Vikan


Vikan - 02.06.1949, Qupperneq 2

Vikan - 02.06.1949, Qupperneq 2
2 VIKAN, nr. 22, 1949 Ljósmyndastofa Ernu & Eiríks Ingólfs apoteki — Sími 3890 PÖSTBRINN * Svar til A. Á.: Utanáskrift Sam- tiðarinnar er pósthólf 75, Reykjavík (sjá auglýsingu í blaðinu). — Því miður höfum við ekki rétt til þess að birta umbeðið kvæði, en kvæða- safn Davíðs, gefið út af Þorst. M. Jónssyni, er mjög viða til. Svar til „Sonar innfjarða og út- kjálka“: Veiðarfæraverzlunin Geysir hefur til 4-manna tjöld á kr. 422, tjaldbotna á kr. 86.75. Ljósmynda- vélar hafa ekki fengizt um langt skeið. Engin ferðaviðtæki eru fáan- leg. Vika mín! Mig langar til að leita til þín með vandræði mín, en þeim er svo háttað að ég hef dálítið gular tennur. Ég hef reynt að ná þessari gulu húð af tönnunum með því að bursta þær, en það dugar ekki. Þær eru alltaf jafn gular. Geturðu sagt mér, hvernig ég á að fara að því að ná þessu af tönnunum? Eða er það ekki hægt? — — Svaraðu mér fljótt. Hvernig er skriftin? Með fyrirfram þökk fyrir svörin. Einn ungur. Svar: Réttast er að leita tann- læknis. — Skriftin er ekki falleg en læsileg. Kæra vika mín! Ég er 17 ára, og 167 cm. á hæð. Hvað á ég að vera þung? Ég er með dökkjarpt hár og blá augu, hvaða litir fara mér vel. Hvernig er skriftin. Með fyrir fram þökk. Svar: 1. 62. kg. — 2. Allir litir, sem annars eru fallegir! — 3. Snot- ur og vel læsileg. Kæra Vika! Ég ætla að leita ráða til þín. Ég er afskaplega hrifin af ungum pilti. Við erum sautján ára, og hann gaf það í ljós að hann væri hrifin af mér, en nú hef ég frétt, að hann hafi verið með annarri stúlku á tíma- bili, en vill ekki sjá hana nú. Hún er fimm árum eldri en hann. Getur það gengið ? Ég er feimin og get ekki nema að einhver vina mín hjálpi mér, að tala við hann. Eða á ég að láta hann eiga sig, það á ég bágt með, hann sagði að við værum bæði of ung til að binda okkur. Hvað meinar hann með því ? Hvað á ég að gera? Vonast eftir svari sem fyrst. Gefðu mér góð ráð. Hvernig finnst þér skriftin? Ein ráðalaus. Svar: Auðvitað getur það gengið, að konan sé eldri en maðurinn, þótt hitt sé venjulegra. Við hvað hann á með þvi, að þið séuð bæði of ung til þess að binda ykkur liggur að sömu leyti í augum uppi, þegar gætt er að aldri ykkar, en svo gæti líka hugs- ast, að hann kærði sig ekki um þig og segði þetta vegna þess? Ráðið el að bíða meðan þú eldist dálítið og reyna að halda skynsamlegu sam- bandi við hann, fyrst þú ert svona hrifin af honum og þá leysist hnút- urinn af sjálfu sér fyrr eða síðar! Kæra Vika! Ég vona að þú svarir spurningum mínum. 1. Viltu segja mér eitthvað um leikarann Lon McCallister. Er hann giftur ? 2. Ég er með skollitt hár, og grá- blá augu, og frekar dökk í andliti. Hvaða litir klæða mig bezt? Ég sendi þér hérna kvæðið, sem þú þekktir ekki um daginn. Þúsund kossar fyrir svörin við spurningun- um. Hvernig er skriftin? Eva. Svar: 1. Fæddur 17. apríl 1923, í Los Angeles í Kaliforníu. Hann fékk boð um að leika í kvikmynd, þegar hann var í gagnfræðaskóla og hafði þá einu sinni komið fram í útvarpi. Aðrar upplýsingar um hann höfum við ekki við höndina. 2. Sterkir litir, t. d. blár, ættu að fara yður vel. EIN 1 HXJMI. (Lag: Lonely River) Ein í húmi áfram líður áin lygn og tær. Ymur hennar ómar þýður er hún bugðast hrein og skær. Hún, sem þekkir hafið bláa hnígur endalaust, kveður lágt við lundinn lága, ljúft þar kvöddumst við í haust. Fljót, þú, sem rennur í fjarlæga unn, finndu þá mey, sem okkur er kunn. Segðu henni, sem að bíður, senn ég komi heim er þú alein áfram líður, út í hafsins víða geim. Bréfasambönd Birting á nafni, aldri og heimilis- fangi kostar 5 krónur. Guðmundur Jónsson (við stúlkur 16— 17 ára), Mýrartungu, pr. Króks- fjarðarnes. Björn Ásgeir Sumarliðason (við stúlkur 16—17 ára), Gróustöðum, pr. Króksfjarðarnes. Gunnar Magnússon (við stúlkur 16— 18 ára, mynd fylgi bréfi), Eyja- seli, Hlíðarhreppi, N.-Múlasýslu. Hreinn Kristinsson (við stúlkur 16— 18 ára, mynd fylgi bréfi), Bakka- gerði, Hlíðarhreppi, N.-Múlasýslu. Guðmundur Hjálmarsson (við stúlk- ur 18—25 ára), Fagrahvammi, Djúpavogi. Sólveig Jóhannesdóttir, María Kristjánsdóttir, (við pilt eða stúlku 17—25 ára, mynd fylgi), báðar til heimilis Neðri-Bæ, Flatey á Skjálfanda. Geir Guðlaugsson (við pilt eða stúlku 13—15 ára), Halldór B. Ragnarsson (við pilt eða jstúlku 12—14 ára), Áki Jónsson (við pilt eða stúlku 10— 12 ára), allir frá Hjalteyri við Eyjafjörð. Anna Einarsdóttir (við pilt eða stúlku 16—20 ára), Sperðli, V.- Landeyjum, Rangárvallasýslu. Fino Radka Bulgurova, Br. Miladi- novi nr. 126, Sorio 2, Bulgario, dez. koresp. pri ciuj temoj, intersang PK kaj PM. Hilkka Rytkönen (við sunnudaga- skólatelpu á íslandi), Grankulla, Brannberga, Finland. Skrifar sænsku, skilur dönsku og ensku. Inga Helgadóttir (við pilta eða stúlk- ur 19—25 ára), Miðhúsum, Gnúp- verjahreppi, Árnessýslu. Dúna Flosadóttir (við pilta eða stúlk- ur 16—20 ára), Miðhúsum, Gnúp- verjahreppi Árnessýslu. Guðmundur E. Guðmundsson (við stúlkur 15—17 ára, mynd fylgi bréfi), Mávahlið 41, Reykjavík. Tímaritið SAMTÍÐIN Flytur snjallar sögur, fróðlegar ritgerðir og bráðsmellnar skop- sögur. 10 hefti árlega fyrir aðeins 20 kr. Ritstjóri: Sig. Skúlason magister. Áskriftarsimi 2526. Pósthólf 75. ^.. ■ y Happdrætti Háskóla Islands Dregið verður í 6. flokki 10. júní. 452 vinningar — samtals 150600 kr. Hæsti vinningur 15000 krónur. Endurnýið strax í dag

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.