Vikan


Vikan - 05.12.1946, Qupperneq 3

Vikan - 05.12.1946, Qupperneq 3
VIKAN, nr. 49, 1946 3 Jónsmessudraumur á fátækraheimilinu. Leikfélag Reykjavíkur er nú að sýna þetta leikrit eftir sænska skáldið Pár Lagerkvist, en þýðandi og leikstjóri er Lár- us Pálsson. Sigurður Þórarinsson segir m. a. í leikskránni: „Leikritið Jónsmessudraumur á fátækra- heimilinu (Midsommardröm í fattighuset) var frumsýnt í Stokkhólmi 1941. Eftir frum- sýninguna skrifaði einhver gagnrýnandi: „Ef til vill hefir Lagerkvist ekki bætt við stærð sína sem leikritaskáld með þessu leikriti, en okkur þykir vænna um hann eftir en áður.“ Þetta munu sannmæli. Jóns- messudraumurinn getur vart talizt meðal veigamestu leik- rita skáldsins, en það er að- gengilegast og elskulegast þeirra allra, eins konar ljóð- rænt innskot kryddað góðlát- Bryndís Pétursdóttir sem Cecilía, dótturdóttir forstöðukonu fátækra- heimilisins. legri kímni, sem Lagerkvist sjaldan bregður fyrir sig í leik- ritum sínum, en sem kemur ekki þeim á óvart, er hafa haft ein- hver persónuleg kynni af hon- um . . .“ Lagerkvist er fæcdur í Váxjö, bæ í Smálöndum, 1891, og var faðir hans starfsmaður þar á jámbrautarstöðinni. 1911 tók hann stúdentspróf og kom fyrsta bók hans út árið eftir. I París dvaldi hann 1913, en fyrsta leikrit hans birtist 1917. Hann hefir setið í Sænsku Aka- demíunni síðan 1940, og er tal- inn frumlegastur og sérstæðast- ur núlifandi rithöfunda Svía. Að Kaj Munk og Nordahl Grieg látnum þykir hann ekki eiga sinn jafningja sem leikritaskáld á Norðurlöndum. Leikurinn er mjög sérkenni- legur og margt ákaflega vel gert í honum. Leikendunum tókst yfirleitt prýðilega með- ferðin á hlutverkunum, einkum þó Gesti Pálsyni. Hann var af- burðagóður. Mjög eftirtektar- verður var og leikur nýliðans Bryndísar Pétursdóttur og er ánægjulegt, þegar byrjendum tekst eins vel og henni. Kaj Smith gerði dansana í leikinn, Þórarinn Guðmunds- son var hljómsveitarstjóri, Lár- us Ingólfsson málaði leiktjöldin, leiksviðsstjóri Finnur Krist- insson, ljósameistari Hallgrím- ur Bachmann, leiktjaldasmíði annaðist Kristinn Friðfinnsson og hárgreiðslu Kristólína Kragh. bnndi JOnas, konungur og drottning og hirðin í draumnum. Vistmenn á fátækraheimilinu, frá v.: Valdimar Helgason sem Friðrik mátt- lausi, Jón Aðils sem ,,Morðinginn“, Brynjólfur Jóhannesson sem Enok. Bryndís Pétursdóttir sem Cecilía og Gestur Pálsson sem „Blindi Jónas“. Leikur Gests í þessu hlutverki var afburða góður. Alda Möller sem drottningin og Valur Gislason sem konungurinn í draumnum.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.