Vikan - 20.10.1995, Side 42
Vinsældir Sólstrandargsejanna hafa komið flestum ó óvart en engum þó eins
mikið og þeim sjólfum. Gerður Kristný tók Sólstrandargsejana Jónas
Sigurðsson og Unnstein Guðjónsson tali.
Þegar þeir Jónas og
Unnsteinn voru í
Menntaskólanum á
Egilsstöðum vöknuöu þeir
einn morguninn í faðmlögum
uppi í hjónarúmi í ókunnugri
blokkaríbúö. Þeir vissu
hvorki hvar þeir voru staddir
né hver byggi í íbúðinni. Þeir
mundu aðeins eftir því að
hafa verið að skemmta sér
kvöldið áður og drukkið tölu-
vert. Þeir fóru á heimavist-
ina, þar sem þeir bjuggu, og
sömdu lagið „Rangur rnaður"
sem var mikið spilað á út-
varpsstöðvunum síðastliðið
sumar.
Einn daginn tóku þeir upp
á þvi að leika „Rangur mað-
ur“ aftur á bak og þar með
var komið lagið „Misheppn-
aður“. Svona urðu sum lag-
anna til á disknum sem Sól-
strandargæjarnir gáfu út í
sumar.
„Ástæðan fyrir því að við
ákváðum að gefa lögin okkar
út í sumar var sú að við
höfðum orðið varir við að
skólasystkini okkar höfðu
gaman af þeim og kunnu
þau jafnvel utan að. í fyrstu
ætluðum við aöeins að gefa
út disk fyrir vini og vanda-
menn en ákváðum svo að
hafa upplagið stærra fyrst
við vorum að gefa út á ann-
að borð. Fleiri keyptu diskinn
en við höfðum búist við og
hafa 1600 eintök selst."
Eftir að farið var að spila
„Rangur maður" í útvarpinu
fengu Unnsteinn og Jónas
vini sína til að gera mynd-
band viö lagið.
„Okkur fannst myndbandið
mjög fyndið. Þar sést hvar
við leikum lagið niðri við sjó í
anda sjónvarpsþáttanna um
Strandverðina. Sjónvarpinu
virðist hins vegar ekki hafa
fundist myndbandið jafn
fyndiö og okkur og sýndi það
aldrei."
Þeir félagar fara ótroðnar
slóðir f laga- og textagerð.
Lögin eiga til að mynda helst
ekki að hafa fleiri hljóma en
þrjá og svo heitir eitt laga
þeirra „Rassgat, rassgat og
píka“.
„Ég viðurkenni að mamma
var lítið hrifin af laginu,“ segir
Jónas. „Ég tók diskinn upp á
spólu fyrir hana um daginn
og hún var mér mjög þakklát
fyrir að ég skyldi ekki hafa
„Rassgat, rassgat og píka“
með. Við Unnsteinn höfum
þróað með okkur húmor sem
hæfir helst 12 ára krökkum.
Fæstir aðrir virðast skilja
hann.“
Jónas og Unnsteinn
kynntust í Menntaskólanum
á Egilsstöðum en hvorugur
þeirra er þó þaðan. Jónas er
frá Þorlákshöfn en Unn-
steinn frá Djúpavogi. Þeir
voru enn í menntaskóla þeg-
ar þeir fóru aö leika saman
undir nafninu Sólstrandar-
gæjarnir.
„Við ákváðum að stofna
hljómsveit til að komast í
partý og það gekk eftir. Við
vorum alltaf aö horfa á
Strandverðina í sjónvarpinu
og þaðan kemur nafnið.“
Jónas tekur það fram að
hann hafi aldrei farið á sólar-
strönd: „Ég er rauðhærður
og brenn í sól.“
Unnsteinn lá hins vegar á
sólarströnd í útskriftarferð-
inni sinni og virðist hafa
komist klakklaust frá því.
Sólstrandargæjarnir ætl-
uðu í fyrstu að koma fram á
öldurhúsum og komu saman
hljómsveit til að leika undir
með sér. Fyrsta skiptið sem
hljómsveitin lék opinberlega
var á veitingastaðnum Astró.
í kjölfar þess bauð hljóm-
sveitin Sssól þeim að hita
upp fyrir sig á sveitaballa-
rúntinum.
„Það var frábært tækifæri
fyrir okkur. í upphafi sumars-
ins skemmtum við okkur vel
og vorum sífellt fullir. Síðan
tókum við okkur á og fórum
að líta tónlistina örlítið alvar-
legri augum," segir Jónas og
leggur þunga áherslu á orðiö
„örlítið". „Mér finnst mjög
gaman að vera á sviði og þá
sér í lagi þegar ég tek Sex
pistolstakta og mölva gítar-
inn. Ég gerði það í Njáls-
búð.“
Þessa dagana sitja þeir
Jónas og Unnsteinn hvor
með sinn gítarinn í höndun-
um á heimili Jónasar í
Hveragerði og semja lög fyrir
nýjan disk sem koma á út
fyrir jólin.
„Það verður hægara sagt
en gert að skjóta ruglinu á
fyrri disknum ref fyrir rass,“
segir Unnsteinn.
Þeir Jónas ætluðu að
leggja hljómsveitina niður í
haust en hættu við það þeg-
ar menntaskólarnir hófu aft-
ur göngu sína og óskir um
tónleikahald tóku að berast
frá nemendafélögunum.
„Við virðumst falla vel að
menntaskólahúmornum. Við
erum hins vegar staðráðnir í
því að hætta að spila þegar
okkur finnst við ekki lengur
fyndnir."
Svo hlæja þeir svo dátt að
maður efast um að sá dagur
eigi nokkur tímann eftir aö
renna upp. □
TEXTI: GERÐUR KRISTNÝ UÓSM.: HREINN HREINSSON