Vikan - 12.09.2000, Síða 38
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
Arthur Conan Doyle
fæddist í Edinborg
hinn 22. maí árið
1859. Hann vareinn
sjö systkina og fjárhagur fjöl-
skyldunnar var þröngur. Faðir
hans, Charles, var opinber starfs-
maður en myndskreytti bækur í
hjáverkum. Launin voru ekki há
og hrukku tæpast fyrir útgjöld-
um. Fjárhagsáhyggjurnar lögðust
það þungt á hann að smátt og
smátt missti hann bæði andlega
og líkamlega heilsu sína. Conan
litli flúði erfiðleika fjölskyldunn-
ar með því að loka sig af með bók
og hverfa inn í ævintýraheim
bókmenntanna.
Hann fékk inni í Stonyhurst
menntaskólanum sem rekinn var
af jesúítum og eftir það hélt hann
tii Austurríkis og var þar í eitt ár.
munu að sjálfsögðu strax kannast
við þessar aðferðir.
Eftir að Doyle lauk kandídats-
prófi réð hann sig sem skipslækni
á hvalveiðiskipið Hope í sjö mán-
uði. Skipið var við veiðar í Norð-
ur-íshafinu og starfið var vel
borgað og hefur það sennilega
ráðið mestu um val Conans því
fjölskyldan var mjög aðþrengd
fjárhagslega. Ferðin reyndist hins
vegar hin mesta ævintýra- og
happaferð og það varð til þess
að Conan hélt í aðra ferð til Afr-
íku, að þessu sinni eftir að hann
útskrifaðist úr læknaskólanum.
Sú ferð var hræðileg. Hann fékk
taugaveiki, bjargaði sér naum-
lega á flótta undan hákarli þeg-
ar hann fékk sér sundsprett í
sjónum og varð að berjast af al-
efli við eld þegar kviknaði í skip-
Þegar hann sneri aftur til Edin-
borgar og skráði sig í læknaskól-
ann þar var heilsa föður hans ger-
samlega farin. Charles var floga-
veikur og hann drakk ótæpilega,
auk þess sökkti hann sér niður í
þunglyndi og að lokum neyddist
fjölskyldan til að koma honum
fyrir á heilsuhæli. Dvöl hans þar
var fjölskyldunni dýr fyrir svo
utan þá sorg að sjá föður sinn
þannig á sig kominn.
Kennari sem kenndi fleira
en lækningar
Conan hinn ungi reyndi að
gleyma vandamálum sínum með
því að helga sig náminu. Einn
kennara hans, Joseph Bell, hafði
ákaflega gaman af því að giska á
hver væri atvinna sjúklinga hans
og hvar þeir byggju, út frá ýms-
um vísbendingum sem hann sá í
fari þeirra. Til að mynda bentu
sigggrónir fingur, slitnir skór,
snjáð föt og moldug til þess að
sjúklingurinn væri verkamaður
frá ákveðnu hverfi, kolaryk á
annað hverfi og margt fleira í
þeim dúr nýtti hann sér til að
vekja aðdáun nemenda sinna
þegar hann oftar en ekki giskaði
á rétta atvinnugrein og rétt íbúð-
arhverfi. Aðdáendur Holmes
inu. Þegar hann steig loks fæti á
þurrt land aftur sór hann þess
dýran eið að fara aldrei á sjó aft-
ur og opnaði eigin læknastofu í
Portsmouth í Englandi.
Fáir sjúklingar leituðu til hans
í fyrstu og til að drepa tímann
gekk Conan í krikketklúbbinn á
staðnum, spilaði rugby, golf og
billjard. Hann gekk einnig löng-
um stundum um nágrennið og
hugsaði. Sagt er að þessi mikla at-
hafnasemi hafi einnig verið til
þess að berjast gegn fjölskyldu-
arfinum, þunglyndi, sem farið var
að plaga hann um þessar mund-
ir. Söguhetja hans, Sherlock
Holmes, átti síðar eftir að end-
urspegla að sumu leyti þessa
tfma. Sherlock barðist einnig við
þunglyndi sem yfirtók hann á
stundum og þá varð hann að loka
sig af, spila á fiðlu sína og reykja
ópíum. Hann jók einnig tímann
sem hann eyddi við skriftir en frá
barnæsku hafði hann skrifað sér
til ánægju í tómstundum og ein
smásaga eftir hann hafði birst í
tímariti meðan hann var enn í
læknaskólanum.
Sherlock Holmes verður til
Árið 1885 giftist hann Louise
(Touie) Hawkins og þá tóku skrif
Á hverju ári leggja hundruð ferðamanna leið sína að Baker
Street 221B til að skoða safn sem helgað er hinum fræga
spæjara Sherlock Holmes. Engu er líkara en að barna sé
minnst manns sem raunverulega hafi lifað og búið í
Bakerstræti. Raunin er hins vegar öll önnur og heimilisfang-
ið Baker Street 221B var aldrei til heltíur. Húsið sem fengið
hefur bað númer hafði annað númer á árum áður og hýsti
aldrei meistaraspæjara og læknislærðan vin hans. Þúsundir
Sherlock Holmes aðdáendaklúbba eru til um allan heim og
engin önnur skáldsagnapersóna hefur verið uppspretta fleiri
kvikmynda og leíkrita, en maðurinn á bak við bessa vinsælu
persónu hét flrthur Gonan Doyle og var að sumu leyti jafn
sérvitur og hugarfóstur hans.
Sir Arthur
Conan Doyle.
38 Vikan