Vikan


Vikan - 05.12.1946, Page 8

Vikan - 05.12.1946, Page 8
8 VIKAN, nr. 49, 1946 Betra að gœta tungu sinnar! Teikning eftir George McManus. Dóttirin: Klukkan hvað er þessi veisla, sem á að halda honum pabba að óvörum? Rasmína: Klukkan sjö. Ég bið hann bara að koma út að ganga með mér og þegar við komúm að húsi Ljóshól-hjónanna, þá segi ég, að réttast sé að líta þar inn. Rasmína: Komdu, ég ætla að fara út með þig! Gissur: Auðvitað hvort sem ég má vera að því eða ekki! Rasmína: Þarna er húsið þeirra Ljóshól-hjón- anna, við skulum lita þar inn, við eigum þar heim- boð. Gissur: Ég býst ekki við að ég hafi neitt gagn af því, varla fer húsbóndinn að borga mér það sem hann skuldar mér. Gissur: Ég ætla að bíða héma. Rasmína: Gengdu mér nú, dyrnar eru opnar, þau hljóta að vera heima. ■L4I ■ Gissur: Það er allt í myrkri. Þau eru svo nízk, að þau tíma ekki að hafa ljós — eða þau vilja ekki láta bera of mikið á þvi, hvað frúin er ófrið. Rasmína: Hafðu ekki svona hátt! Gissur: Síðast þegar við vomm hérna hittum við nokkra vini þeirra — mesta leiðindapakk og mat- urinn var eftir því. Ég var að vona, að ég þyrfti ekki að sjá neitt af þessu aftur. Rasmína: Hafðu ekki svona hátt, maður! Gissur: Ég er feginn, að þau em ekki heima. Hvernig stendur á því, að þú vilt vera að heim- sækja svona manneskjur, eins og þetta er leið- inlegt fólk og ekki em vinirnir betri, samansafn af fíflum og fáráðlingum. Rasmína: Þegiðu, maður! Rödd í myrkrinu: Kveikið ljósið! Gissur: Æ, æ! Rasmina: Ég er að falla í yfirlið! 1. maður: Sá þykir mér vera þokkalegur! 1. kona: Þetta er dóni! 2. maður: Það er tilgangslaust að reyna að breiða yfir það, sem þú sagðir! 2. kona: Ég verð hér ekki stundinni lengur, ef þið rekið þau ekki út! Húsmóðirin: TJt með ykkur, Gissur og Rasmína. Það er fallegt til afspurnar að bjóða svona þokkahjú- um heim til sín!

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.