Vikan


Vikan - 26.09.1946, Síða 7

Vikan - 26.09.1946, Síða 7
VIKAN, nr. 39, 1946 7 VESTFIRÐiR. T^ESTFIRÐINGAFÉLAGIÐ í " Reykjavík hefir hafið merki- lega útgáfu, sem mikils má af vænta í framtíðinni. Fyrsta ritið er komið út: „Vestfirðir I. Stein- dór Steindórsson: Gróður“. 1 formála segir stjórn Vestfirð- ingafélagsins m. a.: „Vestfirð- ingafélagið hefur, eins og flest önnur átthagafélög hér í höfuð- staðnum, frá öndverðu talið það eitt af verkefnum sínum að efna til útgáfu rita um átthaga fé- lagsmanna sinna, Vestfirði, en til Vestfjarða telur félagið allt landið frá Gilsfjarðarbotni og vestur og norður að Hrútaf jarð- ará. Eiga hin fyrirhuguðu rit að fjalla um náttúru, menningu og sögu þessara héraða. Sú er ætlunin, að í ritsafni þessu birt- ist einkum ný rit, sem samin verða til útgáfu í því, en þó munu væntanlega einnig birtast í því nokkur eldri rit um Vest- firði eða Vestfirðinga, sem enn hafa eigi birzt á prenti. Höfum vér valið ritsafninu nafnið Vest- firðir. Hafa þeir Árni Friðriks- son, fiskifræðingur, og Ólafur Lárusson, prófessor, tekið að sér ritstjórn þess. Er það mikill fengur fyrir félagið, að fá þessa gagnmerku fræðimenn til þess að stjórna útgáfunni. Enn hefur eigi verið gerð nein endanleg áætlun um rit- safnið, hvorki um það, hvaða rit í því verði birt, né um hitt, í hvaða röð ritin verða gefin út. Stafar þetta af því, að flestir þeir menn, sem helzt er leitað til um samningu þessara rita, eru bundnir við önnur störf og því óvíst, hvenær þeim gefst tími til að semja rit sín. Félagið hefur þó nú þegar fengið loforð nokkurra manna um aðstoð þeirra. Árni Friðriksson, fiski- fræðingur, mun rita um dýralíf Vestfjarða, Björn Guðmunds- son, fyrrv. skólastjóri á Núpi, héraðslýsingu, Ólafur Lárusson, prófessor, um landnám í Vest- fjörðum og Gils Guðmundsson, rithöfundur, atvinnusögu hér- aðsins. Eru þessi rit þegar ákvcðin, en af ástæðum þeim, sem áður voru nefndar, er ekki unnt að lofa neinu ákveðnu um það, hvenær þau muni koma út. Þá hefur og ennfremur verið ákveðið að gefa út gamlar sýslu- og sóknalýsingar frá Vestfjörðum. Hafa þær aldrei birzt á prenti, en eru hin gagn- merkustu heimildarrit í mörg- um efnum. Stjórn Vestfirðingafélagsins er þakklát Steindóri Steindórs- syni frá Hlöðum fyrir að hafa tekið að sér samningu þessa fyrsta rits félagsins, um gróður Vestfjarða, þrátt fyrir það að hann hefur haft mörgum og mikilvægum störfum að gegna. Steindór hefur ferðast um Vest- firði allra grasafræðinga mest, og var síðasta ferð hans, árið 1943, farin eingöngu vegna þessa rits. Má treysta því fylli- lega, að í riti þessu er allt það, er vér vitum nú bezt um gróður á Vestfjörðum, og vonum vér, að ritið verði til hagræðis fyrir þá, er síðar fást við rannsóknir á því efni, og til uppörvunar fyrir áhugamenn, ekki sízt unga fólkið heima í héraðinu, sem bætast vill í þann hóp. 1 bókinni eru 10 ljósmyndir. Hefur Þorsteinn Jósepsson tek- ið þær allar og léð félaginu af- not þeirra. Kortin, sem sýna útbreiðslu nokkurra tegunda, hefur Steindór Steindórsson gert. Litmyndina lét mag. Johs. Gröntved teikna fyrir félagið og sá um prentun hennar. Stöndum vér í mikilli þakkarskuld við hann fyrir þá hjálp hans. Landabréf í litum verður að fylgja ritsafni þessu. Voru til- raunir gerðar til þess að fá það gert nú þegar, bæði í Lundún- um og Kaupmannahöfn, en það reyndist þó ókleift, er til kom, og verður því að bíða að sinni. Kápumyndina hefur Stefán Jónsson teiknari teiknað eftir Ijósmynd Þorsteins Jósepsson- ar. Myndin er tekin í hlíðinni fyrir innan Austmannsdal, og sést á henni inn með Arnarfirði sunnanverðum. Er hún gott sýnishorn af vestfirzku lands- lagi“. Fyrst er inngangur og úr honum er tekinn eftirfarandi kafli: „ ... Við fyrstu sýn þykir aðkomumanninum Vest- firðir, sem heild, vera hrjóstr- ugir og gróðursnauðir. Verður því og eigi með rökum neitað, að mjög er berangur þar víð- lent, og hvervetna mæta auganu urðir, skriður og naktir klettar. Vestfirzku fjöllin eru kuldaleg og mikilúðleg í nekt sinni. En samt er það svo, að mörg er þar matarholan í hvömmum og dölum, ekki sízt þegar innar dregur með fjörðum og upp í dalverpin inn af þeim. Er þar víða furðumikið f jölgresi og ilm- an úr jörðu og fagurt um að lit- ast og hlýlegt. Skógarkjörr eru víða um Vestf jörðu, og þótt þau séu eigi hávaxin gefa þau land- inu mildan svip, og breiða yfir skriðurunnar hlíðarnar. Má óhætt segja, að skógurinn sé eitt af sérkennum í gróðurfari Vestfjarða . . .“ Á eftir inn- ganginum kemur Gróðurlendi Vestfjarða og eru þar eftirfar- andi kaflafyrirsagnir: Inngang- ur. Sæ- og strandgróður. Vatna- gróður. Votlendi. Gróður við laugar. Valllendi. Mólendi. Snjó- dældir. Skóglendi. Melar, klett- ar, jökulaurar. Hálendisgróður. Snæfjallaströnd. Á eftir kaflanum um gróður- lendið kemur Flóra Vestf jarða og heimildaskrá. Vann til verðlauna. Fræg kvikmyndaleikkona. Þessi maður hlaut seðsta heiðurs- Ida Lupino, í kvikmyndinni Gift merki Bandaríkjanna fyrir að hrinda eða ógift, en það er amerískur gam- árás 75 Japana og drepa 25 af þeim anleikur eftir leikriti Rose Simon i orustunum um Okinawa. Kohns. 1---!---- PiohívDf Y'Qf. Drengurinn með glasið: Þú mátt ekki fá neitt maðurinn! þú ert öku-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.