Menntamál - 01.03.1933, Qupperneq 32
64
MENNTAMÁL
(No. 7—12), margföldun (No. 13—17) og deilingu (No. 18
—22). Eru þannig 42 dæmi á hverri mynd. Dæmin eru meÖ
litum. Sumar tölurnar eru rauÖar, a'Örar grænar o. s. frv. Hvert
dæmi er á litlum ferhyrningi og er öllum ferhyrningunum hellt
úr kassanum, sem þeir liggja í. Útkomur dæmanna eru svo á
botni kassans, og eru þær með sömu litum og dæmin, t. d.
„rauð“ dæmi hafa „rauða“ útkomu, og verða börnin, sem eru
að reikna, að gæta þessa vandlega. Nú reiknar barnið, og þeg-
ar það hefir lagt alla ferhyrningana niður í kassann á ný, tek-
ur það lokið af kassanum og hvolfir honum. Kemur þá mynd
í ljós, sem er hinumegin á ferhyrningunum. Sé rétt reiknað,
er myndin rétt, en ella röng. Getur livert barn þaiínig strax
séð, hvort það hefir reiknað rétt. Hafa börn mikla ánægju af
að glíma við dæmi þessi, einkum yngri börn.
„Regnebillederne" kosta danskar kr. 2.25.
Sönm menn (A. og Sv. Emborg) hafa einnig búið til „Tæl-
lebilleder" 1—2 á danskar kr. 1.65 pr. stk. — Góð fyrir smá-
börn. Svo og „Regnekort“ 1—22; pr. Serie d. kt. 0.20. Eru
þau einnig góð, en fastast mæli eg með „Regnebillederne".
Pantanir skulu sendar til den stedlige Brugsforening, eða
til Köbenhavns Brugforening, Frederiksberg Allé 53.
Enda svo línur þessar með því, að hvetja kennara til að panta
-sýnishorn og sjá, hversu ykkur líst.
Siglufirði 2. mars 1933.
Friðrik Hjartar.
Útgefendur Sunnu
biðja vinsamlega þá kennara, er hafa aflögu eintök af 1.
hefti ritsins, að senda afgreiðslunni þau sem allra fyrst.
Menntamál. Verð 5 kr. árg. Afgr. í Arnarhvoli. Sími Arnarhvoll.
Félagsprentsmiðj an.