Vikan


Vikan - 05.12.1946, Side 12

Vikan - 05.12.1946, Side 12
12 VTKAN, nr. 49, 1946 Lögreglubifreiðarnar stóðu enn fyrir framan húsið og nú var einnig komið mikið af öðrum bifreiðum. Það voru sjálfsagt bifreiðar frétta- ritara og Ijósmyndara blaðanna, því eftir að Jill hafði lagzt upp í legubekkinn og dregið yfir sig dúnteppið, varð hvað eftir annað albjart í her- berginu hennar af magníumblossum ljósmyndar- anna. Loksins kom Bruce. Hann barði að dyrum, sagði síðan nokkur orð við einhvern fyrir framan og gekk svo inn. Hún reis upp við dogg, og hann kom til hennar og settist á stokkinn hjá henni. Hann var fölur og þreyttur. Hún sá sig sjálfa í speglinum og henni brá við þá sjón. Hún var náföl í framan, hárið úfið og kjólinn allur krukl- aður — þessi kjóll, sem hún hafði farið í, þegar hún ætlaði út í sjúkrahúsið fyrir — að því er henni fannst — heilli eilífð. Bruce leit á hana og sagði: „Jill, elsku barnið mitt,“ hann laut fram og strauk hárið frá enni hennar. „Mig óraði ekki fyrir . . . Guð veit, að það var ekki tilgangur minn, að þú lentir í þessu! Ef ég hefði aðeins vit- að um — en hvernig á ég að vita nokkuð?" „Hvað ætla þeir að gera? Hvað hafa þeir að- hafzt? Hafa þeir tekið nokkurn fastan ?“ stam- aði Jill. „Þeir hafa sett lögregluþjóna á vörð um allt húsið. Þeir hafa rannsakað húsið frá hanabjálka og niður í kjallara. Þeir hafa ekki fundið nokk- urn hníf eða annað eggjárn með svo mikið sem einum blóðdropa á. Þeir geta enn ekkert fullyrt um, hvort vopn hefir verið notað. Það getur varla liðið á löngu, áður en þeir taka einhvern fastan." „Hvern munu þeir taka?“ Hann leit undan og sagðist ekkert vita um það.. Síðan gagði hann: „Þeir hafa auðvitað rannsakað, hverjir geta komið til greina. Ég var á leið heim. Ég gceti komið til greina, því dyrnar frá herberginu út í garðinn voru ekki aflæstar og hliðið var opið eins og venjulega. Þar hefði mátt komast burt.“ „En Steven, Madge og Alicia voru þó--------.“ „Ekki saman!" greip Bruce fram í fyrir henni. Alicia og Madge fóru inn til Fields til þess að kaupa eitthvað. Steven beið fyrst eftir þeim í bílnum, en sagði svo við Kendal, að hann ætlaði að skreppa í lyfjabúðina og kaupa eitthvert lyf. Það leið klukkutími þar til Steven hitti þau aftur í Kandolph Street. Hann sagðist hafa beðið þeirra við innganginn frá State Street, en Kendal átti að taka Madge og Aliciu við innganginn frá Wabash. Hann segist ekki hafa séð bifreiðina né Kendal, en sjálfur segist Kendal hafa ekið að minnsta kosti þrisvar í kringum bygginguna í leit að Steven. Alicia og Madge voru eklci saman inni í byggingunni. Alicia var uppi á 7. hæð að máta eitthvað, en Madge var á 5. hæð í skódeild- inni. Þær gœtu hvor fyrir sig hafa skotizt í bíl hingað heim á þessum tíma. Og Guy var heima allan tímann,“ sagði Bruce að lokum nokkuð ó- vænt. „Guy ?“ „Já. Hann sat við lestur, segir hann. Það er er enginn spölur fyrir hann hingað yfir ef hann fer í gegnum bakgarðinn. Og Andy . . „Andy?“ „Já, Andy, því ekki? Hann var í lækningastofu sinni, en stúlkan, sem aðstoðar hann, hafði farið snemma heim, því hún var eitthvað lasin. Hann var í lækningastofunni, þegar ég hringdi til hans fyrir rannsóknarlögregluna, því þeir óskuðu þess að hann kæmi hingað. — Það er engum blöðum um að að fletta, liverjir liggja undir grun,“ sagði Bruce gramur. „Þeir fara nú að taka einhvern fastan, því þetta ætlar engan enda að hafa hjá þeim.“ „En þeir hafa þá engan tekið enn?“ spurði Jill. Hún horfði fast á Bruce, þvi henni fannst hann vita meira en hann sagði. „Eins og þú sérð, er spurningin núna aðeins um þetta: Hver hefir getað framið morðið? Rann- sóknarlögreglan er nokkurn veginn sannfærð um, að sami maður hefir myrt bæði Juliet og Rachel, svo nú er um að gera að komast að því, hver verið hefir svona nærri afbrotastaðnum í bceði skiptin, að hann hafi getað framið glæpina. Þeir halda, að ástæðan til beggja morðanna hafi verið sú sama, það er að segja, að báðar þessar konur hafi vitað eitthvað um dauða Crystal. Þeir, sem geta sannað, að þeir hafi hvergi verið nærri af- brotastaðnum, sleppa auðvitað við allan grun. Þannig er það til dæmis með Steven, því þar hefir þú sannað f jarveru hans. Jill átti það eftir að minnast þessa orða Bruce næsta morgun, þegar rannsóknarlögreglan sýndi henni hvað þeir hefðu fundið... En á þessu augnabliki hjúfraði hún sig aðeins upp að Bruce og sagði: „Ég er svo hrædd. Ég er svo hrædd í þessu húsi. Ég óttast allt. Ég hrekk við, ef dyr eru opnaðar og næ ekki andanum fyrr en ég sá hver það er, sem inn kemur.