Vikan - 27.06.1991, Blaðsíða 53
VANESA WARWICK, KYNNIR HJÁ MTV
Endur-
vinnsla
ámúsík
Að hljómleikunum loknum fóru
sumir upp á Hótel ísland en
aðrir heim að sofa. Meðal
þeirra var sjónvarpsstjarnan
Vanesa Warwick sem sér um
þáttinn Headbangers Ball á
MTV á sunnudögum. Þetta er
vinsæll, tveggja klukkustunda
langur þáttur og hún var að
viða að sér efni í hann. Fram-
leiðandi þáttanna, Mike
Kaufman, var henni til trausts
og halds en auk þess lét hann
taka upp heilmikið af efni fyrir
aðra þætti MTV, svo sem
fréttir. Meiningin var að gera
hljómleikunum á Kaplakrika
rækileg skil í nokkra daga
áður en þáttur Vanesu frá ís-
landi yrði sendur út, 23. júní.
Meðan hún tók viðtölin var
þess krafist að allt væri með
kyrrð og spekt í kringum hana.
Vanesa er myndarleg, há og
grönn, með mikið platínuljóst
hár og áberandi hvar sem hún
fer. Þegar við fórum að ræða
saman um afrakstur dagsins
hreinlega Ijómaði hún.
„Það hefur verið stórkostleg
upplifun að koma hingað,"
sagði hún. „Ég fór í Bláa lónið
í gær. Hér er allt svo hreint og
tært; hreinlega ótrúlegt. Það er
á hreinu að ég kem hingað aft-
ur eins fljótt og ég get.“
Ég spurði hana hvernig
stæði á því að þungarokk,
sem væri hvorki ný né frumleg
músík í sjálfu sér, væri svona
vinsælt um þesar mundir.
„Það sem einu sinni hefur
Vanesa fór mikið um áhorfendasvæðið með upptökumönnum MTV.
Hér er hún að leita álits islensks áheyranda á hljómleikunum. Sá
með sólgleraugun til vinstri er stjórnandi þáttagerðarinnar fyrir
sjónvarpsstöðina heimsfrægu.
verið vel gert hefur tilhneig-
ingu til að ganga f hring og
koma aftur."
- Ég hef tekið eftir þvf að
margar af þessum nýju hljóm-
sveitum sækja andagiftina í
gamlar hljómsveitir, eins og
Led Zepþelin og Black Sabath
- en þær voru upp á sitt besta
fyrir tuttugu árum og voru góð-
ar hvor á sínu sviði.
„Þaö er satt. Einmitt það
Blaðamaður Vikunnar, Þorsteinn Eggertsson, ásamt Vanesu, en hún
fræddi hann um geysilega margt varðandl MTV, sem SAM-útgáfan
hefur tekið að sér kynningarstaf fyrir hér á landi.
sem ég á við með hringrásinni.
Nú er mikið talað um endur-
vinnslu á ýmsum sviðum. Þótt
það sé kannski svolítið ólíkt
þessu má segja að þetta sé
eins konar endurvinnsla í
músík."
- Nokkuð sem þér kom á
óvart á þessum hljómleikum?
„Stundum vinn ég þannig
að ég verð að láta mér koma
hitt og þetta á óvart þegar ég
fer að skoða það betur. Það er
að vísu áberandi að fólk kem-
ur hingað til að skemmta sér
og gerir það svo sannarlega,
en ég hafði heyrt það áður að
þið væruð mikið skemmtana-
fólk."
- Þessi jakki sem þú ert
í... er hann sérsaumaður á
Þig?
„Hann er reyndar sérsaum-
aður en ég á hann ekki. Ég
fékk hann lánaðan hjá vini
mínum."
- Nokkuð sem þig langar
að segja (slendingum áður en
þú ferð í háttinn?
„Það þarf ekki að segja ykk-
ur eitt eða neitt. Þið eruð lukk-
unnar pamfílar."
BRIAN DIAMOND
Frh. af bls. 5
um efni sem gæti höfðað til
Frakka. Með breyttri sjón-
varpsdagskrá þar gæti þetta
breyst. í fyrra sýndum við sér-
stakan þátt með ítalskri
músík, eftir að Italía vann f
Eurovision og hafði fengið
nokkur lög á vinsældalista
víða. Margir Italir horfðu á
þennan eina þátt en síðan
ekki söguna meir. Við erum að
vísu háð þeirri takmörkun að
sjónvarpa á ensku, kannski
eðli málsins samkvæmt, en
þeir sem eru með textastýring-
ar á tækjum sínum geta í
mörgum tilvikum fengið að-
gengilega skýringartexta ef
þeir skilja ekki ensku. En þeg-
ar öllu er á botninn hvolft snýst
málið um að bjóða upp á góða
dagskrá og það er eingöngu
með því móti sem við náum til
fleiri áhorfenda því að sam-
keppnin er mikil og hörð.
ÞUNGAROKK ÁHRIFA-
MEIRA Á TÓNLEIKUM
Þegar hér var komið í viðtal-
inu fórum við að ræða um
heima og geima í sambandi
við músík; tískusveiflur, nýj-
ungar og ánnað í þeim dúr.
Brian viðurkenndi að þótt sum-
ar tegundir tónlistar nytu sín
betur á myndböndum en á
hljómleikum væru aðrar teg-
undir margfalt áhrifameiri í
þeirri nánu snertingu sem fólk
verður fyrir á hljómleikum.
Þungarokk væri til dæmis mun
líklegra til að fylla stór hljóm-
leikasvæði en diskódrottning-
ar þótt plötusala gæfi allt aðra
vísþendingu.
Áður en við kvöddumst gat
hann ekki orða bundist yfir því
hvað hann kynni vel við sig hér
á landi og spurði mig til dæmis
hvort ég gerði mér fyllilega
grein fyrir því hvað Bláa lónið
væri stórkostlegt, enda er
hann staðráðinn í að koma
hingað aftur. Þegar Christine
Gorham, blaðafulltrúi sjón-
varpsstöðvarinnar, hringdi svo
í mig tveim dögum seinna
sagðist hún þegar vera farin
að sakna íslands. □
13. TBL.1991 VIKAN 51