Menntamál - 01.07.1928, Qupperneq 11

Menntamál - 01.07.1928, Qupperneq 11
MENTAMÁL 73 urum. Engin tilraun var gerfe’ í þinginu til þess a<5 lækka þessa fjárveitingu nje fella hana burt. Stendur hún því í fjárl. næsta árs, og væntanlega til frambúðar. FræÖslumálastjórnin úthlut- ar þessum styrk, og mun fjenu verða ráðstafað svo, að þremur kennurum verði veittur styrkur i senn til utanfarar, 1000 kr. hverjum, en ekki gerðar meiri kröfur um dvalartíma erlendis en svo, að kennarar geti notað sumartímann eingöngu, en ])urfi ekki að slökkva neinu niður af kenslutíma sínum. En áðúr var það til skilið, að kennari væri minst 9 mánuði erlendis. Engri þjóð er meiri nauðsyn en íslendingum að halda uppi lifandi sambandi við umheiminn, og ekkert getur verið kenn- arastjettinni meira gleðiefni en það, að greitt sje fyrir því, að hún geti að einhverju leyti fengið að sjá sig um í ö'ðrum löndum. Merkast af því, sem gert var í íræðslumálunum á síðasta þingi, eru Lög um fræðslumálanefndir: 1. gr. Stjórn barnakennarafjelags Islands, forstööuma'ður kennaraskólans og fræðsumálastjóri skulu skipa fræðslumála- nefnd barnaskóla Islands. Stjórn barnakennarafjelagsins skal kosin skriflega um land alt, enda hafi allir starfandi barna- kennarar rjett til aö vera fjelagsmenn. 2. gr. FræSslumálanefnd barnaskólanna gerir tillögur til ráSuneytisins um námsskrár fyrir barnafræSslu landsins, lög- gilding kenslubóka, tilhögun prófa og um hámark og lágmark kenslustundafjölda fyrir hvert barn á dag. EáSherra staSfest- ir tillögur nefndarinnar og auglýsir þær meö hæfilegum fyrir- vara. Samþykki fræSslumálastjórnarinnar þarf til aS víkja frá námsskrá. 3. gr. MeS reglugerS má fyrirskipa þriggja manna fræSslu- nefnd viS ungmennaskóla landsins. Skal fræSslumálastjóri sjálfkjörinn í nefndina, en meSnefndarmenn skipar ráSherra til þriggja ára i senn úr hópi starfsmanna viö framangreinda skóla. FræSslumálanefnd þessi hefir meS höndum hliSstætt

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.