Menntamál - 01.10.1931, Blaðsíða 4

Menntamál - 01.10.1931, Blaðsíða 4
66 MENNTAMAL ]>ví aíS ])íiu venjast lélegu máli á mörgum heimilum og víðast hvar, þar sem þau eru meÖal múgsins. Móðurmálskennslunni er ýmislega hagað, en margir góðir kennarar fara þannig að: Þeir temja sér að tala vandað mál við nemendur sína. Bækur nota þeir svo góðar, sem kostur er á. Nú hafa þeir úr mörgum og góðum bókum að velja. Og fá þeir að nota þær bækur, sem þeir óska og fræðslumálastjórnin hefir viðurkennt nothæfar. Börnin eru látin lesa bæði í hljóði og upphátt. Þau læra einn- ig kvæði utan bókar og flytja þau svo í áheyrn skólasystkina sinna. Málfræði er kennd í efstu deildum barnaskólanna. Læra nemendur að þekkja málsgrein og hluta hennar, orðflokka. beygingar og svo framvegis. Mikla áher/.lu leggja kennarar á að Iáta nemendur sina leika ýmsa atburði, sem námsbækur þeirra segja frá. Þykir nemend- um mesta eftirlæti að lesa saman og leika. Fllakka þeir jafnan til samlesturs. Þá eru nemendur æfðir í að rita tungumál sitt. Rita þeir fyrst eftir uppskrift á skólaspjöld og síðar eftir bókum. Þess á milli lýsa þeir hlutum eða myndum, segja sögur eða rita um eitthvert áhugamál sitt. Hér og hvar er nemendum i efstu deild- um skólanna gefinn kostur á að tala skipulega sem á mannfund- um væri. Hafa þá nemendur sjálfir fundarstjórn og ræða ýms málefni, sem þeim og kennurunum kemur saman um. Hefi eg' reynt þetta í efstu bekkjum Miðbæjarskólans i Reykjavík, og voru nemendur þakklátir og höfðu gagn og gaman af. Umræðurnar i ensku skólunum fara fram i kennslustundum. Efni er margbreytilegt, þættir úr sögu þjóðarinnar, atriði úr mannkynssögu, ferðasögur nemenda sjálfra, almenn mál, íþrótta- lif og fleira. Kennarar draga sig í hlé, þótt þeir hafi málfrelsi, en þeir eru til taks, ef á þarf að halda, viðbúnir að skera úr vandamál- um, leggja á góð ráð og aðstoða eftir föngum. Hættir. Barnafjöldi er mismunandi í enskum skólum. Víð- ast, þar sem eg kom, voru börnin ekki fleiri en þrjú til fjög-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.