Vikan


Vikan - 02.06.1949, Síða 1

Vikan - 02.06.1949, Síða 1
Listmunasýning Unnar Ólafsdóttur í Sjðmannaskólanum nýja Vikan hafði um nokkurt skeið haft í hyggju að fá að birta ljósmyndir af einhverjum hinna fögru og merkilegu verka Unn- ar Ólafsdóttur og er við frétt- um, að frúin væri að undirbúa listmunasýningu, fór ritstjóri blaðsins heim til hennar og fékk að skoða gripi þá, sem ekki var þegar búið að flytja á sýning- arstaðinn. Þetta er ákaflega merkilegt safn, auk verka frú- arinnar, sem dreifð eru víðsveg- ar um landið. Enginn kostur er á að lýsa því hér, enda sjón sögu ríkari fyrir þá, sem geta komið því við að skoða sýninguna í Sjó- mannaskólanum. Þetta blað fór í prentun þó nokkru áður en hún var opnuð, en þar eru alls- konar gull- og silfursaumaðir munir, aðallega kirkjumunir, altarstöflur, gull- og siífursaum- aðar, útskornir munir, nýir og gamlir, sem frú Unnur hefur safnað víðsvegar að, gert og lát- ið búa til, t. d. gullsaumuð kór- kápa frá 16. öld, um 300 ára gamall trékross, tréskurðar- mynd af Maríu guðsmóður með barnið, gerð eftir austurrískan listamann, veggteppi, saumað eftir uppdrætti af Valþjófsstað- arhurðinni (ramminn er skor- inn höfðaletri og er það skýr- ing á uppdrættinum, en frú Unn- ur hefur sjálf skorið rammann); allskonar munir með innsettum Framhald á bls. 8. GullsaumaSur kross á fjólubláum föstuhökli, sem Hjalti konsúll Jónsson gaf Fríkirkjunni í Reykjavík á átttugasta afmælisdegi sínum á föstudaginn langa. Hökullinn var vígður þann dag og tekinn í notkun. (Alfred D. Jónsson tók myndina).

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.