Vikan


Vikan - 12.04.1945, Page 13

Vikan - 12.04.1945, Page 13
VIKAN, nr. 15, 1945 13 Felumynd. „En hvað það er falleg stúlka, sem gengur þama!“ „Hvar? Ég sé ekki nokkum mann!“ e : | Dægrastytting | iitiiiitiiitaimiMimiiiiiiiumiiiiia uiiiiiiiiniiiiniitiiimiimiiiiiii*i>'k Austantórur. Jón Pálsson, fyrrverandi aðalféhirðir, er einn þeirra manna, sem óþreytandi hefir verið í þvi að safna þjóðlegum fróðléik, skrá allskonar efni af því tagi og bjarga því þannig frá glötun. Á ?inni löngu og starfsriku ævi hefir því safnazt hjá honum geysimikið af handritum. Hefir nú Víkingsútgáfan tekið að sér að gefa út eitthvað af safni þessu, en Guðni Jónsson magister að búa það undir prentun. Fyrsta heftið er komið út. Jón Pálsson er fæddur 3. ágúst 1865 að Syðra- Seli í Stokkseyrarhreppi. Eystra stundaði hann störf til sjávar og sveita, var verzlunarmaður i mörg ár og organisti og kennari, en fluttist um aldamótin til Reykjavíkur og hefir þar gegnt mörgum trúnaðarstörfum. Guðni Jónsson segir í formála m. a. um safn hans: . . . Handrit hans em nú orðin geysimikil að vöxtum og um harla sundurleit efni. En magn þeirra og megin eru þó hin þjóðlegu fræði. Þar sitja í fyrirrúmi þættir af merkum eða einkennilegum mönnum, frásagnir af ýmsum sögulegum átburðum, vinnubrögðum til lands og sjávar og sveita, ýmisskonar þjóðhátt- um og þjóðtrú og alþýðlegum reynsluvísindum. Þar er og allmargt þjóðsagna, sem eigi eru til annars staðar. Skrítlur af ýmsu tagi skipta þúsundum. Yfirleitt er safn þetta svo auðugt, að ekki sér högg á vatni, þótt af sé numið eitt hefti sem þetta er . . Þetta hefti hefst á þætti um Brand Magnússon í Roðgúl og niðja hans. Næsti þáttur er um Kolbein Jónsson í Ranakoti og fylgja honum athugasemdir eftir G. J. Siðan er all-langur kafli um Þorleif Kolbeinsson á Stóru-Háeyri. Þar eru og nokkrar sagnir um Þorleif, skrásettar af Árna Pálssyni prófessor. Þá eru „Veðurmerki og veður- spár í Ámessýslu" og svo eftirmáli höfundarins. Er þetta allt hinn skemmtilegasti fróðleikur og aðgengilegur almenningi. Það er frágangssök að reyna hér að lýsa efni þessarar bókar, svo mikið er í henni sitt af hvom tagi, en til fróðleiks skal þaðan tekin stutt mannlýsing úr einum eftirtektarverðasta kaflan- um: „ . . . Þorleifur á Háeyri var, sem áður segir, smár vexti, en gildur á velli, munnviður, með mikið hár á höfði og skegg á vöngum, hátt enni og söðulbakað nef. Augun vora gáfuleg mjög og mild, hýrleg og skýr, enda var hann spekingur að viti. Hann var óvenjulega mikill framfara- og hugsjónamaður á sinni tíð. Skáldmæltur var hann vel sem bræður hans sumir, en hann varaðist að láta neinn nema það, sem hann orti, fór aðeins einu sinni með hvert kvæði eða vísu. Margt af þvi var alvarlegs efnis, til áminningar eða viðvörun- ar, en fleira þó spaugi blandið um menn og mál- efni líðandi stundar, en yfirleitt var það allt Faldci gullið. BARNASAGA Uppi í sveit bjó fátæk kona, sem átti son, og hann var því miður svo hræðilega latur. Drengurinn hét Davíð, og það eina, sem hann kærði sig um, var að reika um þorpið og brjóta heilann um, hvemig hann gæti í hvellinum orðið svo ríkur, að hann þyrfti aldrei meira að vinna. Því að hann var auðvitað neyddur til þess að vinna eitthvað, þó að hann væri mjög svo tregur til þess, annars gat hann ekki fengið mat og klæði. „Davíð, viltu ekki hjálpa mér dá- lítið í garðinum í dag,“ sagði móðir hans, sem reyndi að vinna eins og hún gat. „Þetta lítur mjög illa út, og ég er sannfærð um að við gætum unnið okkur inn marga peninga með blómum okkar og grænmeti, ef þú bara vildir hirða það betur." Davíð varð auðvitað að hjálpa til, þar sem honum þótti mjög vænt um móður sína; en verkið gekk samt svo illa að það var mesta skömm, því að þau gátu vel haft góðar tekjur af garðinum. Báðum megin í garðinum stóðu tré, annað var eplatré og hitt perutré, og einu sinni höfðu þau borið mikinn og góðan ávöxt; en með hverju ár- inu, sem leið, urðu ávextimir verri og minni; það var vegna þess að garðurinn var aldrei nógu vel stung- inn upp, illgresið var aldrei reytt og ekki var borinn á neinn áburður. „Ó, að við væram rík!