Vikan


Vikan - 16.12.1948, Blaðsíða 13

Vikan - 16.12.1948, Blaðsíða 13
JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1948 13 . Ný framhaldssaga: ...........!.... * Beishur drykhur — ^ Ástasaga eftir Anne Duffield i. Hún hafði verið skírð Celía og átti það nafn vel við hana, það var bæði látlaust og snoturt eins og hún sjálf. Samt sem áður var alltaf talað um Celíu sem „Ijóta andarungann" í fjölskyldunni, því að hún gat á engan hátt jafnast á við hina hrífandi Rosalind, systur sína. Celia hafði ljósbrúnt hár, breitt og lágt enni og var á milli augna hennar og kinnbeinin fremur há. Varir hennar voru rauðar, stórar og fallega lagaðar og þegar hún brosti komu í ljós jafnar og hvítar tennur. Augun voru hið eina, sem gat talizt fagurt við Celíu, þótt litur þeirra væri blendinn sýnaust þau næstum svört í skugga, en hnotbrún í sól'- skini og voru augnhárin stutt, en afar þétt og svört. Það var svo mikill leikur í augum hennar, að þau voru oft búin að tala áður en tungan kom orðum að því, sem hún ætlaði að segja. Þau voru fjörmikil og opinská og komu þvi upp um hana, að hún hugsaði meira en hún jafnvel sjálf gerði sér ljóst. Þetta mikla lif í augunum, sem tók sífelldum breytingum, gerði þau fögur, en hvorki fjölskyldan né vinir fjölskyldunnar virtust hafa tekið eftir þessu. Hún var há og grannvaxin, með fagrar hendur og var gangur hennar hraður. Hún var gædd miklu jafnlyndi, gamansöm og afar skyldurækin, svo að Rosalind og hin systkini hennar notuðu sér það og komu öllu yfir á hennar herðar. Þegar Celía var ársgömul ól móðir hennar tví- burana Michael og Tom og tveimur árum síðar stúlkubarn, Pamelu. Þessi þrjú börn voru öll eins og elzta dóttirin gædd óvenjulegri fegurð, sem Celía hafði farið varhluta af. öll voru þau bráðlynd, eigingjörn og viljasterk. Ef Celía hefði verið eigingjarnari og skapmeiri hefði hún kannske ekki þurft að lúta alltaf í lægra haldið fyrir systkinum sínum. Öllum þótti þeim vænt um Celíu, en með þeim hætti, að þau þóttust geta ætlazt til alls af henni og fannst Celíu sjálfri þetta ekkert óeðlilegt. Einhver varö að vera heima hjá móður þeirra á kvöldin — faðir þeirra hafði dáið skömmu eftir fæðingu Pamelu — einhver varð að sjá um veizlur, tala við leiðinlega gesti, lita eftir þjón- ustufólkinu og blómagarðinum. Og alltaf lentu þessar skyldur á herðum Celíu og hún var alltaf önnum kafin — svo önnum kafin, að húii hafði aldrei tíma til að hugsa um sjálfa sig. Þegar Rosalind gifti sig, eftir að hafa gert alla fjölskylduna hálf-ruglaða með ástarhringli sínu, hefði Celía átt að fá örlitla hvíld, en þá var Pam frumvaxta stúlka, sem þarfnaðist mjög eldri systur sinnar. Móðir þeirra var mest rúm- liggjandi eftir giftingu Rosalind, og varð Celía því að skipa hennar rúm á heimilinu. Og siðan dó móðir þeirra, bræðurnir voru í þann veginn að ljúka námi sínu, en þurftu að eiga gott heimili til að vera á í leyfum sinum og um helgar. Þannig var Celía alltaf störfum hlaðin, og hafði aldrei tækifæri til að lifa lífinu, eins og hún hefði kannske helzt kosið sér. Hún var alveg hætt að setja það fyrir sig. Henni þótti innilega vænt um bræður sína og systur. Hún elskaði gamla húsið, sem þau bjuggu i og heimilið, er hún stjórnaði með svo mikilli prýði. Þá sjaldan sem hún hugsaði um framtíð sína, átti hún að búa þarna áfram, skapa syst- kinum sínum og börnum þeirra samastað, þegar þau vildu. Þetta voru að visu ekki sérlega glæsi- legar framtíðarhorfur og varð Celia jafnan döpur á svip við þessar hugleiðingar, en annars reyndi hún að taka örlögum sínum með skynsemi og jafnaðargleði. Það var eigi óalgengt að í stórum fjölskyldum væru ungar stúlkur, sem áttu sér svipaða framtið og hún. En dimman morgun einn vaknaði Celía i döpru skapi og fannst hún ekki geta lengur sætt sig við tilveruna. Hún lá grafkyrr og starði á ógreinilegan ferhyrninginn á veggnum — var það glugginn og stóð hann opinn og blés kaldur og drungalegur vindur inn um hann. ,,Hvað á ég að taka mér fyrir hendur,“ tautaði hún lágt við sjálfa sig. Það var afmælisdagurinn hennar í dag og var hún nú orðin tuttugu og sex ára! Henni fannst það næstum ótrúlegt. En hvað árin voru fljót að líða, þegar menn höfðu ekki tíma til að staldra við og íhuga það nánar. En nú varð hún að taka sér hvíld og hugsa. Þar sem hún lá þarna í hálfrökkri