Vikan


Vikan - 21.09.1950, Page 6

Vikan - 21.09.1950, Page 6
6 VIKAN, nr. 36, 1950 ók bílnum. Það heyrðist hátt í vélinni, en Bruce gat talað við Alys. „Það er einkennileg tilviljun, að Hortense Leary, fyrirgefðu, ég meina markgreifafrúin, skuli vera hér. Manstu ekki eftir því, að ég sagði þér frá henni?“ „Hún er þá stúlkan frá New Orleans ?“ Hann hló. „Já, einmitt. Það var hún, sem var næstum búin að fá mig til þess að hætta við á- kvörðun mína um að vera piparsveinn." Enrico sneri sér að þeim: „Sjáið þið, þarna er húsið okkar. Og lítið þið svo við. Er útsýnið ekki tignarlegt?" Það var sannarlega tignarlegt. Miðjarðarhafið var ólýsanlega blátt, litlu húsin í Giardini sýnd- ust aftur falleg, eíns og þau höfðu sýnzt úti á hafinu. Vegurinn lá í bugðum til Taormina, fram hjá fallegum blómagörðunum, framhjá eignum hertogans af Bronte og gamla serkneska kirkju- garðinum, sem var nálægt hótelinu Castello Mare, sem var stórt, rautt hús með svölum. Enrico og Hortense nefndu ýmsa staði með nafni og Bruce muldraði: „Já, ég man eftir þessu. En hugsa sér að sjá það aftur!“ Þau óku inn í bæinn gegnum Porta Messina og eftir hinni ótrúlega litlu aðalgötu bæjarins. Veit- ingar voru á gangstéttunum, svo að maður gat ekki gengið framhjá nema koma við borðin. Þarna voru búðir með allskonar afgreiðslufólki, og skó- smiðirnir sátu fyrir utan verkstæði sín og stund- uðu vinnu sína. „Ó, hvað allt var yndislegt hér fyrir stríð,“ sagði Hortense og andvarpaði. Hótelin full af Englendingum og Bandaríkjamönnum; stórir dansleikir og hátíðir, kvöldboð og cocktailboð. Það var svo gaman og auðvelt að lifa. Nú er eins og bærinn sé dauður, eftir að birnirnir réð- ust hingað og trömpuðu niður alla fegurð og gleði með járnuðum hælunum ..." „Talaðu ekki svona, elskan' mín,“ sagði Enrico. „Birnirnir eins og þú kallar þá, eru bandamenn okkar.“ Það varð stutt, óþægileg þögn. Þeim fannst öllum hún þvingandi. Hún er italskur ríkisborg- ari, úr því að hún er gift honum, hugsaði Alys. En það var einkennilegt að álíta þessa skemmti- legu, bandarísku konu „óvin“. Og svipað var hægt að segja um mann hennar. Nokkrum mínútum síðar óku þau upp að hús- inu, Casa de Primavera, „Vorhúsið", eins og Bruce þýddi það fyrir Alys. Það var langt, hvítt hús, sem glampaði á í sterkri sólinni. Það var nýtízku hús með „wistaria" og öðrum vafnings- jurtum, sem teygðu sig upp framhlið þess. „Ég hugsa, að þér viljið helzt fara inn í yðar herbergi," sagði Hortense. „Eftir stutta stund getum við snætt. Ég er ekki búin að fá matar- bita ennþá. Eg varð svo forvitin, þegar ég frétti, að tveir landar mínir væru komnir, því að mér finnst alltaf svo gaman að sjá Bandaríkja- menn. Flestir þeirra, fóru úr landi, þegar Italía fór í stríðið." Meðan hún talaði við gesti sína, gengu þau gegnum stóra forstofu. Við endann á ganginum opnaði hún dyr og ýtti Alys inn í yndislegt svefn- herbergi, með fallegum teppum á gólfinu, út- skornu hjónarúmi og frönskum dyrum, sem lágu út á litlar svalir. „Ég hugsa, að þetta sé ágætt handa yður og manni yðar.“ Alys hrópaði upp yfir sig: „Hvað segið þér?“ Litla, ameríska markgreifafrúin sneri sér við og starði undrandi á hana. „Er eitthvað að?“ Alys áttaði sig. „Ég hafði alls ekki hugsað mér, að við byggjum hér í húsinu." „Ég hélt, að við hefðum orðið ásátt um það.