Vikan


Vikan - 20.10.1995, Side 26

Vikan - 20.10.1995, Side 26
fengi aldrei að vita um. Brent hafði kunnað sitt fag, en það var hins vegar ekki hægt að segja um Al. Eg þarf að segja þér dálítið, sagði Lili. Og ég held að nú sé ein- mitt rétti tíminn til að gera það. Ég gat ekki sagt þér þetta strax. Ég varð að bíða með það dálítinn tíma. Al setti glasið á sófaþorðið og horfði á Lili fullur eftirvæntingar og forvitni. Það er svolítið í sambandi við Brent og mig, sagði hún. Svolítið sem ég er viss um, að þú hefur mikinn áhuga á. Jæja, hvað er það? Ég veit vel að þú ert illa staddur fjárhagslega. Eg sé það í augun- um á þér. Við þörfnumst bæði mikilla þeninga, og ég veit hvernig á að útvega þá. Al þagði. Hann var leiður yfir því að hún skyldi vita um fjárhags- vandræði hans. Ég veit hvar þeir eru og hvernig á að ná í þá, endurtók Lili. Og þú átt að hjálpa mér við það. Jæja, sagði Al og botnaði hvorki upp né niður í þvf sem hún var að segja. Þú skalt fá þér aftur í glasið. Þú munt þarfnast þess sagði hún, stóð á fætur og gekk yfir að barnum. Al horfði á eftir henni og sá, hvernig hún dillaði mjöðmunum. Hann velti því fyrir sér hvað hún hefði í hyggju. Hún kom aftur með glasið, setti það á borðið fyrir framan hann og settist síðan fast upp að honum. Hún lagði annan handlegginn ástúðlega yfir axlir honum. Það var rán, sem enn er ekki upplýst, sagði hún. - Ránsfengur- inn var mikill og hver fékk sinn hluta. En það er enn mikið eftir. Þetta gerðist skömmu áður en hann var tekinn. Jæja, sagði Al og var hugsi á svip. Þetta var mikið fé. Hve mikið? Næstum 300.000 dalir og samt eru hinir búnir að fá það sem þeim bar. Hann stundi þungan. Svona há upphæð gat naumast verið raun- veruleg. Þetta hlyti að vera draumur sem aldrei mundi rætast. VIKAN 24

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.