Vikan - 06.07.1950, Qupperneq 2
2
VIKAN, nr. 26, 1950
PÓSTURINN •
Svar til Siguröar Sœfara:
Því miður getum við ekki gefið
yður upplýsingar um það, hvort hægt
verði að komast á norskt vöruflutn-
ingaskip, og viljum við benda yður á
að leita upplýsinga um það hjá
norska sendiráðinu á Fjólugötu 15,
Reykjavík.
Svar til G. Á. K.:
1. Ef þig langar til að grennast
er bezt fyrir þig að forðast allan
feitan mat (t. d. rjóma, feitt kjöt,
feitan fisk o. s. frv.) og öll sætindi.
Borðaðu sem minnst á kvöldin. Farðu
í gönguferðir og reyndu að iðka sund,
leikfimi og aðrar íþróttir.
2. a) Sætur matur og fituríkur
(smjör, tólg, feitt kjöt o. s. frv.) er
fitandi. b) Fyrir manneskju, sem er
að grenna sig er bezt að borða sem
mest af grænmeti.
3. Skriftin er ekki góð.
Elskulega Vika?
Hinar beztu þakkir fyrir allt
skemmtilegt og fróðlegt, sem maður
fær að lesa frá þér. Nú ætla ég að
skrifa þér i fyrsta sinn og spyrja
þig nokkurra spurninga, þær eru
svona:
1. Fær ekki kvenfólk að læra sigl-
ingafræði úr skóla S.Í.S. eins og
strákar.
2. Hver er utanáskriftin þangað?
3. Hvað á ég að vera þung, ég er
167 cm há og er 16 ára?
4. Hvaða litir fara mér bezt, ég er
há og grönn með frekar dökk augu
og rauðbrúnt hár, frekknótt?
Svo vona ég að þú svarir.
Vertu svo marg blessuð Vika min.
þinn lesandi.
Svar: 1. Konur geta jafnt og karl-
menn fengið að læra siglingafræði
hjá bréfaskóla S'.l.S.
2. Utanáskriftin er:
Bréfaskóli S.l.S.
Sambandshúsinu
Reykjavík
3. 61% kg.
4. Grátt, brúnt, blátt, grænt og
auðvitað svart og hvítt.
Kæra ,,Vika“ mín!
Ég ætla nú að skrifa þér og leggja
fyrir þig eina spurningu, sem ég von-
ast eftir, að þú svarir fljótlega. Ég
les alltaf ,,Vikuna“, og ég sé, að all-
ir sem þurfa að fá vandamál sín leyst,
leita til þín. Ég vona, að þetta bréf
endi ekki í ruslakörfunni, eins og svo
margir segja við þig. Svoleiðis er að
ég er afskaplega hrifin af ungum
strák, og við erum mjög hamingju-
söm hvort með annað. — En hann
er ekki talinn ,,vaða í viti“, og þess
vegna eru allir svo andvigir þessu.
Fólk hefur spillt sambandi okkar af
ásettu ráði með því að bera allskonar
slúðursögur á milli, og snúast þær
allar um hann. Hann skellir allri
Snorra edda
Sœmundar edda
Sturlunga saga og
Glæsileg
vinargjöf
íslendingasögurnar
fást nú í vönduðu og fallegu
skinnbandi (15 bindi). Band-
ið er fyrsta flokks og getið
þér valið rautt, brúnt eða
svart skinn.
Hinir vandlátu velja íslend-
ingasagnaútgáfu Sigurðar
Kristjánssonar.
........‘I!.....
Fæst hjá bóksölum, en aðalútsala
er hjá
Bókaverzlun
Sigurðar Kristjánssonar,
Bankastræti 3.
skuldinni á mig og talar því sjaldan,
eða réttast sagt aldrei, við mig. Hann
er ákaflega sár vegna þess og dregur
sig alveg í hlé. Hvað á ég að gera til
þess að fá hann til að tala við mig.
Ég er sjálf svo feimin, að ég á hálf
bágt með að tala við hann að fyrra
bragði. — Get ég ekki orðið fullkom-
lega hamingjusöm með honum á lífs-
leiðinni, þótt svona sé um hnútana
búið? Vonast eftir svari sem fyrst.
Þín vina Rauna Rós.
Svar:
Við sjáum ekkert því-til fyrirstöðu,
að þú getir orðið hamingjusöm með
þessum dreng. Þú segir, að almennt
sé álitið, að hann „vaði ekki í viti“.
Það má vel vera að svo sé, en hann
getur samt sem áður orðið góður og
nýtur þjóðfélagsþegn og reynzt’hinn
ágætasti heimilisfaðir. Ef þið eruð
hamingjusöm og ánægð hvort með
annað, þá finnst okkur engin ástæða
til þess, að þið slitið sambandi ykkar
vegna slúðursagna utanaðkomandi
fólks. — Mundu það, að það er betra
að hafa lítið vit og nota það vel, en
hafa mikið og nota það illa.
Svar til Stellu Rögnu:
1. Þú átt að vera 58—59 kg. — 2.
Grænt, grátt, blátt, gult og auðvitað
hvítt hlýtur að fara þér vel. — 3.
Skriftin er góð, en helzt til of smá.
Eftir hvern er þessi vísa: Getur
einhver lesandi blaðsins frætt okkur
um það:
Kæra Vika!
Viltu gjöra svo vel og segja mér,
eftir hvern vísan er sem hér fer á
eftir:
Menningar og menntastraumar
mæða ei fólkið hér.
Það dottar allt og dregur ýsur,
drottinn hjálpi mér.
Með vinsemd og þakklæti
Karssa.
Bréfasambönd
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Halla Stefánsdóttir (við pilta á aldr-
inum 19—23ja ára),
Soffía Aðalsteinsdóttir (við pilta á
aldrinum 19—23ja ára). Báðar á
Hótel Hjalteyri við Eyjafjörð.
Helena Violanta (við pilt eða stúlku
16—20 ára), Miðstræti 20, Nes-
kaupstað.
Alda Gjoveraa (við pilt eða stúlku
16—20 ára), Strandgötu 11, Nes-
kaupstað.
Tímaritið SAMTÍÐIN
Flytur snjallar sögur, fróðlegar
greinar, bráðsmellnar skopsögur,
iðnaðar- og tækniþátt o. m. fl.
10 hefti árlega fyrir aðeins 25 kr.
Ritstjóri: Sig. Skúlason magister.
Áskriftasími 2526. Pósthólf 75.
,,--Hver íslendingur, sem átti fornritin, og las þau
með athygli, fékk í „Gullöld Islendinga“ skýringu á
því merkilega fyrirbæri, að á þjóðveldistímanum tókst
afskekktri og fámennri þjóð á Islandi að skapa þjóð-
skipulag og þjóðmenningu, sem mun ætíð verða talin
varanlegt afrek í sögu Vesturlanda. — I höndum Jóns
Aðils varð saga landsins heit eggjan til Islendinga um
að vera hvergi eftirbátar forfeðranna.“ — Þetta segir
Jónas Jónsson fyrrv. alþingismaður m. a. í formála
fyrir 2. útgáfunni.
„Gullöld íslendinga“
er tilvalin gjafabók!
Skoðið „GULLÖLD ÍSLENDINGA“,
hjá næsta bóksala, í hinu glæsilega skinnbandi.
Bókaverzl. Sigurðar Kristjánssonar
Bankastræti 3.
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.