Vikan - 17.11.1949, Síða 2
2
VIKAN, nr. 46, 1949
PÓSTURINN ■
Forsíðumyndin í síðasta blaði, nr. 45,
10. nóvember, af Ævari R. Kvaran
leikara
var tekin af Óskari Gíslasyni Ijós-
myndara. Þessa láðist að geta undir
myndinni og var það því lakara sem
myndin er mjög vel tekin. Biðjum
við Óskar velvirðingar á þessum
misgáningi.
Kæra Vika mín!
Viltu nú vera svo góð að svara
eftirfarandi spurningum við tækifæri:
1. Er réttara að skrifa nafnið Rut
með h aftan við?
2. Hvaða nöfn hefur Ingiríður
^rottning ?
Hvernig er skriftin?
Svo þakka ég þér fyrir allar
ánægjustundirnar, sem þú hefur veitt
mér á liðnum árum.
Kær kveðja frá þinni
Káru.
Svar: 1. Nei, tæplega.
2. Ingiríður Viktoría Sofia Lovísa
Margrét.
Skriftin er prýðileg.
Kæra Vika!
Þetta er í annað sinn, að ég skrifa
þér. Enn ertu ekki farin að svara
hinu bréfinu, en ég vonast til að þú
gerir það á næstunni.
Viltu vera svo góð og gefa mér
upplýsingar um Húsmæðrakennara-
skóla Islands ? Þarf maður að hafa
gagnfræðapróf til að komast í hann?
Með fyrirfram þakklæti.
Georgía Georgsdóttir.
Eilífðarspurningin: Hvernig er
skriftin ?
Svar: Húsmæðrakennaraskólinn er
nær því tveggja ára samfelldur skóli
og undirbýr nemendur til þess að geta
kennt í húsmæðraskólum. Kennslan
er bókleg og verkleg. Inntökuskil-
yrði eru að nemendur séu 21 árs, hafi
gagnfræðapróf eða hliðstæða mennt-
un (bezt er að hafa stúdentsmennt-
un). Kennslugreinar eru vefnaður,
handavinna, matreiðsla, vöruþekk-
ing, næringarefnafræði, líffærafræði,
heilsufræði, grasafræði, reikningur,
íslenzka, uppeldisfræði, efna- og
eðlisfræði, garðrækt, kennsluæfingar.
— Kennslan hefst á haustin í Reykja-
vík, sumarið næsta er dvalizt að
Laugarvatni, haustið ^ftir er aftur
flutzt til Reykjavíkur og nemendur
brautskráðir þar næsta sumar í júní
eða júlímánuði.
Skriftin er vel læsileg.
Margfróða Vika!
Við erum hér tvær vinstúlkur, sem
langar til að biðja þig að leysa úr
nokkrum spurningum fyrir okkur.
1. Eru Dóru-bækurnar eftir Ragn-
heiði Jónsdóttur sannar?
2. Hvernig er hægt að ná joðblett-
um úr fötum?
3. Hvað er Margaret O’Brien göm-
ul?
4. Er satt að Judy Garland sé ör-
eigi?
5. Hvaða barnaskóla telur þú bezt-
an i Reykjavík?
★
Eufemia og Jens
Waage ogbörnþeirra:
Prá v.: Hákon, Krisb
ín, Indriði. (Sjá for
síðu og blaðsíðu
3. Allar myndirnar,
nema forsíðumyndin,
sem útdrættinum úi'
„Lifað og leikið1
fylgja, eru í þeirr
bók).
Með fyrirfram þakklæti fyrir svör-
in.
Tvær vinstúlkur úr Mosfellssveit.
E. S. Hvernig er skriftin ?
Svar: 1. Nei, það er fráleitt. — 2.
Til þess má nota eter eða vínanda.
— 3. Hún verður 13 ára 15. janúar
næstkomandi. — 4. Nei, svo illa er
hún ekki komin. — 5. Þessu getum
við ekki svarað, því miður.
Halló Vika min!
Viltu vera svo góð og segja mér
eitthvað um Reynir Sigurðsson og
Gunnar Ölafsson?
