Vikan - 12.09.2000, Blaðsíða 12
Helgi Arent Pálsson, Valgeir
Matthías Pálsson og Hildur
Björgvinsdóttir.
Sér umhuerfið í uatnslit
leikfimi, göngur, golf, hjólreið-
ar, hestamennsku, bátsferðir og
æfingar í tækjasal þá fer hér fram
margvísleg fræðsla. Við Kolbrún
fórum t.d. báðar í bak- og verkja-
skóla sem stóð í tvær vikur. Þar
fór fram kennsla í uppbyggingu
líkamans, einkum hryggjarins,
likamsvitund, fræðsla um sárs-
auka og verki og afleiðingar
þeirra á heilsuna. Einnig lærð-
um við um áhrif lyfja og annarra
efna á líkamann og hvernig við
ættum að beita líkamanum rétt
við ýmis dagleg störf. Þetta var
mjög gagnlegur skóli.“
Aðspurðar segja þær Reykja-
lund vera mjög ólíkan sjúkrahús-
um. „Það er ekki hægt að bera
Reykjalund saman við aðrar
heilsustofnanir eins og sjúkrahús.
Maður verður meira var við
hversu veikt fólk er á sjúkrahús-
unum og mér finnst andrúmsloft-
ið þar þyngra. Vissulega er margt
fólk hér sem á virkilega bágt en
það er svo ofsalega duglegt. Þeg-
ar ég kom hingað í vor þá voru
hér margir sem voru virkilega illa
farnir og jafnvel í hjólastól en nú
er þetta fólk búið að læra að
bjarga sér og sumir farnir að
ganga á ný. Maður sér það svo
glöggt hversu gott maður hefur
það þegar maður kemur inn á
stað eins og Reykjalund þótt ým-
islegt hrjái mann,“ segir Kolbrún
og Eygló kinkar kolli. „Það er
einnig allt öðruvísi aðhlynning
hérna en á spítölunum. Manni
líður ekki eins og sjúklingi hérna
heldur meira eins og einum af
hópnum, manni er tekið sem
jafningja af starfsfólkinu," segir
Eygló brosandi.
um
Þegar Kolbrún og Eygló eru
spurðar hvort þeim leiðist ekkert
á Reykjalundi þá hrista þær báð-
ar höfuðið." Það er ekki tími til
þess að láta sér leiðast enda mik-
ið að gera,“ segir Kolbrún. „Á
kvöldin spjalla ég við fólkið sem
er hérna, horfi á sjónvarpið og
hvíli mig, enda er ég yfirleitt lúin
eftir daginn. Þar sem ég er utan
af landi nota ég líka tækifærið og
heimsæki vini og ættingja
í Mosfellsbænum," segir
Kolbrún. „Flestir fara
heim um helgar og það
brýtur upp vikuna," segir
Eygló. „Ég er á vatnslita-
námskeiði sem haldið er
hérna tvö kvöld í viku og
það er ofsalega skemmti-
legt. Ég sé bara allt um-
hverfið, bækur, blöð, fjöll og fólk
í vatnslitum. Mér finnst líka mjög
gaman að fara í útreiðartúra en
hef ekki getað komist á hestbak
lengi vegna baksins. Nú grillir
hins vegar í að ég komist á bak og
ég hlakka mikið til. Veran hér
hefur gert mér afskaplega gott og
ég vildi óska þess að fleiri
kæmust á svona endurhæfingar-
stöð eins og Reykjalund og að
fólk fengi þá kennslu sem hér fer
fram áður en í óefni er kornið,"
segir Eygló að lokum.
Starfsfólkið ætti að fá
orðu
Fyrir ári síðan fékk Sigríður
Eygló Gísladóttir blóðtappa í
heila og lamaðist vinstra megin í
líkamanum. „Ég hafði aldrei
komið hingað upp á Reykjalund
fyrr en ég
kom hing-
að sem
sjúklingur.
Ég hef
dvalið hér í
ofsalega
fínu yfirlæti
í sjö vikur
og það er
alveg meiri-
háttar að
vera hér.
