Menntamál - 01.07.1928, Page 9
MENTAMÁL
71
t. d. kvenfjelög og ungmennafjelög, ættu þau aÖ taka máliÖ
a'S sjer. Skipulagsskrárnar verði þannig, aÖ sjóöirnir nái sem
bezt tilgangi sírium og aÖ fjeð verði ávaxtað á tryggum stöð-
um. Mjer dylst það ekki, að þó að fræðslusjóðir verði mynd-
aðir í sveitunum, þá líða ár og áratugir, ])angað til þeir geta
tekiö til starfa svo um muni. Það er hætt við því, að þeir vaxi
hægt fyrst í stað, á meðan menn eru að skilja gildi þeirra, en
eftir að þeir eru teknir til starfa, býst jeg við því, að margir
muni finna, hve mikils virði þeir sjeu, og þeim muni þá hlotn-
ast ríflegar gjafir við ýms tækifæri.
Okkur þykir öllum vænt um sveitirnar okkar, og þráum, að
þær og landið eigi sem fegursta framtíð fyrir höndum, að holt-
in og hlíðarnar, sem nú eru ber, eigi eftir að klæðast skógi,
móar og mýrar að breytast í iðgræn tún og engi, og bygging-
arnar aö verða samboðnar náttúrufegurðinni. Við vitum, að
frá náttúrunnar hendi hefir landið það, sem þarf, til þess að
þetta geti orðið. En svo mikils sem vert er um ytra útlit sveit-
anna, skiftir hitt ])ó miklu meiru, að hvert barn i þeim hafi
það, sem það þarf, til þess að vaxa að dáð og drengskap.
Styrkur íslenzku þjóðarinnar, bæði inn á við og út á við, bygg-
ist á andlegum og líkamlegum þroska hvers einstaklings. Ef
íslendingar vilja vernda frelsi sitt, senr forfeður þeirra fórn-
uðu svo miklu fyrir, þá veröa þeir að vinna sjer samúð ann-
ara þjóða með framkomu sinni. Þeir þurfa að sýna það með
verkunum, að þótt þeir sjeu bæði fátækir og fámennir, geti
þeir enn lagt skerf til heimsmenningarinnar. Margir menn fara
meðfram á mis við það uppeldi, sem þeim er nauðsynlegt
til þroska, af efnalegum ástæðum. Á því á að ráða bót. ekki
fyrst og fremst með lagaboðum, heldur meö sjóðsstofnunum
af fúsum og frjálsum vilja.
Björn Guðnason.