Vikan


Vikan - 06.07.1950, Blaðsíða 3

Vikan - 06.07.1950, Blaðsíða 3
VIKAN, nr. 26, 1950 3 IN6A ÞORÐARDOTTIR leikkona (Sjá forsíðu). Inga Þórðardóttir sem Sísí í „Fag- urt er á fjöllum". Hinir leikararnir eru Gestur Pálsson og Haraldur Á. Sigurðsson. Inga Þórðardóttir sem Jóhanna Einars í Uppstigning. Inga Þórðardóttir sem Staðar- Gunna í Manni og konu. Hinn leikar- inn er Sig. S. Scheving sem Egill. Inga Þórðardóttir sem Halla í Fjalla-Eyvindi. Þetta atriði er úr þriðja þætti, sem gerist uppi við jökla, sjö árum eftir að þau fóru í útlegðina. Telpuna leikur Kristín Waage. Vikan birtir nú á þessari síðu og forsíðunni nokkrar myndir af Ingu Þórðardóttur í ýmsum hlutverkum. Leikferill hennar er ekki langur; hann hófst, er hún lék Sjansínu í „Nú er það svart, maður“ 1942, en þeim tökum hefur hún tekið hlutverk sín í ýmsum leikritum síðan, að þegar Þjóðleikhúsið hóf starf- semina, var hún fastráðin við Inga Þórðardóttir sem Birdie Hubbard (t. h.) í ,,Refirnir“ vorið 1948. Það var leikið á vegum Norræna félagsins. Til vinstri er Helga Möller. Svartmynd, eftir Salicath, af höfundi Fjalla-Eyvindar. Gunnar leikstjóri Hansen, „danskur vinur íslenzkra bókmennta", gaf Þjóðleikhúsinu nýlega þessa mynd af Jóhanni Sigurjónssyni, en 19. júní síðastliðinn voru sjötíu ár siðan skáldið fæddist. Sigurður Nordal segir í grein um Jóhann í leik- skránni: ,, . . . Með Fjalla-Eyvindi tylltu íslenzkar bókmenntir frá síðustu sex öldum (þ. e. yngri en fomritin) í fyrsta sinn tá í lifandi bókmenntuvi umheimsins. . . .“ Jóhann Sigurjónsson var fæddur á Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu 19. júní 1880, sonur Sigurjóns bónda Jóhannessonar og Snjólaugar Þorvalds- dóttur. Jóhann lauk fjórða bekkjar prófi i Latinuskólanum 1899, hélt þá til Kaupmannahafnar og lagði stund á dýralækningar, en lauk ekki prófi. Leik- rit eftir hann: Doktor Rung, 1905, Bóndinn á Hrauni, 1908, ekki prentað fyrr en 1912, Fjalla-Eyvindur, á dönsku 1911 og litlu siðar á íslenzku, Galdra- Loftur, á islenzku og dönsku, 1915, Lygarinn, á dönsku 1917. Ljóðakver kom út eftir hann á dönsku. Jóhann kvæntist 5. nóvember 1912 Ingeborg Thidemann Blom, danskri konu. Hann andaðist 31. ágúst 1919. það og við opnunina var henni fengið í hendur eitt erfiðasta hlutverkið, Höllu í Fjalla-Ey- vindi, og hefur hún leikið það sextán sinnum við hinn bezta orðstír. Er það þó ekki lítið vandaverk, þar eð hinar færustu leikkonur hafa leikið Höllu, ut- an lands og innan, eins og t. d. hin mikilhæfa leikkona Guðrún Indriðadóttir, er var hin fyrsta Halla og lék hana sem gestur í íslendingabyggðum vestan hafs, fimmtíu og fimm sinnum í Reykjavík og tíu sinnum á Akureyri. Inga Þórðardóttir hóf leik- starf sitt, eins og áður er sagt, í ,,Nú er það svart, maður“, síð- an lék hún Sísí Eldstáls í ,,Fag- urt er á fjöllum", hjá leikfélagi Reykjavíkur 1943, Dísu i „Leynimel 13“, hjá Fjalakett- inum 1943, Ingunni á Heggstað í Pétri Gaut, hjá Leikfélagi Framliald á bls. 10. Inga Þórðardóttir í Tondeleyo. (Vignir tók allar hlutverkamynd- imar, sem eru á þessari síðu).

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.