Vikan - 08.04.1948, Page 9
VIKAN, nr. 15, 1948
9
Fréttamyndir
Þessi mynd er af flugmálaráðherra
grísku stjómarinnar, Panavotis Kan-
nellopoulos. Hún er tekin um það bil,
sem orustan um Konitsa, milli upp-
reisnarmanna og stjómarhersins stóð
yfir. Hann skýrði frá því, að meira en
1000 manns úr liði uppreisnarhers-
ins hefði gert árás á borgina.
Unga stúlkan á myndinni er Josephine Charlotte prinsessa, dóttir Leopolds
Belgíukonungs. Hún hefir lifað í útlegð með föður sínum í Gefn í Sviss,
en hér er hún nýkomin til Stokkhólms, og er amma hennar, Ingeborg,
prinsessa að bjóða hana velkomna.
Howard Hughes heitir þekktur ame-
rískur flugmaður. Fyrir nokkm lék
fimmtán ára piltur Glen Cordes (til
hægri á myndinni) það bragð, að
hann flutti inn í dýrindisherbergi í
hóteli einu í Chicago undir nafninu
„Howard Hughes og fjölskylda". ■—■
Hann leigði sér bíl með bílstjóra og
pantaði mat og kampavín handa sér og
fjölskyldunni og kunningjum sínum
fyrir mörg hundmð krónur. Dýrðin
tók enda, þegar gestgjafinn uppgötv-
aði, að Howard Hughes er ókvæntur.
Til vinstri er jafnaldri Cordes, sem
tók þátt í veizlunni. Foreldrar Cordes
urðu að borga brúsann.
Þetta er myna af einhverjum blómarósum, að taka á móti einhverjum
manni, og skiptir litlu máli um nöfnin, ef augað fær sitt.
„Hinir sex stóm“ em þessir amerísku þingmenn kallaðir. Þeir vom að
koma af fundi Tmmans forseta, þegar myndin var tekin, og em, talið frá
vinstri: Wallace H. White (Republikani), talsmaður meirihlutans í senat-
inu, Joseph W. Martin (Re.), forseti fulltrúadeildarinnar, Alben W. Bark-
ley (Demokrati), talsmaður minnihlutans í senatinu, Arthur H. Vanden-
berg (Re.), núverandi forseti senatsins, Sam Raybum (De.), talsmaður
minnihlutans i fulltrúadeildinni og C. Halleck, talsmaður meirihlutans í
f ulltmadeildinni.