Vikan - 12.09.2000, Qupperneq 22
Texti: Guðríður Haraldsdóttir
Menn sein leggja á flótta undan konuni
eru algjörir lieij>lar. Til eru niun verri
iirlög en aö kvænást jjóöri konu eins o«
þér og niá þar nel'na einlíli.
r
Lánu hann há ekki sieppa
iviundu bara að
fráteknir menn
teljast ekki menn!
Venjuleg áreltni eða al-
uöru ASTreitni
Fyrir konu, eldri en 35 ára, er
lífið hreint ekki auðvelt. Því er
haldið fram að meiri líkur séu á
því að hún verði fyrir árás hryðju-
verkamanna en að hún nái sér í
góðan mann. Nú, ef kona lendir
í árás hryðjuverkamanna þarf
hún bara að nýta aðstæðurnar sér
í hag og það veit hver heilvita
kona. Aðalmálið í þessu öllu
saman er að koma sér upp réttu
hugarfari og góðum veiðigræjum
... eða hreinlega að vígbúast.
Nauðsynlegt er að vera allsgáð á
veiðunum til að dómgreindin
slævist ekki og óæskilegar mann-
gerðir verði fyrir „ástreitni" frá
þinni hendi. Auðvitað eru til
menn sem eru kynþokkahatarar
af verstu sort og ef þú lendir á
einum slíkum skaltu forða þér
hið snarasta. Flúnvetningar eru
slæmir að þessu leyti og einnig
menn sem búa með mæðrum sín-
um. Hér á eftir fara nokkrar að-
ferðir sem nota má á karlmenn
sem þú hittir á barnum eða í
strætó en samkvæmt mjög áreið-
anlegum heimildum, rannsókn-
um og könnunum eru bestu
veiðilendurnar þar.
aðferðir ef um allt brýtur
:T;TPm! - ■
Gleymdu því að bjóða honum í rómantískan
málsverð með rauðvíni og kertaljósum. Hann
smjattar á góða matnum þínum, sötrar rauðvínið
og slekkur á kertaljósinu með kröftugum ropa.
Þetta er bara eyðsla á peningum og tírna. Ef þú
vilt eignast mann þarftu að ganga hreint til verks
og beita hann andlegu eða líkamlegu ofbeldi á
meðan veiðarnar standa yfir.
Þótt Michael Douglas hafi naumlega komist lífs
af í myndinni Fatal Attraction var þetta bara bíó-
mynd. íslenskir karlmenn láta rniklu frekar und-
an hótunum. Það nægir bara að segja að þú sért
hrifin af soðnum kanínum. Hann skilur fyrr en
skellur í tönnum og kvænist þér umsvifalaust.
Þægilegast er ef maðurinn kemur heirn til þín.
Vertu róleg og láttu sem þú sért áhugalaus á með-
an þú lokkar hann alveg inn úr dyrunum. Til eru
tortryggnir menn sem eru dauðhræddir við konur
sem eru einar heima. Þegar þú hefur læst hurð-
inni tryggilega skaltu fara úr flíspeysunni sem huldi
efri hluta líkama þíns og vera á fiegnum bol. Þú
þarft nefnilega ekki að sýna nema ögn meira en
venjulega af líkama þínurn til að hagsýnin komi upp
í honurn og hann haldi að hann fái ókeypis það sem
hann hefur hingað til þurft að borga fyrir á nekt-
arstöðum. Þegar þér hefur tekist að skella í lás byrj-
ar þú á að handjárna hann við rúmið þitt. Ef hann
fer að gráta skaltu hugga hann og koma honum síð-
an í skilning um að þú sért orðin þreytt á þessari
eilífu leit og þig vanti bara eiginmann. Flestir karl-
ar róast við þetta. Ef þú sýnir honumákveðnikemst
hann ekki hjá því að hrífast af þér og samþykkir
fljótlega að giftast þér. En ef maðurinn heldur
áfram að orga skaltu losa hann úr handjárnunum
og fleygja honum á dyr því þú hefur ekkert að gera
við aumingja. Menn sem koma upp að dyrum
heima hjá þér eru sölumenn, mælaálestrarmenn.
sendibílstjórar, lögreglumenn, viðgerðarmenn og
vottar Jehóva.
[ilill
Sumir menn elska hrukkóttar konur og þá þarftu
bara að hætta að maka á þig hrukkukremi og sofa
minna. Þú verður innan tíðar gullfalleg og girni-
leg í hans augum og þá er ekki nauðsynlegt að beita
hann ofbeldi. Menn sem elska hrukkóttar konur
eru fornleifafræðingar (vitanlega), rútubílstjórar,
afgreiðslumenn í varahlutaverslunum og húsamál-
arar.
Annað dænii: Ef þú ferð út að borða með við-
skiptafræðingi skaltu bjóðast til að borga fyrir ykk-
ur bæði. Áður en þið komist út af veitingastaðn-
um hefur hann borið upp bónorðið af einskæru
þakklæti!
22
Vikan