“ „Það er alltof mikið." Hún leit út um gluggann, og lét sem hún væri að horfa á hið yndislega landslag. Hún vissi, að kinnar hennar loguðu og hún vonaði, að Hortence sæi það ekki. Hjarta hennar barðist ákaft. Vertu róleg, sagði hún við sjálfa sig. Bruce finnur upp á einhverju, svo að það verður allt i lagi. Hann hefur ekki einu sinni áhuga á þér sem konu. En var það rétt? Mót vilja sínum minntist hún atburðarins á þilfarinu, þegar hann hafði hrifsað hana í faðm sér og kysst varir hennar hart og ástríðufullt. „Ég er að hugsa um að sækja fötin, sem ég lofaðí yður,“ sagði Hortense. „Ef þér viljið fara í þau, þá eru dyrnar þarna." Hún benti á dyr. Hún var fegin því að verða ein, þá hafði hún tíma til að hugsa uhi þessa einkennulegu aðstöðu sína. Bruce og hún væru bæði þroskuð og skyn- söm. Þeim hlyti að detta eitthvað í hug, sem hjálpaði þeim. Það var ólýsanlegur unaður að fara í marm- arabaðkerið. Henni fannst hún vera á hafsbotni, því að allt í kring á veggjum og lofti baðherberg- isins, sem var í bláum lit, voru málaðar allskonar fisktegundir. Þegar hún kom inn i svefnherbergið aftur, sá hún að náttföt höfðu verið lögð á rúmið og hjá þeim voru inniskór. Alys fór í þetta, og það var allt mátulegt henni. „Guð blessi ungfrú Duffield, hver sem hún er,“ sagði hún og brosti við spegil- mynd sinni í stóra speglinum. Yndisleg morgunmáltíð beið hennar á svölun- um. Brauðið var mjög dökkt og gróft, en nóg var af öllu. Hortense sagði henni, að þetta kæmi flest frá búgörðum Enrico, og Alys skildi strax, að hann var einn af mestu búgarðaeigendum á Sikiley. Bruce var ekki kominn enn. Þegar hann kom stuttu síðar, sagði hann hrif- inn: „Ég verð að segja, að þú lítur vel út. Þessi náttföt gætu hafa verið saumuð á þig, þau fara þér svo vel.“ Hún fann blá augu hans hvíla á sér, og hún varð að taka á öllum viljakrafti sínum til þess að hrópa ekki: „Ekki horfa svona á mig! Það var í fyrsta skipti, sem henni varð ljóst, að hún var æst á taugum, og að hún varð að aðgæta mjög vel, að koma ekki upp um sig. Hún kreisti hendurnar saman og henni heppnaðist að brosa til hans, svo að Hortense sagði glaðlega: „Sjá til ykkar! Að vera svona ástfangin, þeg- ar þið eruð búin að liggja alla nóttina á fleka úti á reginhafi — og svo eruð þið ekki búin að fá neitt að borða!" Alys fann roðann koma fram í andlitið. „Ég er að minnsta kosti að deyja úr hungri, Hortense, og ég vona, að við fáum eitthvað æti- legt," sagði Enrico, sem kom upp tröppurnar. „Fjárans handleggurinn," sagði hann, og benti á fetilinn. „En,“ bætti hann við brosandi, „það get- ur einnig haft sína kosti." Blessaö barnið! Teikning eftir George McManus. Pabbinn: Ég er nýbúinn að hitta nýja nágrannann okkar, og ég bauð hon- um hingað — mig langar til að hann sjái Lilla og myndirnar, sem ég hef tekið af honum! Mamman: Þær eru inni. Ég er að fara í búðir. Pabbinn: Þetta hlýtur að vera hann, sem er að hringja dyrabjöllunni. Ég vona nú, að ég sé með allar myndirnar! Nágranninn: Halló, nágranni. — Ég tók með mér nokkrar myndir af syni mínum, úr því að ég er að heimsækja þig. Pabbinn: Ha: Nágranninn: Þessa tók ég, þegar hann var Nágranninn: Þú skalt skoða þessar, tveggja ára — þessi var tekin í garðinum. Hér eru meðan ég hleyp heim og næ í kvikmynd- nokkrar, sem eru teknar uppi í sumarbústaðn- irnar. Hann er yndislegur á kvikmynd! um okkar. Það var heldur þykkt loft!

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.