Vikan


Vikan - 09.10.1947, Síða 9

Vikan - 09.10.1947, Síða 9
VIKAN, nr. 41, 1947 9 Fyrir 50 árum var í Englandi stofnaður félagsskapur sem heitir „British Nation- al Trust“ og hefur það hlutverk að varðveita fagra staði. Er hann orðinn mjög öflugur og á viða stór landflæmi, sem friðuð hafa verið hverskonar ágangi. Þessf irynd er frá einum slikum stað I hinni svonefndu Vatnasveit (Lake District), Fréttamyndir Þessi mynd er tekin inni í enskri sveitaþorpskrá. Krám hefur um aldaraðir verið miðstöð félagslífs í enskum þorp- um, þar sem menn (aðeins karlmenn) af öllum stéttum koma saman á kvöldin til að spjalla saman og drekka bjór. Fyrir framan þær eru venjulega skilti, sem málað er á mynd af dýri eða hlut, og dregur kráin nafn af myndinni. Allar líkjast krámar mjög hver annari. Myndin hér að ofan gæti t. d. ver- ið úr kránni „Sankti Georg og drekinn", sem sögð er um eftir farandi skrítla: „Umrenningur barði að dyrum í kránni „Sangti Georg og drekinn" og bað um að gefa sér að borða. Kona veitingamannsins varð fyrir svörum og anzaði snúð- ugt, að letingjum og betlurum væri ekki borinn beini hér, og væri betra fyrir manninn að hypja sig burt með góðu. Um- renningurinn sá sitt óvænna, en sagði um leið og hann hvarf á brott: „Ekki trúi ég, að sankti Georg hefði tekið svona á móti mér, ef hann hefði komið til dyra!“ Kvikmyndaleikarinn Errol Flinn í myndinni „Virgina City“, sem sýnd var í Tjamarbíó. Kvikmyndaleikararnir Lilli Palmer og Albert Lieven í myndinni Með- aumkun, sem gerð var eftir skáld- sögu Stefan Zweigs og sýnd var i Tjamarbíó. Mynd þessi sýnir okkur inn í klæðaverzlún i „Salive Row“ — „skraddaragötunni" í London. Húsakynnin eru ekki með nýtízkulegum blæ, en um langan aldur hefur þessi gata ver- ið miðstöð karlmannafatatízkunnar í heiminum. Þetta er mynd af krá í ensku sveitaþorpi. Hún heitir „Kötturinn og fiðlan“ og er í New Forest í Hampshire. Kráin er samkomustaður karlmannanna í öllum enskum sveitaþorpum, og sumar þeirra eru margra alda gamlar. Algengt er að þær séu með torfþökum eins og sú, sem sést hér á myndinni.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.