Vikan


Vikan - 12.04.1945, Qupperneq 8

Vikan - 12.04.1945, Qupperneq 8
8 VIKAN, nr. 15, 1945 Margt er manna bölið - Teikning eftir George McManus. Þórður: Ef þú værir búinn að vera eins lengi í hjónabandi og ég, Gissur, þá mundirðu ekki segja, að lifið væri leikur — Gissur: Ég átti við það, hvað mér finnst fólk vera skrítið og skal segja þér nokkur dæmi um það — Maður, sem þykist vera dýravinur, skilur hundana sína eftir í bíl, meðan hann sjálfur fer að horfa á kvikmynd — Maðurinn, sem alltaf ætlar vitlaus að verða, ef það kemur fyrir, að strætisvagninn er á eftir tímanum, fer aldrei á réttri stundu til vinnunnar — Konan: Vaknaðu maður! Vaknaðu! .Telpan: Hann er kannske dáinn — Snyrtimennið, sem er kurteisin sjálf, þegar hann er utan heimilis með konunni sinni, verður allur annar maður, strax og hann er kominn heim. Þá hrópar hann: Burstaðu hattinn minn! Hvar eru inniskómir? Komdu með tóbakið! Eru engar eld- spýtur til? Og nestið í ferðalögum nema flugunum! öllum þykir það vont Sá, sem stjómar samsætinu eyðir klukkutíma í að segja frá því, að enginn megi tala lengur en í fimm mínútur. Hann segir svo oft ,,að lokum“, án þess að hætta, að áheyrendum er að verða öllum lokið, þegar hann er búinn að ljúka sér af — Manni er boðið í samkvæmi til þess að skemmta sér — frúin segist eiginlega ekki hafa ætlað að syngja, en svo syngur hún og syngur — fólkið klappar eftir hvert lag — hún misskilur það og heldur áfram endalaust — Þegar maður ætlar að fá sér kaffisopa og eitt- hvað að borða, þá er hvorki bolli né diskur til óupp- þveginn — Konurnar hóta alltaf, þegar þær eru í illu skapi, að fara heim til mömmu — en þær sitja samt heima og fara hvergi, þrátt fyrir hótanirnar. 1 stað þess kemur tengdamamma og sezt upp á heimilinu, eigin- manni dótturinnar til afþreyingar! Fólk, sem þykist hafa litið inn, af því að það átti leið fram hjá og má ekkert vera að því að stanza, hangir allt kvöldið og fer ekki fyn- en einhvemtíma eftir miðnætti Fari maður í veitingahús til þess að fá sér mat eða kaffi, er ekkert líklegra en maður lendi við hliðina á einhverjum dóna, sem enga mannasiði kann og hefir hattinn og allt sitt háfurtask upp á borði — \ Og hvemig stendur á því, að minnsti maðurinn i hljómsveitinni spilar oftast á stærsta hljóðfærið?

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.