Menntamál - 01.03.1933, Blaðsíða 19

Menntamál - 01.03.1933, Blaðsíða 19
MENNTAMÁL 5i Landfræðtkeimsla. Frh. Nú skal eg í stuttu máli gera grein fyrir tildrögum þess, a'S eg brá út af venjulegri námsskrá, og hvernig smám sarnan þró- aðist ný vinnuaðferð i þessari grein, í raun og veru að leiðsögn barnanna sjálfra. Eg hafði nokkuð kynnt mér nýungár í barria- sálarfræði, og einkum fest athygli við mismunandi áhugaaldur barna. Svo hefir virst, að 10—12 ára gömul börn væru einkum hugfangin af sögum um afreksmenn, rannsóknarferðir eða land- könnunarferðir og því um likt. 1 bekknum minum áttúin við eiginlega að lesa um Ðanmörku, en í stað þess tókum við að lesa af kappi um Gi'ænland, því að mér virtist það eftir þessari kenningu um áhugaaldur vel til fallið. Við skröfuðum nú og skeggræddum um legu Grænlands og landslag, um landísirin og hafísinn, veðráttuna, Eskimóana og skinnbátana þeirra, seli, hvali, ísbirni, um ferð Nansens yfir Grænland, o. s. frv. Þegar að viku liðinni var niér þáð ljóst, að eg var á réttri leið. Þessi Græn- landsfræði vöktu alveg einstakan áhuga. Hvar Sem eg rakst á börnin, á götum úti eða í skólanum, þá rigndi yfir mig spurn- ingum. Sama sagan barst mér frá heimiíúnum. Áður höfðu nemendur mínir jafnan skrifað og teiknað sínar eigin landfræðibækur. Aðrar námsbækur höfðu þau þá ekki haft, og hafði aldrei skort áhuga. Miklu fremur kom það fyrir, að aðrir kennarar, sem höfðu einstakar greinar i bekknum, kvört- uðu undan landfræðiáhuganum. En þegar Grænlandsnámíð byrj- aði, þá keyrði þó um þvert bak. Allt ílóði i myndum og teikn- ingum. Börnin teiknuðu og máluðu allt, sem þau komust yfir, ýmist eftir bókum, sem þau höfðu aldrei áður viljað líta í, eða ■eftir gripum á þjóðmenjasafninu. Einn drengurinn teiknaði mynd af hverjum hlut í Grænlandsdeikl safnsins. Þannig hélduin við lengi áfram, en loks urðum við að hverfa frá Grænlandi. Eg valdi nú regnskógabeltið í Mið-Afríku sem næsta námsþátt. Það gerði eg vegna þess, hve allt er þar gjör- ólíkt, til þess að engin hætta væri á að börnin rugluðu saman.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.