“ andvarp- aði Davíð, og svo sagðí móðir hans: „Þú hugsar aldrei una annað; en þá gætirðu líka reynt að finna gull álfanna!" „Hvar er það?" spurði hann ákafur. „Já, það veit enginn; en ef þú getur fundið litla skógardverginn, sem geymir það, þá getur hann sagt þér frá því." „Hvar get ég hitt hann?“ „Þú verður að fara út í skóg um miðnætti og leita að honum; en þeg- ar þú sérð hann verður þú að horfa á hann í fimm mínútur án þess að líta af honum; ef þú litur til hliðar eitt einast skipti, hverfur hann sjón- um þínum, og þú sérð hann aldrei framar." „Þá ætla ég að reyna að finna hann!" sagði Davíð. „Getur hann þá sýnt mér hvar gullið er?“ ,J3f þú horfir stöðugt á hann og spyrð hann að því, þá er hann neydd- ur til að svara þér; þá getur þú sjálf- ui* séð um að finna það,“ sagði móðir hans. Davíð ákvað að fara út sömu nótt- ina; og þegar klukkan var rúmlega ellefu læddist hann hljóðlega út úr húsinu. Tungiið skein, svo að það var næstum því eins bjart og um dag; en þegar hann kom í skóginn varð dálítið dimmara. En Davíð gekk samt áfram og var kjarkgóður; og allt í einu sá hann lítinn mann í rauðum fötum, sem kom gangandi; í hendinni hélt hann á rauðri húfu, sem var full af gljáandi gullstykkjum. „Hvar á ég að fela það,“ muldraði maðurinn, og nokkrir litlir hérar stukku við hliðina á honum eins og til þess að hjálpa honum til þess að finna felustað. „Gefðu mér gull álfanna!" sagði Davíð og starði á dverginn. „Ó, varaðu þig!“ hrópaði hann. „Tréð er að detta á þig!“ Davíð ætlaði að fara að gá að því, en hann mxmdi þá, hvað mamma hans hafði sagt honum, og hann hélt áfram að stara á dverginn. „Láttu bara tréð eiga sig," sagði hann, „gefðu mér heldur gullið!" Dvergurinn reyndi nú á allan hátt að fá Davið til þess að líta undan, en þegar það var árangurslaust, and- varpaði hann að lokum og sagði: „Þú veizt víst ekki, að það er fullt af gulli I garðinum hennar móður þiijnar? Ef þú grefur eftir því þar, einkum á milli rótanna á stóru trján- um, muntu finna mikið af því!“ Davið varð mjög glaður, þegar hann heyrði þetta; hann vissi, að skógardvergurinn sagði aldrei ósatt, og hann þakkaði litla manninum og flýtti sér heim. Snemma næsta morgun fór Davið á fætur og fór að grafa í garðinum. Móðir hans gladdist yfir því, hvað hann var iðinn, og til þess að gleðja hana enn þá meira fór hann að reyta i burtu illgresið af beðunum og vökv- aði blómunum vel. En alltaf var hann að hugsa: „Bíðum bara þangað til ég finn gullið, þá skulum við aldrei vinna. meira!" En hvorki þennan dag né næstá dag fann hann nokkur merki gulis; en aftur á móti fóra blómin og jurt- imar að vera svo fallegar og stórar, og móðir hans gat selt mikið af þeim og græddi vel á þvi. En Davíð lét samt ekki hugfallast, en hélt áfram að grafa og varrn á hverjum degi í garðinum, svo að allir hældu dugn- aði hans og iðni. Ávextir trjánna fóra að þroskast, og eplin og peramar úr aldingarði Davíðs urðu stærri og betri en af nokkram trjám i allri sveitinni, svo að þau gátu selt ávextjna og grætt mikla peninga á því. Þau voru alls ekki fátæk lengur, og Davíð fór að gróðursetja önnur tré og rækta garð- inn á bezta hátt. Dag nokkum löngu seinna sat hann og var að tala við móður sína um það, hvað allt gengi þeim nú vel, og hann sagði frá skógardverginum, og hvað hann hafði sagt. „Hann plataði mig alls ekki," sagði Davíð og hló kátur. „Það var sann- arlega gull í garðinum okkar — ég var ba.ra svo heimskur að ég sá það ekki fyrr — nú, þegar ég fór að grafa eftir því, tók allt að vaxa og þrífast svo vel, og fyrir það höfum við fengið þá peninga, sem við þurf- um á að halda." Davíð sá litinn mann í rauðum fötum, hann hélt á rauðri húfu, sem var full af gulli.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.