Vikan - 12.09.2000, Side 25
hringja og biðja um aðstoð og
ég þorði það ekki. Ég var svo
hrædd um að það kæmist upp
um mig; að einhver uppgötv-
aði hvað ég ætlaði mér að
gera. Og enn þá átti ég langa
leið fyrir höndum. Stundum
fannst mér ferðin ganga ofur
hægt og það olli mér áhyggj-
um.
Einn daginn heyrði ég ekki
í vekjaraklukkunni. I fyrstu
fannst mér það hræðilegt. Ég
lá kyrr í rúminu og hugsaði.
Kannski ætti ég að taka lífinu
með ró. Taka mér frí þar til
takmarkinu væri náð. Ég var
búin að harka af mér svo
lengi. Varlega reisti ég höfuð-
ið frá koddanum. Það var
þungt sem blý. Fæturnir
skulfu undir mér þegar ég fór
fram úr rúminu. Ég studdi
mig við vegginn og fór inn á
bað. Ég varð að sitja á gólf-
inu undir sturtunni. Ég sat
lengi en kuldinn sat eftir í
maganum þótt heitt vatnið
brenndi húðina. Ég klæddi
mig í þykkar peysur og hlýja
sokka. Ég hafði litla sem enga
tilfinningu í fótunum. Ég
hringdi í yfirmann minn og
sagðist vera með flensu.
Fæturnir skulfu og ég kreisti
símtólið. Mér fannst ég allt í
einu agnarsmá og bjargarlaus
og ég átti erfitt með að koma
upp orði. Yfirmaðurinn
reyndi að hughreysta mig,
sagði mér að fara vel með mig
og koma með læknisvottorð
ef ég yrði veik lengur en þrjá
daga. Kjökrandi þakkaði ég
honum hugulsemina. Ég setti
mikinn sykur út í kaffið,
fannst ég hafa unnið til þess.
Allt í einu fylltist ég eldmóði
og byrjaði að draga rúmið inn
í stofu. Rúmið stóð á þunnu
teppi sem rann léttilega eftir
parkettinu. Ég var ákveðin í
því að vera í stofunni þegar
að því kæmi að ég megnaði
ekki að fara á fætur. Eftir það
liði nokkur tími þar til ég væri
í raun og veru á mörkum lífs
og dauða. Ég vissi ekki hversu
langan tíma það tæki, en ég
vonaði að ég fengi einhvers
konar tákn um það eða til-
finningu fyrir því.
Það var að líða
yfir mig við
áreynsluna af að
koma rúminu fyr-
ir en mérhafði alla
vega hitnað. Ég
setti plötu á fóninn
og lét mig falla
niður í rúmið. Allt
snerist fyrir aug-
unum á mér og ég
varð að loka þeim
til þess að losna
við verstu svima-
tilfinninguna. Eft-
ir stutta stund
sofnaði ég.
Það var langt
liðið á daginn þeg-
ar ég vaknaði. Ég
var þurr í munnin-
um og mér hafði
aldrei verið svona
kalt. Ég gekk var-
lega að gluggan-
um og leit út. Það
var greinilega
hlýtt úti, fólkið
fyrir utan glugg-
ann var klætt sum-
arfötum. Kona
hljóp á eftir stræt-
isvagninum. Ég
horfði undrandi á
hana; ég gat ekki
munað hvenær ég
hafði hlaupið síð-
ast. Það var erfitt
að muna nokkuð
þessa dagana. Ég starði á
fólkið á götunni og velti því
fyrir mér hvers vegna það
streðaði við að lifa þrátt fyrir
vitneskjuna um dauðann sem
bíður okkar allra. Ótrúlegt,
hugsaði ég með mér og fór
aftur í rúmið. Hvers vegna
taka ekki fleiri ráðin í sínar
hendur?
Ég lá róleg og hugsaði um
endurkomu mína frá landa-
mærum dauðans. Um sól-
skinið við landamærin, birt-
una og ylinn. Hjartað myndi
slá í öðrum takti en venjulega,
slögin yrðu blíðleg undir húð-
inni, lifandi eins og fuglsungi.
Blóðið myndi streyma um
æðar mínar, niður í fótleggina
og aftur upp til hjartans, eins
ogvorvindurinn ítrjákrónun-
um. Þegar ég kæmi til baka
mætti lesa öll þessi undur úr
augum mínum. Augnaráðið
yrði fullt af djúpri visku og
þeir sem mættu því gætu ekki
slitið sig frá því. Allir myndu
horfa á mig með undrun og
lotningu. Ég yrði sýnileg í
fyrsta sinn á ævinni eins og
daginn sem ég fæddist. Kona
sem fólk liti ekki framhjá; eft-
irminnileg, áhrifamikil kona.
Það var farið að rökkva
þegar ég vaknaði aftur. Þeg-
ar ég reis upp sá ég stórar hár-
flyksur á koddanum. Ég hafði
ekki gert mér grein fyrir því
að ég kæmi til með að missa
hárið. Kvöld nokkurt hringdi
síminn meðan ég sat á stól fyr-
ir framan spegilinn á baðher-
beginu og klippti af mér hár-
ið. Ég klippti það stutt og það
leit betur út. Dauðhrædd
svaraði ég í símann, en það
var bara yfirmaður minn sem
langaði til að vita hvernig ég
hefði það. Hann spurði hvort
mér væri að batna og hversu
lengi ég reiknaði með að vera
fjarverandi. Hann sagðist
hafa ráðið afleysingamann-
eskju; hann vildi að ég tæki
minn tíma þar sem ég hefði
alla tíð verið mjög samvisku-
söm. Ég þakkaði honum hug-
ulsemina og bað fyrir kveðjur
til starfsfélaga minna. Ég
hringdi á læknavaktina og út-
skýrði að ég væri veik og
þyrfti að fá læknisvottorð.
Vikan
25