Menntamál - 01.11.1944, Síða 22
168
MENNTAMÁL
Hallgrímur Jónasson fimmtugur
Hallgrímur Jónasson, kennari við Kennaraskólann, er
maður skagfirzkur að ætt, fæddur að Fremri-Kotum í
Skagafirði 30. okt. 1894. Iiann stundaði fyrst nám við
Hvítárbakkaskólann og
síðan í Kennaraskólanum
og tók kennarapróf þaðan
vorið 1920. Síðan stundaði
hann framhaldsnám við
kennaraháskólann í Kaup-
mannahöfn. Kennari við
barnaskólann í Vest-
mannaeyjum var hann ár-
in 1921—1931, en 1931
gerðist hann kennari við
Kennaraskóla íslands í
Reykjavík. Þar hefur hann
kennt síðan, og lúka nem-
endur hans upp einum
munni um það, að betri
kennara og leiðtoga geti
þeir ekki hugsað sér.
Ekki hefur Hallgi’mur látið stéttarmál kennara mikið
til sín taka, en traustur liðsmaður hefur hann reynzt
þar, eins og annars staðar. Það var hann, sem á sínum
tíma kom á kennaraskiptum milli íslands og Danmerkur,
og hafa ýmsir íslenzkir kennarar haft gagn af því.
Hallgrímur hefur lítt haft sig í frammi í opinberum
málum, og skortir hann þó hvorki vitsmuni til þess að
mynda sér skoðanir né einarðleika til þess að standa við
þær, og hefur það hvort tveggja stundum komið í ljós.
En hann er einn þeirra manna, sem mest metur að leggja
alúð við dagleg störf sín og leysa þau sem bezt af hendi.