Vikan - 16.12.1948, Blaðsíða 3
JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1948
3
Is?
€?
Jólamynd úr Fyrstu lútersku kirkjunni í Winnipeg.
Séra Eiríkur Brynjólfsson, prestur á Útskálum, hefurgert Vikunni þann greiða
að lána henni þessa mynd. Hann kom með hana hingað heim að lokinni árs
þjónustu við Fyrstu lútersku kirkjuna í Winnipeg. Voru höfð prestaskipti
þannig, að séra Valdimar Eylands þjónaði Útskálum á meðan, en hann er ann-
ar prestur safnaðarins vestra. Séra Eiríkur lét mjög vel yfir dvöl sinni meðal
Vestur-Islendinganna. Lesmálið, sem hér fer á eftir, fylgdi myndinni frá séra
Eiríki.
Mynd þessi er tekin 1 Fyrstu lútersku kirkju í Winni-
peg sunnudaginn milli jóla og nýárs 1947. Fluttu þá eldri
deildir sunnudagaskólans jólasöngleik mjög fagran og
áhrifamikinn. Söngflokkurinn er ekki á myndinni, en allir
aðrir, sem tóku þátt í söngleiknum, María og Jósep, Gabríel
engill og Jóhannes skírari, f járhirðarnir, vitringarnir, guð-
spjallamennirnir Lúkas og Jóhannes, menn og konur af
ýmsum stéttum.
Tókst unga fólkinu mjög vel bæði upplestur og söng-
ur, enda æft af mikilli kostgæfni. Gleymist ekki þessi
jólasöngurleikur þeim, er sáu og á hlýddu.
Sunnudagaskóli Fyrsta lúterska safnaðarins flytur
árlega jólasöngleik, en ekki ævinlega þann sama. Fyllist
kirkjan þá af fólki. Minningar vakna um löngu liðin jól
heima á íslandi, við kertaljós í lágri baðstofu. Svo var
flutzt yfir hafið til nýs lands. Baráttan hófst. Margt
ógleymanlegt hefur borið við á langri leið í framandi
heimsálfu. En jólin hafa flutt birtu og yl, þau eru sól-
skinsblettir í ævi landnemanna.
Og alls staðar eru jólin enn hátíð hátíðanna hjá börn-
um og fullorðnum.