Vikan - 08.04.1948, Side 7
VIKAN, nr. 15, 1948
v
7
Félag íslenzkra iðnrekenda
og iðnaður landsmanna
Framhald af forsíðu
ir, þótt við séum fáir og smáir, og við get-
um átt góðan og mikilvirkan iðnað á Is-
landi. Að því eiga allir Islendingar að
stuðla af fremsta megni.
Vikan sneri sér til framkvæmdastjóra
Félags íslenzkra iðnrekenda, Páls S. Páls-
sonar, og fékk hjá honum myndir og upp-
lýsingar.
Fyrsta landbúnaðarvaran, sem Islend-
ingar fluttu úr landi, var iðnaðarvara. I
skýrslum frá 1624 er skýrt frá því, að þá
hafi verið flutt út 72 þús. pör af sokk-
um, 12 þús. pör af vettlingum og 12 þús.
álnir vaðmáls, en þá var óunnin ull ekki
orðin útflutningsvara.
Allir Islendingar kannast við iðnaðar-
tilraunir Skúla Magnússonar, en eftir það
er varla um verksmiðjuiðnað að ræða fyrr
en komið er fram á 20. öldina. Klæðaverk-
smiðjurnar Gefjun og Álafoss taka til
starfa nokkru fyrir aldamót og hér voru
nokkrar hvalvinnustöðvar. 1930 er talið,
að 36 iðjufyrirtæki eða verksmiðjur, sem
nokkuð kveður að, starfi í landinu. En
1941 eru taldar starfandi hér 400 verk-
smiðjur, að frystihúsum og öllu meðtöldu.
Það er því á tveim síðustu áratugum, sem
verksmiðjuiðnaðurinn er að verða einn
höfuðatvinnuvegur þjóðarinnar.
1944 eru starfandi handiðnaðar- og verk-
smiðjutæki á öllu landinu talin 1435 og
440 þús. vinnnuvikur unnar hjá þeim, en
Vönduð vinna!
Fljót afgreiðsla!
Sanngjarnt verð!
Blikksmiöjan
GRETTIR
Brautarholt 24. — Sími 2406 og 7529.
Smíðar eftir pöntun:
Vatnskassa, ljósker og eldhúsáhöld
í skip. Þakrennur, þakglugga, rennu-
járn og allt, sem tilheyrir blikksmíði
við húsabyggingar. Framleiðir einn-
ig ýmiskonar búsáhökl, svo sem:
Mjólkurbrúsa, Olíubrúsa, Fiskspaða,
Kökuform, svo og vatnskassaelement
í bíla o. m. fl.
FELUMYND
Hvar er strákurinn hann Pétur?
greidd vinnulaun í iðnaði það ár nam um
130 milljónum króna.
„Hlutur iðnaðarins í útflutningnum sést
nokkuð á því að athuga, hve mikið er
samanlagt útflutningsverðmæti iðnaðar-
vara úr sjávar- og landbúnaðarafurðum,
til samanburðar við heildarúflutningsverð-
mætið það ár.
Breyting hrávörunnar í söluhæfara form,
eins og harðfiskvinnsla, frysting, niður-
suða, lýsis- og síldarbræðsla, síldar- og
fiskimjölsvinnsla o. fl., er talinn iðnað-
ur, er vinnur úr sjávarafurðum, en smjör-
og ostagerð, sútun, innýflahreinsun o. fl.,
er iðnaður, sem notar landbúnaðarafurðir
sem hráefni. IJtflutningsverðmæti slíkra
iðnaðarvara árið 1946 var samtals röskar
134 millj. króna, en heildarútflutningurinn
það ár nam rúmlega 291 millj. króna.
Skortir því lítið á, að helmingur útflutn-
ingsins árið 1946, sem hér er aðeins nefnt
sem dæmi, væri unnin vara, eða m. ö. o.
iðnaðarvara“.
Pepsi-Cola
er eitirsóttasti
svaladrykkurinn
>^oy^ooooo»ooc^oooo<>ooowoooeoooooooooooooocoooooooooooooce»soccc^s^
“ i
Húsmóðirin
hrósar happi yfir sérhverri endurbót, sem
gerð er á heimilinu. Fyrir 10 árum var
byrjað að framleiða Hellu-ofna. Nú er
hafin smíði ryðfrírra eldhús-borða, sem
fást af ýmsum stærðum.
h/fOFNASMJÐJAN
Og með
hverju borði
fæst króm-
aður sveiflu-
krani fyrir
heitt og kalt
vatn.