janúarmorgunsins var andlit hennar fölt á koddanum — það var líkast því sem hún hefði orðið fyrir áfalli. En í þetta skipti vannst henni ekki langur tími til heilabrota, ekki fremur en venjulega. Hún varð að fara á fætur til að sjá um að morgunverðurinn yrði tilreiddur og húsið gert hreint og hitað áður en hin kæmu á fætur. Og síðan varð hún að tala við eldabuskuna um hádegisverðinn. Það var laugardagur og þá kom öll fjölskyldan heim eins og venjulega til að dvelja þar um helgina. Michael og unga konan hans frá næstu borg, Tom frá búgarðinum, þar sem hann var nýorðinn ráðsmaður og sennilega myndi unnusta Toms og kunningi Pamelu einnig borða með þeim. Celía varð að búa til ábætinn sjálf, því að eldabuskan var ekki fær um það. Sömuleiðis varð hún að gera maukið innan í kjúklingana, annars vildi fjölskyldan ekki borða þá. Hún þurfti að sjá um blómin, setja saltar möndlur og súkkulaði í silfurskálarnar og gera ótalmargt annað. Pam vildi ekkert gera af þessu, því að hún hataði öll heimilisstörf. Celía varð að hrista þessi störf snemma af, þvi að hún .ætlaði að skreppa til London og vera þar allan daginn. Hún fór fram úr rúminu, lokaði glugganum, Nýja framhaldssagan. Nú er framhaldssögtmni „Paradís“ lokið. Hún hefur orðið mjög vinsæl, ein af vinsælustu framhaldssögunum, sem við höfum birt í blaðinu, og með- fram vegna þess, höfum við valið aðra ástasögu eftir sama höfund, og vonum við, að hún muni líka eiga miklum vinsældum að fagna. gekk hljóðlega inn í baðherbergið og fór i kalt bað. Henni fannst ekki gott að fara í kalt bað, en vatnið var aldrei orðið heitt fyrr en eftir klukkan átta. Kalda vatnið hressti hana, hún klæddi sig og virtist vera komin i rólegt skap, enda þótt hún væri ennþá föl í andliti. „Hvert ertu að fara?“ spurði Pam, þegar hún nokkrum klukkutimum síðar mætti Celiu ferð- búinni i forsalnum. „Til London, góða mín!“ „Til London og það í dag? En hvernig fer þá með hádegisverðinn. Ég hefi boðið Jack —“ „Ég hefi búið til góðan ábæti,“ svaraði Celía með rósemi, ,,og troðið í kjúklingana. Það er því allt tilbúið." „En þú verður ekki hér sjálf! Ég á við, að þú veizt hvernig eldabuskan og Ethel eru. Og hvers vegna ferðu líka til London á laugardegi ?“ „Ég ætla að borða með Tómasi frænda." Það var föst venja hjá henni að borða alltaf á afmælisdaginn með móðurbróður sínum og fara síðan með honum í leikhús. „Drottinn minn, er þá afmælið þitt í dag?“ hrópaði Pam. „Já, ég ei' hrædd um það. Ég ætti rauninni að fara að hætta að eiga afmæli. Ég fer að verða gömul og gráhærð." II. „Hjartanlega til hamingju, elsku barnið mitt!“ Tómas frændi skálaði við ungu stúlkuna, sem sat andspænis honum við litla borðið. Pjölskyld- an hafði gleymt afmælisdegi hennar, eins og hún gerði venjulega, og sjálf hafði Celía ekkert haft á móti því að gleyma þessu tuttugu og sex ára afmæli, en Tómas frændi gleymdi deginum aldrei. Skeyti hans hafði komið daginn áður og þar hafði hann beðið hana að mæta sér á Berkeley. Celía brosti til hans, þegar hún lyfti glasi sínu. ,,Og hyernig líður þér?“ spurði hann. ,,Þú ert fremur föl.“ „Er það?“ Hún var nokkuð fljótmælt. Tómas frændi horfði með athygli á hana. Hún var klædd þokkalegum skraddarasaumuðum búningi og bar fallegan, en nokkuð snjáðan silfurref, sem Rosalind hafði gefið systur sinni, þegar hún fékk sér sjálf nýjan. Hatturinn hennar var lítill, svartur og ekki sérlega fallegur. 1 þessum klæðnaði leit hún út fyrir að vera ekki degi yngri en hún var. öðru máli hefði verið að gegna, ef hún hefði vandað búning sinn betur — eða þannig hugsaði frændi hennar. En hún var svipmikil og tíguleg þessi unga kona. ,,Ég er í vanda staddur," tók hann til máls. ,,Ef til vill getur þú hjálpað mér. Mér hefur verið falið verk og veit ekki, hvernig ég á að leysa það af hendi. Þú hefur heyrt mig minnast á Tim Carruthers, er ekki svo?“ „Er það hann, sem býr á Bermudaeyjum ?“ ,,Já, einhvers staðar þar i nánd. Ég veit ekki i rauninni til hvaða eyjaklasa heimaey hans telst — það úir og grúir af eyjum með fram þessari strönd. Jæja, en snúum okkur nú að efninu — Carruthers er einhvers konar sérfræðingur — ferðast um allan heim og er næstum aldrei heima. Hann á dóttur, sem giftist illa og býr hún nú heima hjá föður sínum. Kona Carruthers dó

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.