Fólkið er
allt saman
boðið og
búið að reyna að hjálpa manni en
auðvitað verður maður líka að
hjálpa sér sjálfur. Ég var svo
heppin að lenda á alveg dásam-
legum lækni sem heitir Ludvig
Guðmundsson. Hann er falleg-
ur maður, með fallegt bros og
ábyggilega með stórt og gott
hjarta. Svona eiga læknar að
vera,“ segir Sigríður Eygló
ákveðin en brosandi.
„Ég má heldur ekki gleyma að
minnast á kokkana hérna. Það
alltaf ofsalega fínn matur hjá
þeim og það lífgar upp á sálar-
tetrið í okkur að fá gott að borða
eftir að vera búin að strita allan
daginn. Ég er búin að vera þjálfa
mig upp hér og hef náð mjög góð-
um árangri. Ég fer meðal annars
í leikfimi. göngu og iðjuþjálfun.
Mér finnst þetta allt saman mjög
gott og ég er búin að kynnast
nokkrum konum sem eru ofsa-
lega skemmtilegar. Allt það fólk
sem ég hef kynnst er afskaplega
jákvætt. Starfsfólkið hér á B-
deildinni er alveg frábært og er
boðið og búið að gera allt fyrir
mann, það ætti eiginlega að fá
orðu. Ég vil þakka öllu þessu
góða fólki fyrir hjálpina sem það
hefur veitt mér og óska því alls
hins besta, bæði í starfi sem og í
einkalífi."
Skemmtilegast í golfínu
Helgi Arent Pálsson, Hildur
Björgvinsdóttir og Valgeir
Matthías Pálsson voru að spila
golf í góða veðrinu. Þau hafa öll
dvalið á Reykjalundi í þrjár vik-
ur. Helgi og Hildur eru að koma
í fyrsta skipti en Valgeir hefur
verið hér þrisvar sinnum áður.
Þeim finnst öllum mjög gott að
vera á Reykjalundi. „Mér finnst
ég búin að læra mjög mikið hérna
á ekki lengri tíma, sérstaklega í
bakskólanum.“ segir Hildur.
Helgi segir að á Reykjalundi sé
mjög gott fólk og góðir sérfræð-
ingar. „Það er þroskandi að vera
hér. Ég er með þremur öðrum í
herbergi og þeir eru fínir.
Skemmtilegast finnst mér í golf-
inu,“ segir Helgi um leið og hann
púttar glæsilega. Valgeir er í
offituprógrammi sem hann kveð-
ur vera mjög gagnlegt. „Ég læri
heilmikið í næringarfræði og
mataræði og síðan fær maður
mikla hreyfingu. Mér finnst
skemmtilegast að hjóla, synda og
að æfa í tækjasalnum. Ég vil endi-
lega hvetja alla sem eru
illa staddir í lífinu að nýta
sér þá þjónustu sem
Reykjalundur býður upp
á eigi þeir möguleika á
því.“
Gæfukort til heilla
og gjafa
Mikið uppbyggingar-
starf fer fram á Reykjalundi og
hefur starfsemin sprengt af sér
húsnæðið. Árið 1998 var gengist
fyrir landssöfnun til styrktar
byggingu alhliða þjálfunarhúss
á Reykjalundi. Húsið mun bæta
úr brýnni þörf stofnunarinnar
fyrir slíkt þjálfunarhúsnæði og
nýtast vel ört vaxandi fjölda
landsmanna sem árlega sækir
bætta heilsu og endurhæfingu á
Reykjalund. Þótt landssöfnunin
hafi gengið mjög vel er fjármögn-
un hússins ekki lokið, en SÍBS
hefur hafið sölu á Gæfukortum
til styrktar byggingunni og eru
þau tilvalin til heillaóska og gjafa.
Hægt er að nálgast kortin á skrif-
stofu SÍBS að Suðurgötu 10 og á
skrifstofu Reykjalundar.
Sigríður Eygló Gísladóttir: „Það alltaf
ofsalega fínn matur hjá kokkunum
hérna og bað lífgar upp á sálartetrið í
okkur að fá gott að borða eftir að vera
búin að strita allan dagínn. Ég er búin
að uera biálfa míg upp hér og hef náð
mjög góðum árangri. Ég fer meðal ann-
ars í leikfimi, göngu og iðjubiálfun."
12
Vikan