Vikan - 27.06.2000, Blaðsíða 50
Texti: Halla Bára Gestsdóttir Myndir: Gunnar Sverrisson
Brfet og Gunnar Egill Þorisson tengu góða hugmynd við eldhúsborðið
Fyrir frainan Kcstaurant Reykjavík sem er í
eigu forcldra Egils. Bríet og Egill unnii þar allt
þar til þau hófu undirbúning að opnun Vero
Moda verslunar í Prag.
Bríet og Egíll hafa búið í Prag í nokkur ár en foreldrar
Egils, ræðisntannshjón íslands í Tékklandi, eru búsett-
ir Dar og eiga ueitingastaðínn Restaurant Reykjauík.
Bríet og Egill hafa tekíð hátt í rekstri staðarins síðustu
ár en á síðastliðnu ári fóru bau að uelta huí fyrir sér
að fara út í rekstur á tískuuerslunínni Vero Moda bar
sem hau sáu sig sest að í borgínni til lengrí tíma.
Það var í janúar síðastliðn-
um að verslun Vero Moda
var opnuð í Prag eftir lang-
an, strangan og vægast sagt erfið-
an undirbúning. Margt gekk á á
undirbúningstímanum og
skrifræði og óskilvirk vinnu-
brögð Tékkanna töfðu opnun
verslunarinnar um marga mán-
uði. En allt hafðist þetta að lok-
um hjá Bríeti og Agli og í dag eru
þau eigendur að glæsilegri tísku-
verslun á besta stað í miðborg
Prag, í verslunargötunni Na
Príkopé. Þar spretta upp nýjar
verslanir í takt við aukið fjár-
magn í borginni samhliða því sem
þeim ferðamönnum fjölgar
stöðugt sem heimsækja Prag.
hafi verið hugdetta á sunnudags-
eftirmiðdegi. „Við sátum við eld-
húsborðið hér heima í Prag og
vissum ekki hvað við áttum að
taka okkur fyrir hendur. Það var
þá sem Bríeti datt í hug að opna
verslun og mér fannst það fín
hugmynd. Vero Moda kom strax
upp í kollinn á henni, enda
þekktum við merkið að heiman,
en þó ekki mikið meira en það.
Þennan sunnudag var hvorugu
okkar full alvara með þessari
hugmynd en tæpum tveimur
árum seinna er þetta orðið að
veruleika. Við erum mjög þakk-
lát fyrir að Vero Moda kom upp
í kollinn á okkur en ekki eitthvað
annað.“ Bríet og Egill komust að
því að íslendingurinn Kristinn
Gunnarsson rak heildverslun fyr-
ir Bestseller-Vero Moda í Suð-
ur-Þýskalandi og settu þau sig í
samband við hann. Kristinn
hjálpaði þeim að koma á fundi
með Troels Poulsen, eiganda
Bestseller, og eftir tvo daga í
Danmörku voru þau staðráðin í
að láta dæmið ganga upp. Þau
segja að fólkið og fyrirtækið á
bak við Vero Moda sé hreint
ótrúlegt því þrátt fyrir að vera á
meðal stærstu fyrirtækja í Dan-
mörku sé fjölskylduandi ríkjandi
jafnt og gríðarleg fagmennska.
Samkeppnin á tískuvörumark-
aðnum í Prag er lítil eins og er
sem gerir þeim Agli og Bríeti
óneitanlega auðveldara fyrir.
„Þær verslanir sem hér voru fyr-
ir hafa í gegnum tíðina verið að
bjóða upp á eins til tveggja ára
gamlar tískulínur," nefnir Bríet
eftir að hafa verið spurð um
möguleika Vero Moda merkisins
í Prag. „Tékkland hefur verið
einhvers konar ruslakista fyrir
tískurisana þótt það sé að breyt-
asthéríPrag. Tékkar eru farnir
að fylgjast með því sem er að ger-
ast í tískuheiminum og fólk er
farið að langa til að klæða sig al-
mennilega. En þær eru ekki
margar krónurnar sem hinn
venjulegi Tékki á til að eyða í föt
en þar kemur Vero Moda til móts
við fólk með flotta tískuvöru á
góðu verði en hingað til hefur
slíkt ekki þekkst í borginni. Þetta
stendur þó allt til bóta þar sem
margar verslunarkeðjur eru ann-
aðhvort komnar með eða eru að
leita sér að húsnæði í Prag en þar
á meðal eru Mango, H&M, Zara
og fleiri. Við erum ekki hrædd
við samkeppni og sendum nýjum
samkeppnisaðilum fallegan
blómvönd þegar þeir opna og
síðan reynum við bara að standa
okkur betur en þeir.“
Það var hægara sagt en gert að
ganga í það mál að fá tilskilin
leyfi til að opna verslun í borg-
inni. „Við gengum út frá því,“
segir Egill, „að þetta ætti eftir að
Erfið fæðing
Þegar Bríet og Egill eru spurð
að því hvernig þeim hafi dottið í
hug að fara út í verslunarrekstur
í Prag svarar Egill því til að þetta
50 Vikan