Menntamál - 01.07.1928, Side 7

Menntamál - 01.07.1928, Side 7
MENTÁMÁL 69, um niargt, sem þau mega ekki án vera. Fræðslulögin mæla svo um, aÖ fyrir þá, sem ekki geta veitt börnum sínum lögboðna fræðslu kostnaðarins vegna, skuli kostnaðurinn greiddur úr sveitarsjóði. Sú aðferð er sjaldan vinsæl, hvorki af þeim, sem veita styrkinn, nje hinum, sem þiggja hánn, enda oftast ófull- nægjandi. Á meðan hún verður aðallega notuð, verður oftast horft á kostnaðarhliðina meira en má, eigi öllum börnum að gefast kostur á því, að njóta góðs uppeldis. Mjer virðist önnur leið miklu eðlilegri og vissari, til ])ess aö tryggja það í fram- tíðinni, aö svo miklu leyti sem það er unt fjárhagslega, að hverju barni og unglingi í sveitunum gefist kostur góðrar kenslu á heimavistarskóla eða á annan hátt, þó að foreldrarnir geti ekki greitt kostnaðinn, sem af því leiðir. Og leiðin er sú, að í hverri sveit verði myndaður, með frjálsum samskotum eða á ann- an liátt, frœðslusjóður. Eftir það er sjóðirnir taka til starfa, sje nokkrum hluta ársvaxtanna varið til þess aö liorga fræðslu- kostnað þeirra barna og unglinga, sem þess hafa ])örf. Hinn hlutinn leggist við höfuðstólinn. Fjárhagsleg geta einstakling- anna, sveitanna og þjóðfjelagsins er háð svo margvíslegum utanaðkomandi áhrifum, að oft, t. d. á erfiöum tímum, verður það takmarkað, sem hægt er að lcggja til uppeldismálanna, en aldrei er meiri þörf á góðu uppeldi, en þegar lamandi erfið- leikar kreppa að þjóöinui á einn eða annan hátt. Fyrst þegar sveitirnar eru búnar að tryggja kostnaðarhlið uppeldisins með ]>essu eða öðru móti, þannig, að það byggist ekki að öllu leyti á fjárhagslegu gjaldþoli og fórnfýsi hinnar líðandi stundar, þá er nokkur vissa fengin fyrir því, að hægt sje að staðaldri að starfrækja heimavistarskóla, eða aðra kenslu, sem verulegan kostnað hefir í för með sjer. Góður heimavistarskóli væri ein- hver bezta eign hvers sveitarfjelags. Frá þeim ínundi margt barn- ið, sem kemur með smáa framtíðardrauma og litla trú á mátt sinn, fara með fagrar hugsjónir og þrek til þess að láta þær rætast að meira eða minna leyti. Sjóðsmyndun í þessum tilgangi er sameiginlegt velferðarmál allra í sveitunum, sem menn ættu að geta sameinast um, og flestum væri kært að fórna einhverju

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.