Vikan


Vikan - 26.09.1946, Qupperneq 2

Vikan - 26.09.1946, Qupperneq 2
2 VIKAN, nr. 39, 1946 Pósturinn Kæra ,,Vika“! Geturðu ekki sagt mér eitthvað um franska tónskáldið Claude Debussy? Aðdáandi. Svar: Claude Achille Debussy var franskur, fæddur í St. Germain-en- Laye 22. ágúst 1862, og dáinn í Paris 26. marz 1918. Var hann kominn af verzlunarmönnum og átti ekki ætt sína að rekja til neinna tónsnillinga. Stundaði hann nám í París og naut kennslu Marmontel, Lavignac, Mass- enet og Guiraud. Árið 1884 hlaut hann „Grand Prix de Rome" fyrir kantötu sína „L’enfant prodigue”. Yngri stefnur í hljómlist, svo sem impressionismi, expressionismi, fútúr- ismi og atónalismi eiga að nokkru leyti rætur sinar að rekja til Deb- ussy. Mesta snilldarverk hans er oftast talið vera hin eina ópera eftir hann „Pelléas et Mélisande” og var frum- sýning á henni í Opéra Comique 30. apríl 1902, en hún vakti í fyrstu ekki mikla hrifningu. Verk hans fyrir píanó, svo sem „La Soirée dans „Grenade," „Jard- in’s sous la pluie," „L’isle joyeuse" og „Reflets dans l’eau" eru ódauðleg snilidarverk. Kæra Vika! Þú getur víst ekki sagt okkur hver er utanáskrift til blaðsins Lög- berg í Vesturheimi. Með fyrirfram þakklæti. Tvær ungar stúlkur í Rvik. Svar: Lögberg, The Columbia Press Ltd., 695 Sardent Ave., Wmnipeg, Manitoba, Canada. Drengur getur fengið atvinnu við sendiferðir í Steindórsprenti h.f. Tjarnargötu 4. I skartgripaverzlun minni í fæst ávallt mikið úrval af i góðum tækifærisgjöfum, I meðal annars mikið af i úrum, vekjaraklukkum í o. fL Gottsveinn Oddsson I úrsmiður. - Laugavegi 10. I (Gengið inn frá Bergstaðastr.). I 3 'ntiMiiiiniNiiiiiimHiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiifiiiimiiifiiHiii)'' Kæra Vika! Ég er afar hrifin af Sigrid Undset, og þar sem ég er heldur illa að mér, og hefi slæma aðstöðu til að afla mér vitneskju um skáldkonuna, datt mér í hug að snúa mér til þín. Ætla ég því að biðja þig, Vika mín, að segja mér eitthvað um hana. Sveitastúlka. Svar: Sigrid Undset er fædd 1882 i Kalundborg og er dóttir fomfræð- ingsins Ingvald Undset. Sextán ára að aldri fór hún að vinna í skrif- stofu í Oslo og var þar í 10 ár. Árið 1907 kom út fyrsta bók hennar „Frú Marta Oulie," og árið eftir sögu- safnið „Den lykkelige Alder". Eftir útgáfu þeirrar bókar hætti hún að vinna í skrifstofunni og 1909 fékk hún styrk hjá ríkinu og ferðaðist til Róm. Bókin „Jenny" kom út 1911 og 1912 giftist Sigrid málaranum Svarstad, en þau skildu 1925. Sigrid Undset er katólskrar trúar og hlaut Nobels-verðlaun 1928. Árið 1941 flúði hún frá heimili sínu til Svíþjóðar og dvaldi í Ameríku það sem eftir var stríðsáranna. Kæra Vika! Viltu gjöra svo vel að koma okkur í bréfasamband við stúlkur á aldr- inum 16—20 ára. Clafur Jakobsson, Sigurður Jakobs- son, Andrés Gilsson, Reykjahlið, Mos- fellssveit. Kæra Vika! Ekki vænti ég að þú getir grafið upp fyrir mig hverjir hafa fengið bókmenntaverðlaun Nobels ? Bókavinur. Svar: Frakkland: R. Sully Prud- homme (1901), Fr. Mistral (1904), Romain Rolland (1915), Anatole France (1921), Henri Bergson (1927), Roger Martin du Gard (1937). — Þýzkaland: Theodor Mommsen (1902), Rudolf Eucken (1908), Paul Heyse (1910), Gerhard Hauptmann (1912), Thomas Mann (1929). — Danmörk: Karl Gjellerup (1917), Henrik Pontoppidan (1917), Johannes V. Jensen (1944). — England: Rudy- ard Kipling (1907), George Bemard Shaw (1925), John Galsworthy (1932). — ítalía: Giosué Carducci (1906), Grazia Deledda (1926), Luigi Pirandello (1934). — Noregur: Björn- stjeme Björnson (1903), Knut Ham- sun (1920), Sigrid Undset (1928). — Svíþjóð: Selma Lagerlöf (1909), Vemer von Heidenstam (1916), Erik Axel Karlfeldt (1931). —Bandaríkin: Sinclair Lewis (1930), Eugene O’Neill (1936), Pearl S. Buck (1938). — Pólland: Henryk Sienkievicz (1905), W. St. Reymond (1924). — Spánn: José Echegaray (1904), Jacinto Bena- vente (1922). — Belgía: Maurice Maeterlinck (1911). — Indl.: Rabin- dranath Tagore (1913). — Finnland: F. E. Sillanpáá (1939). — írland: William Butler Yeats (1923). — Rússland: Ivan A. Bunin (1933). — Sviss: Carl Spitteles (1919). — Bók- menntaverðlaununum var ekki út- hlutað árin 1914, 1918, 1935, 1940, 1941, 1942 og 1943. Bibliumyndir. 1. En maður nokkur var sjúkur, Lazarus frá Betaníu, úr þorpi þeirra Maríu og Mörtu systur hennar. En Jesús elskaði þau Mörtu systur henn- ar og Lazarus. Þegar hann hafði heyrt, að hann væri sjúkur, dvaldist hann enn tvo daga á þeim stað, þar sem hann var. Síðan segir hann eftir þetta við lærisveinana: Fömm aftur til Júdeu. En lærisveinamir óttuðust að Gyðingarnir myndu grýta hann. 2. Sagði Jesús þeim bemm orðiim: Lazarus er dáinn; og það gleður mig yðar vegna, að ég var þar ekki, til þess að þér skulið trúa. En fömm nú til hans. Þá sagði Tómas, sem kallaður er tvíburi, við lærisveina sína: Vér skulum fara líka til að deyja með honum. 3. En er kveld var komið, þennan sama fyrsta dag vikunnar, og dymm hafði verið lokað, þar sem lærisvein- amir voru, af ótta við Gyðingana, kom Jesús og stóð mitt á milli þeirra og segir við þá: Friður sé með yður! En Tómas var ekki með þeim þegar Jesús kom. 4. Og að viku liðinni vom læri- sveinar hans aftur inni og Tómas með þeim. Þá kemur Jesús og stóð mitt á meðal þeirra og segir við Tómas: Kom hingað með fingur þinn og sjá hendur mtnar, og kom með hönd þina og legg á siðu mína; og vertu ekki vantrúaður, heldur trúað- ur. Tómas svaraði: Drottinn minn og Guð minn! Tilkynning um umferð á Keykjavíkurflugvellinum. Að gefnu tilefni tilkynnist hérmeð, að öllum er stranglega bannað, að fara (gangandi eða akandi) yfir hinar malbikuðu flugbrautir á Reykjavíkurflugvellinum. Menn eru áminntir um að gera sér ljóst að slíkt getur verið lífs- hættulegt, og verða þeir, sem gera sig seka í þessu tafarlaust látnir sæta ábyrgð. Framkvæmdarstjóri Keykjavíkurflugvallarins. | Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.