Menntamál - 01.10.1931, Blaðsíða 12

Menntamál - 01.10.1931, Blaðsíða 12
74 MENNTAMÁL og jjrýÖa -]>orpiíS eða bæjarhlutann, sem þau húa í. í Filipps- eyjum bar afarmikiÖ á tannskemmdum, eins og oft vill verÖa, þar sem hálfvilt fólk tekur állt í einu upjj svonefnda menn- ingu hvítra manna. Sægur manna átti sér engrar hjargar von, vegna fjarlægÖa. Rauða kross börn tóku sig þá til og söfnuðu fé á ýmsa vegu. Þess skal getið, að ekki gáfu foreldrarnir þetta fé. ViÖ þvi er spornað. Heldur öfluðu börnin ]>ess sjálf. Bif- reiðar voru búnar úl eins og tannlækningastofur. Síðustu fregnir, sem eg hefi séð, herma, að sextíu og fimm slíkir vagnar renni um landið ]>vert og endilangt. og liafi þegar 275 ]>úsundir manna verið læknaðir. Fyrir nókkrum tíma voru yfir 10 miljónir barna í þessum félagsskaj). Og mun, eins og áÖur var sagt, ekkert félag hafa náð slíkri útbreiðslu á jafnskömmum tíma. Og orsökin mun vera sú, að félagiÖ hefir bætt úr ýmsum þeim knýjandi ])örf- um. sem mest hafa kallað að. Til dæmis hafa skólamenn fagn- iið ]>essari nýjung opnum örmum. Varla hefir nokkur verið svo þröngsýnn, aÖ skoða hana sem hindrun á skólastarfinu. Þvert á móti fyllir hún ]>að nýju lífi. Á hverju sviði starfs- ins setur hún upp ákveðið takmark. Þegar börnin sjá, aÖ ]>aÖ sem þau eru að gera, hefir vissa þýðingu, fyllast þau áhuga og vinna hálfu Itetur en ella. Það hefir sýnt sig, að til þess að þessi starfsemi komi að gagni. verÖa skólarnir að annast hana. Víða hefir Rauða kross starf veriÖ tekið inn í námsskrá skólanna; því hefir verið ætl- aður viss hluti af skóladeginum. Þar sent svo er, er jafnan sú hætta á öðru leitinu, að ]>að verði að skylduskatti og að ]>að missi þann lifandi kraft, sem annars er einkenni þess og ann- ars, sem börn fá sjálf -tið taka í sinar eigin hendur. Auðvitað er ])etta undir kennurunum komið, eins og flest önnur atriði ■skólahaldsins. Þeir ]>urfa fyrst og fremst að kynnast ágæti þessarar nýjungar, og fá áhuga íyrir henni. I’eir þurfa og ;aÖ ]>ora að leggja störf i hendur ljarnanna, og treysta þeim til að mynda félögin og stjórna þeim. Kennarinn er auðvitað íilltaf með í ráðum og gerir u])pástungur, ]>egar nauðsynlegt

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.