Vikan - 17.06.1948, Blaðsíða 2
2
VIKAN, nr. 25, 1948
PÓSTURINN »
Kæra Vika!
Mig langar til að biðja ykkur bón-
ar, svo er mál með vexti að fyrir
nokkru var sýnd kvikmynd sem hét
„Sonur refsinomarinnar“. („Son of
Fury“ the story of Benjamin Blake).
Ég varð hrifin af þessari mynd, en
um daginn hitti ég kunningja minn
og barst þá í tal um myndina, hann
Maria Monter.
Mynd efst til vinstri: 1 Minnesota vildi það til að tvær mýs lentu í einu
i sama boga. Mynd neðst til vinstri: „Baseball“ er þjóðaríþrótt Bandaríkja-
manna. Mynd í miðju: Húðin á vatnahestum er um tveir þumlungar á þykkt.
Mynd lengst til hægri: Innfæddir lögreglumenn í brezku Austur-Afríku
ganga í stuttbuxum.
hélt því fram að bók, sem þessi mynd
er gerð eftir, hafi komið út í íslenzkri
þýðingu. Er það rétt og hvað heitir
þá bókin ?
Mikið langar mig, ef þið sjáið
ykkur það fært, að birta mynd af
Mariu Monter.
Hvemig er skriftin ?
Aðdáandi Vikunnar.
Svar: Sagan, sem kvikmyndin er
gerð eftir, hefir ekki komið út á
íslenzku. Skriftin er sæmileg og
gott að lesa hana.
Kæra Vika!
Fyrir nokkm var spurt um texta
við lagið „London derry Air“ það
vill svo til að ég hef hann til upp-
skrifaðan, en ekki veit ég, hver hef-
ir þýtt hann og ábyrgist ekki að
hann sé réttur. Svona er hann:
Ég man það enn, við sátum úti saman
um sumarkvöld í iðjagrænni hlíð.
Þú hafðir lokið leik þinn við og gaman
og lítill drengur þráði hvíldartíð.
Þú réttir .til mín bamsins bljúgu hend-
ur
og blessuð sólin kyssti vanga þinn.
Þú varst sem engill ofan til mín
sendur
með yl og sól að gleðja huga minn.
Og síðan oft, er sé ég geislann skina
um sumarkvöld á litla kollinn þinn,
ég bið til guðs að alla æfi þína,
þú yrðir sami góði drengurinn.
Og þegar endar bamsins ljúfi leikur
og lífsins þraut að höndum þínum
ber.
Guð styrki þig, svo megni vilji veik-
ur
að vernda það, sem gott og fagurt
er.
E. t. v. getur einhver gefið upp-
lýsingar um höfundinn.
R. H. Hveragerði.
Bréfasambönd
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Magnús Jónsson (18—25 ára stúlku),
Hlaðseyri Rauðasandshreppi.
Gestur Einarsson (15—17 ára),
Bankaveg 3, Selfossi, Ámessýslu.
Guðmunda Ólafsdóttir (9—11 ára),
Sólvallagötu 15, Keflavík.
Guðbjörg Gunnarsdóttir (17—19 ára),
Brimnesveg 20, Flateyri.
Ásbjörg Ingólfsdóttir (16—18 ára),
Grundarstíg 9, Flateyri.
Ingunn Oddsdóttir (13—15 ára, mynd
fylgi bréfi), Brekku, Ingjaldssandi,
Önundarfirði.
Einar Jósepsson (16—19 ára, mynd
fylgi bréfi), Borgum, Skógarströnd,
Snæfellsnessýslu.
Birgir Jónsson (15—16 ára, mynd
fylgi bréfi), Innra-Leiti Skógar-
strönd, Snæfellsnessýslu.
Ástvin Gíslason (17-—19 ára),
Hreinn Jóhannesson (16—18 ára),
Jónatan Kristjánsson , (18—20 ára),
allir til heimilis á Suðureyri við
Súgandafjörð.
Kæra Vika!
Viltu vera svo góð og fræða okkur
á því, hvort það sé vinstri eða hægri-
handarakstur í Bandaríkjunum. _____
Hvemig er það í Englandi, Noregi,
Svíþjóð og Danmörku. Fyrir svarið
skulum við heiðra þig í io ár.
Með fyrirfram þökk fyrir svarið.
Félagar frá Öldustað.
Svar: Hægrihandarakstur er alls-
staðar í heiminum, nema á Islandi,
Svíþjóð og Englandi. 1 lofti og á sjó
gilda sömu reglur um allan heim —
þar er alltaf vikið til hægri.
i
Rafvélaverkstæði
*
Halldórs Olafssonar
Njálsgötu 112. — Sími 4775.
Framkvæmir:
Allar viðgerðir á rafmagnsvélum
og tækjum.
Rafmagnslagnir í verksmiðjur
og hús.
KLÆÐSKERAR — SAUMASTOFUR
Útvegum frá Hollandi og Tékkóslóvakíu:
Fataefni
• Kápuefni
Ullar-kjólaefni
Crepe-kjólaefni
Hárdúk
Millifóður-striga
%
I
I
I
1
Sýnishorn fyrirliggjandi.
Sveinn Björnsson & Asgeirsson v
tTtgrefaxidi VIKAN HLF., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.