Menntamál - 01.03.1933, Side 23

Menntamál - 01.03.1933, Side 23
MENNTAMAL 55 á öðrum heimsálfum. ÞaÖ er góð regla, aÖ fikra sig frá hinu einfalda til hins flóknara. Þegar þau svo loks byrja aÖ lesa um Evrópu, er áhuginn vakandi, og þau ganga að náminu með sama clugnaði og ákafa og áður, þegar lesefnið var um ljón og ísbirni, mannætur og Eskimóa, þó að viðfangsefnið sé nú miljónaborgir, samgöngur, iðnaður og verslun, og öll sú flókna fjölbreytni. Eg er í engum efa um, að þessi að- ferð er réttari hinni eldri. Eg man það, að einu sinni, áður en eg breytti um aðferð, var eg að kenna eldri börnum um Afríku, og það vakti undr- un rnína, að jafnvel drengirnir virtust ekkert gaman hafa af þvi að heyra um ljón og mannætur. Mér var ljóst, að eitthvað var hogið við þetta. Nú skil eg það. Námsefnið átti ekki við aldursskeiðið. Þeim, sem efast um, að eg hafi í þessu rétt fyrir mér, vil eg gefa gott ráð: Reynið einn vetur að kenna io ára börnum um Eskimóa, skinnbáta, seli og rostunga, en sleppið Þýska- landi og Bretlandi. Eg þori að íullyrða, að þér munið skipta um skoðun. Það hafa margir þegar gert. Uppeldismálin á Aljiingi. Enn þá einu sinni hefir Alþingi fslendinga sýnt hug sinn til uppeldismálanna í landinu. í fjárlagafrumvarpi stjórnarinnar virtist ekki kenna neinnar ofrausnar í útgjöldum til uppeldis- málanna. Sýndist þar ekkert umfram það allra sjálfsagðasta, og sumt fellt niður, sem áður hefir verið talið sjálfsagt, eins og t. cl. styrkur til kennaranámskeiða. Samt sem áður tókst fjár- veitinganefnd neðri deildar að finna þrjá útgjaldaliði til kennslu- mála, sem henni þótti rétt að felldir yrðu niður. Voru þær til- lögur samþykktar með miklum meiri hluta atkvæða við 2. um- ræðu fjárlaganna. Upphæðir þessar voru: ioooo kr. til kennslu-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.