“ Bruce þagði nokkra stund, en sagði síðan: „Það, sem gerir allt þetta svo hræðilegt í mín- um augum, er það eitt, að einhver okkar hér i húsinu, eða einhver mjög nákominn okkur, hlýtur að vera valdur að þessu öllu saman." Síðan fór hann að tala um dagbókina: „Rachel hafði hana undir höndum,“ sagði hann rólega. „Hún játaði það fyrir mér í dag. Það var mjög heimskulegt af henni að taka hana, en hún sagðist hafa gert það óviljandi. Þegar hún tók til í herbergi Crystal skömmu eftir dauða hennar, tók hún þar nokkur timarit og fór með þau upp í herbergi sitt, en dagbókin hafði legið milli þess- ara tímarita, án þess hún vissi af því. Þegar hún rakst svo á hana nokkru síðar, lagði hún hana til hliðar í því skyni að eyðileggja hana við fyrsta tækifæri. En svo gleymdi hún bókinni alveg, þang- að til lögreglurannsókn byrjaði. Nú vissi hún ekki, hvað hún ætti til bragðs að taka, hún þorði hvorki að farga bókinni né halda henni Þó hræddist hún allra mest að viðurkenna það fyrir lögreglunni, að hún hefði bókina í vörzlum sínum. Að lokum stóðst hún ekki lengur mátið og kom til mín og sagði rétt og hreinskilnislega frá öllu. Ég jós yfir hana skömmunum, en hún bar sig mjög aumlega, enda var hún þá komin með þennan bannsetta græna lit A hendurnar og bætti það ekki úr skák. Ég fékk hana þó loksins til að lofa því að ná í dagbókina og afhenda mér hana strax, og hún fór skælandi af stað í þeim erindum út frá mér. En þá komu þessi boð frá sjúkrahúsinu um uppskurðinn, sem ekki þoldi bið. Nú er dagbókin horfin úr herbergi Rachel, en ég hef ekki sagt rannsóknarlögreglunni frá þessu enn, Jill. Það ætti ekki að skipta svo miklu máli, þótt ég þegi um það nokkurn tíma enn, úr því ég er ekki spurður beint um það — og ég verð að fá að ganga laus í nokkra daga enn.“ Henni brá við þessi orð hans. Hún vildi ekki biðja hann um frekari skýringu á þessu og hún sagði honum heldur ekki frá því, að hún hefði hlustað á nokkuð af samtali þeirra Rachel og hefði þess vegna vitað, að Rachel hafði dagbók- ina. Bruce reis á fætur og sagði ákveðið: „Jæja, nú skalt þú fara að sofa, góða min. Það kemur dagur efti'r þennan dag!“ Og daginn eftir fundu lögreglumennirnir nokkuð, sem gerði að engu framburð Jill um fjarveru Steven frá- afbrotastaðnum. Þegar Jill vaknaði næsta morgun klæddi hún sig í skyndi og gerði Gross boð um, að hún vildi fá morgunverðinn upp í herbergi sitt. Gross kom von bráðar og hann var mjög þreytulegur og sýnilega nokkuð æstur í skapi, því hann helti niður í dúkinn, þegar hann var að hella kaffinu í bollann. „Þeir eru hérna enn — lögreglumennirnir," muldraði hann. „Ó, frú, að hugsa sér. — —“ Hann komst ekki lengra, því nú var barið að dyrum og Angle kom inn. Rannsóknarmennirnir höfðu fundið úti í garðinum brotna hljómplötu, sem Angle sýndi henni nú og lagði plötuna saman, svo að Jill gat séð rauða hringinn í miðri plöt- unni og lesið titilinn, sem prentaður var með gyllt- um bókstöfum: ,.Arabesk. Leikið af tónskáldinu Steven Hendie,“ stóð þar. Angel byrjaði síðan að yfirheyra Jill. „Daginn sem Juliet dó, sat Steven við slag- hörpuna og lék á hana inni i hljómleikastofu sinni. Voruð það ekki þér, sem báruð þetta við rannsóknina út af dauða Juliet Garder?" „Jú.“ ‘ „Vissuð þér, hvaða lag hann var að leika?" MAGGI OG RAGGI. Teikning eftir Wally Bishop. 1. Raggi: Heitirðu ekkert nema Palli? Mexíkaninn: Jú, jú, Palli er bara gælunafn. 2. Mexíkaninn: Ég heiti í raun og veru Franc- ico. — * 3. Mexíkaninn: Og það er fyrsta nafnið mitt, en svo heiti ég líka Juan José Felippus Manuel Gregorio 'Atanásio Moralessy Rivas! 4. Maggi: Ósköp er að heyra þetta, aldrei gæti ég lært þessa runu utanað! Mexíkaninn. Það gerir ekkert til, þú skalt bara kalla mig vininn, ef þú manst ekketr af nöfnunum!

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.