Hvað þeir eru gamlir eru þeir gift-
ir?
Hvað er heimilisfang þeirra?
Með fyrirfram þakklæti.
Lulla.
E.S. Hvernig er skriftin?
Svar: Reynir Sigurðsson er 21
árs, skrifstofumaður hjá Shell, hef-
ur verið Islandsmeistari í 400 m.
hlaupi og átti um skeið met í 400 m.
grindahlaupi. Var í fyrravetur og í
sumar við nám í Englandi og þjálf-
aði íþróttir því í minna lagi. Heim-
ilisfang hans er Mímisvegur 4,
Reykjavík. Gunnar þennan Olafsson
þekkjum við ekki.
E.S. Skriftin er fremur ókvenleg.
Bréfasambönd
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónnr.
Sjana Kristjáns,
Elvíra Eyjólfs,
Shirley Davíðs,
Sylví Marteins,
(við pilta eða stúlkur) allar til
heimilis á Sauðárkróki.
Aðalheiður Runólfsdóttir (við pilta
eða stúlkur 18—30 ára),
Dansý Ingvarsdóttir (við pilta eða
stúlkur 18—30 ára),
Kristín Kristjánsdóttir (við pilta eða
stúlkur 17—20 ára),
Þóra Kristín Flosadóttir (við pilta
eCa stúlkur 16—20 ára),
myndir fylgi, allar á Tóvinnuskól-
anum Svalbarði, pr. Svalbarðseyri,
Eyjafirði.
Mæsa Björns (við pilta og stúlkur
18—20 ára), Hverfisgötu 29, Siglu-
firði.
Soffía Jóhanns (við pilta eða stúlkur
18—20 ára), Túngötu 20, Siglu-
firði.
Anna Jóna Ingólfs (við pilta og stúlk-
ur 18—20 ára), Hvanneyrarbraut
36, Siglufirði.
Nýjasta nýtt!
Galdrabók
við allra hæfi.
Eftir HOUDINI,
frægasta sjónhverfinga-
mann heimsins.
Komin í bókaverzlanir.
Sveinn Jóhannesson (við stúlkur 15
—18 ára),
Ragnar Jónatansson (við stúlkur
15—18 ára),
báðir á Héraðsskólanum, Reyk-
holti, Borgarfjarðarsýslu.
Tímaritið SAMTÍDÍN
Flytur snjallar sögur, fróðlegar
ritgerðir og bráðsmellnar skop-
sögur.
10 hefti árlega fyrir aðeins 20 kr.
Ritstjóri: Sig. Skúlason magister.
Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75.
■
JAZZLEIKARINN
Kontrabassinn er nú talinn
ómissandi hljóðfæri í jazz-
hljómsveitum, enda setur hinn
djúpi hljómur hans alltaf sinn
sérstæða blæ á hljómsveitir
þær er hann hafa.
Margir ágætir bassaleikar-
ar hafa komið fram síðari ár-
in, en mesta athygil hefur þó
Eddie Safranski vakiö.
Hann er fæddur í Bandaríkj-
unum af pólsku foreldri. Mjög
ungur byrjaði hann að læra á
fiðlu og lék hann lengi vel á
það hljóðfæri í symfóníuhljóm-
sveit áður en bassinn og jazz-
inn tóku hug hans.
Undirstöðulærdómur hans
frá fiðlunni á sennilega mikinn
þátt i því að hann er teknisk-
asti bassaleikarinn, sem nú er
uppi og getur vel að heyra
tækni hans á plötum með
hljómsveit Stan Kenton, en þar
lék hann í nokkur ár. Nú
stjórnar hann lítilli jazzhljóm-
sveit í New York.
Svavar
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.
'HlfllMlHltipiílllPIIIMIIIIIIIMIIIIIIrHMiMMHI.MIMIMIIinMimMMIIIIMIIIMMIIIIIIlímiMIMIIIIMMMIIMIiilllMiMilMMIIIIIHIliiniiMMMMHIlUnilllllllllllllHIIIUIIIIIIIII*'