Vikan - 20.10.1995, Blaðsíða 32
<
o
>
ÞÚ GÆTIR LÍKA
UNNIÐ SVONA
PHIUPS-TÆKI!
Ílok september var dregið
úr innsendum svörum
lesenda Vikunnar í lauf-
léttri könnun sem gerð var til
að kanna vinsældir einstakra
sjónvarpsþátta. Upp kom
nafn Eddu Kristjánsdóttur,
Blikabraut 13 í Keflavík.
Edda veitir PHILIPS-tækinu vifitöku úr
hendi Óskars Jónssonar, afgreiðslu-
manns í Heimilistækjum í Sætúni.
Verðlaunin sem komu í
hlut Eddu voru 14 tommu
sjónvarpstæki frá PHILIPS
og er þetta öðru sinni sem
Vikan gefur slíkt tæki í verð-
launasamkeppni á þessu ári.
Og enn eigum við eftir að
koma út einu tæki. Það gæti
komið í þinn hlut, lesandi
góður, ef þú tekur þátt í jóla-
verðlaunasamkeppni Vik-
unnar, sem fram fer í tveim
næstu tölublöðum, en auk
sjónvarpstækisins er keppt
um meira en tvöhundruð
vinninga sem eru samtals
mörghundruð þúsunda
króna virði.
PHILIPS sjónvarpstækið
fæst í Heimilistækjum og
kostar 37.790 krónur. Það er
með fjarstýringu, scart-tengi
og tengingu fyrir heyrnartól.
Tækið varð fyrir valinu sem
verðlaun þar sem það hefur
hlotið mikið lof fyrir skarpa
mynd. □
FELULEIKUR
VIKUNNAR:
Iér á síðunni birtist
sama teikningin í
tveim útgáfum. Sex
atriði hafa breyst á milli
mynda. Þegar þú hefur fundið
FINNDU 6 VILLUR
ora:
þessar breytingar og slegið
hring utan um þessi sex atriði
á neðri myndinni klippir þú
myndina út eða skrifar á blað
hverjar breytingarnar eru. Úr-
lausnarseðilinn verður þú að
póstleggja eigi síðar en 20.
október til Vikunnar Seljavegi
2,101 Reykjavík.
i s ■
j <r> CD s
! £
j © ~[2 &
TJ I I | r^-A
1
UNG OG UPPRENNANDI
FRH. AF BLS. 29
Þegar síðast var dregið úr
réttum lausnum krossgát-
unnar komu upp fimm eftir-
talin nöfn. Og sem fyrr eru
verðlaunin fjórar bækur frá
Fróða að eigin vali:
Erla Ingvarsdóttir, Hafnar-
götu 71, 230 Keflavík. Brynja
Hlíðar, Trönuhjalla 5, 200
Kópavogi. Páll Gunnarsson,
Blönduhlíð 31, 105 Reykja-
vík. Gunnhildur Loftsdóttir,
Ránargötu 42,101 Reykjavík
og Jóna Margrét Júlíusdóttir,
Hásteinsvegi 56 a, 900 Vest-
mannaeyjum.
Þeir sem hafa ráðið kross-
gátu þessa tölublaðs geta
póstsent lausnarorðið til Vik-
unnar og er utanáskriftin:
Vikan/Fróði, Seljavegi 2, 101
Reykjavík.
Dregið verður úr réttum
lausnum og fimm heppnir les-
endur fá nýja herrailminn frá
Givenchy. Tvíburabróður In-
sensé Orginal. Ilmurinn er
ferskur, tær, fullur af lífi og
einstaklega hrífandi.
Insensé Ultramarine fæst í
eftirfarandi útfærslum; rakspíri
í 50 og 100 millilítra glösum,
Eau de toilet spray, einnig í
50 og 100 millilítrum, raka-
krem til notkunar eftir rakstur,
í 75 millilítrum, svitalyktareyðir
í 75 millilítra stifti og loks
sápa, sturtu- og baðhlaup í
200 millilítrum.
Fyrir réttar lausnir í síðasta
tölublaði fengu fimm eftirtaldir
lesendur nýjasta ilminn frá
Claude Montana, Suggestion:
Erla Bjarnadóttir, Mörkinni 8,
108 Reykjavík, Heiðrún
Hansdóttir, Trönuhjalla 5,
200 Kópavogi, Ásta Guðrún
Guðbjartsdóttir, Laugarás-
vegi 32, 104 Reykjavík og
Vigdís Þorsteinsdóttir Lækj-
argötu 530, Hvammstanga.
Næstu fimmtán árin naut
hann leiðsagnar kennara við
Tónlistarskólann í Hafnarfirði
og Tónlistarskólann í
Reykjavík. Eftir einleikara-
próf árið 1988 hélt hann til
Englands og hóf nám við
Royal Northern College of
Music í Manchester sem er
einn af leiðandi tónlistarhá-
skólum ( Evrópu. Þar var
hann í eitt ár en honum
fannst borgin heldur leiðin-
leg þótt skólinn væri góður.
Ári síðar lauk hann prófi frá
skólanum og hélt þá til
heimsborgarinnar London
þar sem mikið er að gerast
bæði í leiklist og tónlist. „í
sjálfu sér er það nám að fara
á tónleika og hlýða á góða
listamenn," segir Ármann. í
heimsborginni var hann (
þrjú ár og sótti einnig tíma í
París. Fyrir þremur árum
kom hann heirn."
„Þessa dagana standa yfir
upptökur á kammertónlist
Mozarts í flutningi Camer-
arctica en það er hópur sem
samanstendur af okkur Hall-
fríði og strengjakvartett. Við
höfum unnið saman í þrjú ár,
haldið fjölda kammertónleika
og fyrir hver jól höldum við
Mozart tónleika við kerta-
ljós.“ Ármann kennir í Tón-
listarskóla Hafnarfjarðar auk
þess að spila í óperunni og
leikhúsum og af og til spilar
hann með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. „Spilamennsk-
unni fylgja oft mikil átök og
þess vegna er nauðsynlegt
að taka sér frí af og til. Mikil
orka fer í tónlistariðkunina
og oft er gengið langt á vara-
birgðirnar. Hins vegar er
mjög gefandi að spila fyrir
fólk og það eina sem gildir er
að koma tónlistinni sem best
til skila.“
Á tónleikunum með Sin-
fónfuhljómsveit íslands mun
Ármann spila konsert eftir
bandaríska tónskáldið Aaron
Copland sem saminn var ár-
ið 1948 fyrir meistarann sjálf-
an, Benny Goodman. „Cop-
land nýtir tónsvið og blæ-
brigði klarínettunnar mjög
vel. Ég hlakka til að spila
konsertinn eftir að hafa und-
anfarið fengist mikið við
Mozart sem er mjög agaður.
Konsertinn er auk þess ágæt
andstæða píanókonserts
Mozarts sem fluttur verður á
tónleikunum." □
32 VIKAN