Menntamál - 01.11.1944, Blaðsíða 8
154
MENNTAMÁL
MENNTAMAL
TUTTUGU ÁRA
í októbermánuði síðastliðnum voru 20 ár liðin síðan
fyrsta hefti Menntamála kom út, þótt yfirstandandi ár-
gangur sé ekki nema sá 17., því að útkoma þeirra féll
niður árin 1929—30 og aftur 1934. Þegar Menntamál
hófu göngu sína haustið 1924, hafði ekkert tímarit um
uppeldismál komið út hér á landi síðan á miðju ári 1922,
er Skólablaðið hætti, en það hafði Helgi Hjörvar gefið út,
fyrst einn, en undir lokin ásamt Steingrími Arasyni og
Ásgeiri Ásgeirssyni. Má lesa gerr um útgáfu uppeldis-
málarita hér á landi í bók Gunnars M. Magnúss, Sögu
alþýðufræðslunnar á íslandi (bls. 305).
Stofnandi Menntamála var Ásgeir Ásgeirsson, síðar
fræðslumálastjóri. Hann var útgefandi fyrstu fimm ár-
ganganna og ritstjóri. Því var það, þegar Ásgeir varð
fimmtugur á síðastliðnu vori, að Menntamál sendu hon-
um kveðju sína svo hljóðandi:
Ævilangt býr
að æskufóstri
gróður ljóss og lífs.
Sjá hér frjóanga,
er þú festir í mold,
vaxinn í tvítugan við.
Margs er að minnast,
margt að þakka,