Vikan


Vikan - 14.11.1946, Blaðsíða 10

Vikan - 14.11.1946, Blaðsíða 10
10 VIKAN, nr. 46, 1946 UmVBIIIIIVniBIIIIIIIIIIIIIIBBIIIIIIIIIIIIIIIIIIIBIIIIIIIIIIIIRIIMIIIIMIIIIIIBIIHIIIilBiiiiiiiiiiiiiBf • HEIMILIÐ • ! I______________________ _________________________________________! / SVUNTUR •IIMMMIIIIIIIIIIIIIIIIIII flllllllllllllllllllVMMm Matseðillinn. Karrísúpa. 50 gr. hveiti. 50 gr. smjör. y2 —1 teskeið karrí. 2 1. kjötsoð. 2 eggjarauður. 1 matskeið rjómi. Smjörið er látið í pott og brætt. Karríinu og hveitinu er hrært saman við og þynnt smátt og smátt með soðinu. Þá er súpan látin sjóða við hægan hita í 10 mínútur. Þegar súp- an er borin fram, eru eggjarauðurn- ar þeyttar ásamt rjómanum og það látið út í súpuna. Hakkað buff. 4Ó0 gr. nautakjöt. 200 gr. soðn- ar kartöflur. 10 gr. kartöflu- mjöl. 2—3 dl. kalt vatn eða mjólk. 1 matskeið salt. y2 te- skeið pipar. 1 laukur. 100 gr. smjör. Kjötið er skorið niður í litla bita og hakkað fimm sinnum og að lokum einu sinni ásamt kartöflunum. Lauk- urinn er rifinn niður og honum hrært saman við ásamt saltinu, piparnum og kartöflumjölinu og siðan er deigið þynnt með vatninu eða mjólkinni. Litlar kringlóttar kökur eru lagaðar ilr deiginu og steiktar í brúnuðu smjörinu. Sítrónubúðingur. 250 gr. sykur. Börkur og safi úr einni sítrónu. 4 egg. % 1. rjómi. 11 plötur_ af matarlími. Eggjarauðurnar eru þeyttar ásamt sykrinum í 20 mínútur. Matarlímið er lagt í kalt vatn í 10 mínútur, síð- an skorið niður í lítil stykki og leyst upp í bolla yfir gufu. Síðan er því hellt út í eggjarauðurnar ásamt rifn- um sítrónuberkinum, sítrónusafan- um, þeyttum rjómanum og þeyttum eggjahvítunum. Þá er þessu helt I mót, sem hefir verið vætt að innan, og látið standa á köldum stað í 3—4 klukkustundir. Að lokum er hvolft úr mótinu á fat og búðingurinn bor- inn fram með smákökum. H úsráð Áður en byrjað er á heimilisstörf- unum er ágætt að bora fingrunum ofan í sápustykki. Það hindrar að óhreinindi setjist undir neglurnar, en sápuna er aftur á móti auðvelt að hreinsa. TÍZKUMYND ' Gulur kjóll með bláum doppum Pilsið er rykkt að framan, með stór- um vösum og beltið er blátt. Húsráð Reynið, hvort pannan er mátulega heit með því að sletta á hana vatnsj dropa. Ef vatnsdropinn hoppar af og hverfur fljótt, er pannan mátulega heit. Bezt er að hreinsa lakkskó upp úr gólfáburði. Geymið eldspýtnastokka í hylkj- um og þar sem börn ná ekki til þeirra. Reykpípur eru hreinsaðar úr blöndu af eter og vínanda (helmingi meira af eter en vínanda) og er blandan látin liggja í pípunni og pípan þurrkuð með pípuhreinsurum og klút. Varizt að láta blönduna koma við gljáan eða lakkið utan á pípuhausnum, því að það koma blett- ir eftir hana. Stúlkur eru aftur farnar að nota mikið svuntur, þegar þær vinna við heimilisstörfin, ekki einungis ámorgn- ana heldur seinni hluta dags, þegar þær eru búnar að hafa fataskipti, til að hlífa kjólnum. Það er skemmti- legt að hafa fjölbreytilegt snið og efni í svuntunum og geta þær verið mjög fallegar eins og t. d. þessar þrjár svuntur á mynd 1. 2 og 3. 1. mynd. Falleg tvílit svunta á ung- lingsstúlku. 2. mynd. Mittistykki, sem sniðið er í odd og grennir, og í kringum svunt- una má rykkja pífu. 3. mynd. Skemmtileg svunta, saumuð úr taftborðum. Tvær nýjar Ijóðabækur 1. KURL, eftir Kolbein Högnason í Kollafirði. I bókinni eru meira en 150 ný Ijóð og kvæði, og mörg sýna nýjar og óþekktar hliðar á þessu þróttmikla og einstæða al- þýðuskáldi. 2. SÖNGUR STARFSINS, eftir Huklu, hina nýlátnu söngva- dís íslenzkrar skáldhirðar. Hvert mannsbarn á íslandi þekkir Huldu. Ljóðin hennar hafa verið lesin og sungin mn land allt í nærfellt mannsaldur. Og þjóðin þekkir skáldkonuna einnig af sögum hennar og ævintýrum. Fá skáld, fyrr eða síðar hafa ort fegurri ættjarðarljóð en Hulda. Hún kvað: „Hver á sér fegra föðurland“, ljóðið, sem sungið var við lýðveldistökuna 1944, og þjóðin hefir lært betur en öll ljóð önnur, sem kveðin voru þá. Hulda var mikil starfs- kona. Þessi síðasta bók hennar er lofsöngur um starfið. Bókaverzlun ísafoldar

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.