa konu. Kann- ske þú vildir hjálpa okkur og fá hana til að snúa sér hingað austur. — Ekki er sama hver er! Yngismeyjar. Svar: Ekki höfum við heyrt þess- arar ,,spi!'onu“ getið, en látum bréf- ið f>kka i „Póstinn“, svo að hún geti séð það og tekið málið til „vin- samlegrar athugunar". Kæra Vika! Mig langar að biðja þig að ráð- leggja mér, hvað ég á að gera. Ég er í skóla og er mjög hrifinn af stúlku sem er með mér í bekk, og langar mig mjög að kynnast henni vel, en ég er frekar óframfærinn. Ég vona að þú svarir mér vel, og þakka ég þér fyrirfram mjög vel fyrir svar- ið sem ég vona að komi í næsta blaði. Óframfærinn. Svar: Það er ekki auðvelt að gefa rétt ráð, þegar um svona persónuleg „vandamál" er að ræða. Við höldum að eitt ráðið sé að reyna að yfirbuga óframfæmina og gera tilraun til að komast að því, hvort stúlkunni er nokkuð líkt innanbrjósts og þér sjálf- um. En auðvitað verður þetta að ger- ast með fullri kurteisi og næ’-gætni, þvi að annars er ekki hægt að uúast við góðum árangri. 16. marz 1945. Kæra Vika! Getur þú frætt mig á, hvað kosta saxofónar, og hvar þeir fást, og hve margar tegundir eru til af þeim. Laggi. Svar: Saxofónar hafa ekki verið fluttir irm í lengri tíma, en í Hljóð- færahúsinu hafa öðru hvoru fengist notaðir Saxofonar og hefir verðið verið 2—3000 kr. Ýmsar tegundir eru til, Alt, Tenor o. fl. Kæra Vika mín! Þú leyhtir nú svo vel úr spurning- um mínum með bækumar, sem ég spurði þig um ekki alls fyrir löngu. Ég mætti þess vegna ekki biðja þig að spyrja fyrir mig eftir eftirtöldum bókum og hvað þær kosti hver fyrir sig. Bækurnar eru þessar. 1. Dularfulli Grámunkurinn. 2. Fundurinn í ferjuhúsinu. 3. Grímu- klæddi grímumaðurinn. 4. Svikamyll- an. 5. Ást og afbrýði. 6. Blóðhefnd. 7. Tómhentur. Með fyrirfram þökk fyrir svarið. Bókavinur á sjúkrahúsi. Svar: Þessar bækur fást a. m. k. í Bókaverzlun Guðm. Gamalíelssonar, (allar nema „Tómhentur") og kosta: 1. 10 kr., 2. 10 kr., 3. 20 kr., 4. 10 kr., 5. 20 kr. og 6. 12 kr. Flateyri 16. marz 1945. Kæra Vika mín! Mig langar að komast í bréfasam- band við pilt eða stúlku á aldrinum 16—18 ára. Ásmundur Guðmundsson, Flateyri við Önundarfjörð. Akureyri, 24, marz. Kæra Vika! Mig langar til að biðja þig að grennslast eftir því fyrir mig, hvort mekkanó fáist í bænum, númer hvað þau eru, í hvaða verzlunþau fást, og hvað þau kosti? 1. H. Svar: Eftir því, sem við komumst næst er mekkanó ekki til í Reykjavík núna. Kæra Vika! Ég er nýlega búin að gerast áskrif- andi að þér, og mér líkar prýðilega við þig. Mér þykir mjög gaman að síðunni um heimilið, en mig langaði til að það væri svolítið meira af tizkumyndum. Jæja, það er nú ekki vist að allir vildu það. En svo er að segja um fréttamyndirnar, mér finnst þær skemmtilegar, þegar þar eru myndir af fallegum leikurum, mér finnst svo gaman að leikurum. Og svo er eitt, sem mig langar mjög til, það er það að nýustu dansiögin væru birt í Vikunni. Það er ekki víst að þið getið uppfyllt þessa ósk mína. Ég held ég fari nú að hætta þessu klóri. Svo óska ég Vikunni alls góðs. Þin einlæg vinkona. Bogga. Kæra Vika! Ég hefi gerst kaupandi Vikimnar frá og með síðustu áramótum, og hefi ég í þeim 9 blöðum sem hafa borizt mér í hendur fundið mikinn fróðleik og margt skemmtilegt aflestrar. Þér veitist svo auðvelt að ráða ýmsar tor- skildar hugsanir. Mig hefir lengi lang- að til að vita frá hvaða landi úiið mitt er. Það er auðkennt: Bulova. Flyt ég þér hérmeð beztu þakkir fyrir væntanlegt svar, og óska þér allra heilla. Eyjarskeggi. Svar: tírið mun vera frá Ameríku, en verkið svissneskt. Frh. á bls. 15. Þessari hjúkrunarkonu, sem er úr her bandamanna á meginlandinu, finnst það hressandi, innan um hörmungar og eymd, að halda sér dálítið til. Vaniim er ríknr! Stína: Er það satt, að það hafi slitnað upp úr trúlofun ykkar Finna um helgina? Jóna: Já, og ég er búin að vera trú- lofuð tveimur öðrum í vikunni, en því er öllu lokið líka — maður hefir van- ist svo á að skipta, að maður er bú- inn að breyta til áður en varir. Vindla- og Cigarettukveikjarar — nokkrar tegundir, þar á meðal GLÓÐAR-kveikjarar. Það getur komið sér mjög vel að eiga kveikjara. — Lögur á þá og tinnusteinar. — Blýantur og kveikjari einn og sami hlutur. Sendur gegn póstkröfu. Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.