Vikan - 27.06.1991, Qupperneq 14
TEXTI: PORSTEINN ERLINGSSON
stralíubúar eru andfætlingar okkar
íslendinga og ættu í hugum hér-
// V lendra barna aö detta af jaröarkúl-
k—unni því þeir standa á landi sem
# v liggur undir henni, landi sem er
fullt af kengúrum og meö stóru skrítnu óperu-
húsi (einni stórborginni.
Þetta land, sem er reyndar ein af heimsálf-
um jarðar, er eins langt frá íslandi og hugsast
getur. Þaö er því ekki nema von aö fólk hafi
óljósar hugmyndir um staöhætti þar. Nokkrir
íslendingar hafa flust búferlum þangað, búiö
þar um lengri eða skemmri tíma og margir
hverjir búa þar enn. Einn af þeim er sautján ára
piltur, Guðmundur Bragi Guðmundsson.
Guðmundur flutti fyrst út meö móður sinni,
Sigríði Guönýju Ingvadóttur, og fósturfööur,
David L. Walters, áriö 1985 og dvöldu þau þá
ytra í tæpt ár. Áður höfðu þau veriö þar í tvo
mánuði.
David starfaði hér í sérgrein sinni sem Ijósa-
maður hjá Þjóðleikhúsinu en hann er borinn og
barnfæddur Ástrali og höfðu þau Sigríður búið
saman hér á landi í sjö ár. Þau langaði til að
fara til Ástralíu og athuga hvernig atvinnu-
möguleikar og annað væri þar og átta sig á
hvort þau vildu setjast þar að. Eftir að hafa
dvalið þar nokkurn tíma komu þau aftur til
Islands. Þau fluttu þó enn og aftur út eftir um
eins árs dvöl hér og búa þar enn. Aron Njáll,
bróðir Guðmundar, fæddist svo haustið 1988.
Þau búa nú í Brisbane, milljón manna höfuð-
borg Queenslandfylkis. Hún er um áttatíu
kílómetra frá fæðingarbæ Davids, Caloundra,
sem aðeins nokkur þúsund manns byggja,
þeirra á meðal móðir hans.
í nágrenni Brisbane eru margar fallegar
strendur og töluvert af erlendum ferðamönnum
kemur þangað til orlofsdvalar en staðurinn er
jafnframt mikið sóttur af Áströlum sem koma til
að njóta útiveru og þess sem strandlífið hefur
upp á að bjóða.
■SuMOivl" S'M' *
s-fjss
HAFNAI
ALLTOF
FYRIR MIG
Guðmundur Bragi hefur
verið búsettur í
Ástralíu í sex ór
SAM-MYND: ÞORSTEINN ERLINGSSON