Vikan - 27.06.1991, Page 48
VELHEPPNAÐIR ÞUNGAROKKSHLJOMLEIKAR í HAFNARFIRÐI
Ariö 1965 voru The Roll-
ing Stones þegar orðn-
ir þekktir fyrir svo mikið
sukk á hljómleikum að hótel-
eigendur voru hættir að þora
að hýsa þá. Þegar Deep
Purple kom hingað í upphafi
áttunda áratugarins héldu þeir
partí á Hótel Esju og allir gestir
þeirra fengu heila flösku af
sterku víni - hver - til að
dunda við. Ég var einmitt
staddur þarna og kom það lítið
á óvart þegar öll hersingin var
rekin út; hljómsveitin meðtalin.
Þá var bara haldið í partí ann-
ars staðar í borginni og daginn
eftir bauð hljómsveitin hverjum
sem vildi ókeypis far með
einkaflugvél sinni til Lundúna.
„Mikið hafa nú tímarnir
breyst,“ hugsaði ég þegar ég
sat og drakk kaffi í íþróttahöll-
inni við Kaplakrikavöll í Hafn-
arfirði um daginn, en þar voru
einmitt búningsherbergi og af-
slöppunaraðstaða fyrir sex
hljómsveitir sem spiluðu á
þeim stærstu hljómleikum sem
haldnir hafa verið hér á landi.
Þarna var ekki sukkinu fyrir
að fara og í staðinn fyrir vodka
og viskí voru ávextir og kaldur
matur á boröum í búningsher-
bergjunum. Hljóöfæraleikarar
allra hljómsveitanna voru í
fínu formi og voru ýmist að
grínast innbyrðis eða tala við
blaðamenn frá ýmsum
löndum. Þarna var Vanesa
Warwick, sjónvarpsstjarna frá
MTV og sérstakur velunnari
Vikunnar, enda leyfði hún ekki
öðrum íslenskum blaðamönn-
um en mér að fylgjast náið
með ferðum sínum. Vikan og
MTV hafa nefnilega gert með
sér sérstakan samvinnusamn-
ing. Meö henni var valið
tæknilið myndatökumanna,
hljóðmanna og fleiri tækni-
manna undir stjórn Mikes
Kaufman. Af og til stillti hún
upp frægum mönnum í löng
viðtöl eða þá að hún fór út
undir bert loft til að fylgjast
með gangi mála á sjálfum
hljómleikunum. Þegar færi
gafst voru svo að minnsta
◄ Söngvari Bullet
Boys á fleygiferð um
sviðið í eldfjörugu lagi.
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON / SAM-MYNDIR: KRISTJÁN LOGASON OG BINNI